Fréttablaðið - 02.02.2018, Page 10

Fréttablaðið - 02.02.2018, Page 10
Superb skarar fram úr á mörgum sviðum. Hann er gríðarlega rúmgóður enda með stærsta innanrýmið og skottið í sínum flokki. Byltingarkennd hönnun, hámarksþægindi og tæknimöguleikar auka enn á styrkleika hans. Komdu og prófaðu nýjan Superb. HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ SUPERB KEMUR STERKUR INN Í EFSTU DEILD SUPERB. FLAGGSKIPIÐ Í ŠKODA FJÖLSKYLDUNNI. www.skoda.is ŠKODA SUPERB frá: 4.690.000 kr. Ísrael Ákvörðun pólska þingsins um að refsivert verði að segja pólsku þjóðina geranda í Helförinni er til- raun til að endurskrifa söguna og í raun afneita Helförinni. Þetta sagði Benjamin Netanjahú, forsætisráð- herra Ísraels, í gær. Hið nýsamþykkta frumvarp er afar umdeilt og er óhætt að segja að Ísrael- ar séu ósáttir. Ef Andrzej Duda, forseti Póllands, skrifar undir frumvarpið mun hver sá sem segir Pólverja með- seka í Helförinni sæta sektum eða allt að þriggja ára fangelsi. Allt bendir til þess að Duda muni skrifa undir. Í gær sagði hann Pólverja eiga rétt á því að „vernda sagnfræðilegan sannleika“. Alls greiddu 57 öldungadeildar- þingmenn atkvæði með frumvarp- inu og 23 á móti. Ríkið hefur lengi mótmælt notkun frasa á borð við „pólskar útrýmingarbúðir“ og telur ríkisstjórnin ósanngjarnt að segja að Pólland hafi borið ábyrgð á útrýming- arbúðum á borð við þær í Auschwitz. Búðirnar hafi verið byggðar og reknar af nasistum eftir hernám Póllands. Hins vegar þykir öllu umdeildara að frumvarpið leiði til þess að ásak- anir á hendur pólskum einstaklingum um meðsekt verði bannaðar. Fyrir slíkum ásökunum er þó sagnfræði- legur og raunverulegur grundvöllur. Ísraelskir þingmenn eru nú með frumvarp í smíðum sem myndi útvíkka Helfararafneitunarlöggjöf ríkisins með þeim hætti að fimm ára fangelsisvist yrði við afneitun þess að samstarfsmenn nasista, meðal annars Pólverjar, hafi átt þátt í Helförinni. Helfararstofnun Ísraels hafði áður varað við að frumvarp Pólverja hundsaði þá sagnfræðilegu staðreynd að Pólverjar hafi aðstoðað Þjóðverja í Helförinni. Þó væri ósanngjarnt að tala um „pólskar útrýmingarbúðir“. Samkvæmt BBC eru pólskir stjórnmálamenn, einkum úr röðum ríkisstjórnarinnar, undrandi á við- brögðum Ísraela. „Það hryggir okkur og kemur okkur á óvart að viðleitni okkar til að viðhalda virðingu pólsku þjóðarinnar og að berjast fyrir sann- leikanum sé tekið á þennan hátt,“ sagði Stanislaw Karczweski, forseti öldungadeildar þingsins, í gær. Um hundrað pólskir listamenn, stjórnmálamenn og blaðamenn skrif- uðu undir opið bréf sem birtist í gær til að knýja á um að frumvarpið verði dregið til baka. Það gengi of langt í þá átt að gera Pólverja að „einu saklausu þjóð Evrópu“. thorgnyr@frettabladid.is Segja Pólverja afneita Helförinni KenÍa Hæstiréttur Keníu aflétti í gær útsendingarbanni sem ríkis- stjórn Uhuru Kenyatta forseta lagði á fréttastöðvarnar KTN, NTV og Citizen TV vegna fyrirhugaðra útsendinga frá táknrænni en óopin- berri innsetningarathöfn forseta- frambjóðandans og stjórnarand- stæðingsins Raila Odinga. Úrskurður hæstaréttar nær þó einungis til tveggja vikna á meðan málið fer fyrir rétt. Samkvæmt blaðamanni BBC í höfuðborginni Naíróbí bendir ekkert til þess að ríkisstjórnin ætli að framfylgja þessari ákvörðun hæstaréttar og voru miðlarnir ekki í loftinu þegar þessi frétt var skrifuð. Innanríkisráðuneytið sagði í til- kynningu fyrr í vikunni að athöfnin hefði verið tilraun til að grafa undan ríkisstjórninni og að með henni hefðu stjórnarandstæðingar lagt lín- urnar að byltingu sem gæti dregið þúsundir Keníumanna til dauða. Odinga vildi með athöfninni mót- mæla Kenyatta forseta en sá fyrr- nefndi sniðgekk forsetakosningar októbermánaðar eftir að hafa tapað fyrir forsetanum í ógildum forseta- kosningum ágústmánaðar. – þea Fjölmiðlabanni Kenyatta aflétt Útrýmingarbúðirnar í Auschwitz voru starfræktar í Póllandi. NordicPhotos/AFP Ólöglegt verður að segja Pólverja meðseka í hel­ förinni. Ísraelar segja að um sé að ræða Helfarar­ afneitun og afbökun sannleikans. Pólska ríkisstjórnin er gáttuð á viðbrögðunum. Ekkert bendir til þess að ríkisstjórnin ætli að fram- fylgja ákvörðun hæstaréttar um að aflétta útsendingar- banni á fréttastöðvarnar. 2 . f e b r ú a r 2 0 1 8 f Ö s T U D a G U r10 f r é T T i r ∙ f r é T T a b l a ð i ð 0 2 -0 2 -2 0 1 8 0 4 :3 3 F B 0 4 8 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E E 2 -3 3 6 8 1 E E 2 -3 2 2 C 1 E E 2 -3 0 F 0 1 E E 2 -2 F B 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 4 8 s _ 1 _ 2 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.