Fréttablaðið


Fréttablaðið - 02.02.2018, Qupperneq 42

Fréttablaðið - 02.02.2018, Qupperneq 42
Þú dregur alla með þér Elsku hjartans Hrúturinn minn, þú ert svo miklu sterkari persóna en þú getur ímyndað þér og allir í kringum þig sjá þig sem svo sjálfsöruggan og kraftmikinn, en í hjarta þínu er mikil feimni en þú passar svo vel að eng- inn sjái þitt innra eðli. Stundum er erfiðast að vera sterkastur og hafa ekki í sér að biðja aðra um ráð eða dómgreind vegna þess að allir halda að þú sért svo sterkur. Styrkleiki þinn felst svo miklu meira en þú heldur í því að vera einlægur og leyfa barninu í þér blómstra. Þú ert fyrirmynd svo margra og heldur fólki oft á floti í kringum þig með uppörvandi orðum og heillandi framkomu, en núna undanfarið hefurðu dottið inn í svartholið. Í þér býr orðasnilld, þá er ég ekki að segja að þú sért fullkominn í íslensku, heldur dregurðu alla með þér um leið og þú sérð að þú ert frábær ræðumaður og hefur svo sterka og áhrifaríka rödd, burtséð frá tungumáli. Mundu að þú ert fullkominn. Þú ert sterkasta merkið Elsku Ljónið mitt, þú ert náttúrulega marg- slungnasta merkið og það er aldrei auðvelt fyrir mig að gera spána þína. Þú þolir ekki stöðnun og þreytist á að vera í hefðbundnu starfi og finnst oft að þú finnir ekki hamingj- una svo þér finnst þú þurfir að leita lengra og lengra. Orkunni þinni fylgir mikil gjafmildi og þig þyrstir í að breyta heiminum. Það er mjög mikilvægt fyrir þig að hlusta ekki á fréttir, að tengja þig alls ekki við að hlusta á hörmungar því þú missir kraftinn og andlegu orkuna þína niður og hreinlega getur brostið í grát. Temdu þér hæfileikann sem þú hefur til að lifa einn dag í einu eða bara einn klukkutíma, því það er í raun allt sem þú hefur og þegar þú litar þennan klukkutíma með dásamlegri ljónaástríðu þinni þá skilur þú eftir ástríðu og ljóma sem bæði þú og aðrir geta notið og það er ekkert til nema þetta augnablik núna sem þú getur andað að þér. Þú ert sterkasta merkið og þú þarft ekki að vera súper dug- legt til að ná árangri. Ástin mun koma á óvart Elsku hjartans Bogmaðurinn minn, yndisleg framkoma þín hjálpar þér að ná þeim árangri sem þú vilt og það eina sem getur stoppað að þú sért að opna hliðið að því sem þú vilt er reiðin og frekjan. Til þess að ná þeim atriðum sem þú vilt í lífinu þarftu að skipu- leggja það sem þú ætlar að gera og vera sér- staklega góður við þá sem pirra þig mest, þó það eigi eftir að taka virkilega á því þú ert svo ástríðufullur í öllu sem þú gerir. Þú ert að einfalda svo margt og færð mikla athygli og þú elskar að vera í sviðsljósinu! Nú eru örugglega nokkrir þarna úti sem hrista hausinn yfir þessarri setningu og við þá segi ég: Elskan mín, þú ert bara ekki búnn að spenna bogann, setja örina í til þess að vita hvert þú ætlar að skjóta. Þeir sem eru á lausu þurfa svo sannarlega ástríðufulla gyðju eða goð því annars verður þú leiður og finnst allt eitthvað svo „boring“ og þér finnst þú vera næstum þunglyndur í ástamálunum, en ástin á eftir að koma þér á óvart. Sjáðu bara til. Ótakmarkað sex-appeal Elsku Nautið mitt, þú ert að fara inn á svo margslungið tímabil sem hefur liti regnbog- ans og þú átt eftir að nota þessa miklu orku til að koma því í framkvæmd sem þú hefur haft tilhneigingu til að fresta hingað til, og þú verður svo ánægt með þetta allt saman vegna þess að þú hefur heiðarleikann og gerir allt svo rétt. Ekki bæla niður þessa miklu ástríðu sem þú hefur, heldur leyfðu þessum ástríðufullu tilfinningum bara flæða út um allt og flæða fram eins og Gullfoss. Ef þú skoðar Gullfoss er hann aldrei eins, og þannig tímabil ertu að fara inn í, fjölbreytt og með nýja sýn á lífið og þú finnur fyrir þessu mikla flæði sem streymir í gegnum þig og sendir alla leti í burtu. Það heillast allir af þínu ótakmarkaða „sex- appeali“ sem felst alls ekki í því hvernig þú ert vaxið, heldur meira í óútskýranlegu aðdrátt- arafli þínu svo láttu þann bara njóta þess sem á það skilið. Gakktu varlega Elsku Meyjan mín. Þú ert svo áhugasöm um lífið og líðan annarra, en það er búið að vera stress tengt vinum eða fjölskyldu í kringum þig. Þú verður að vernda hugann betur og láta ekkert slá þig niður því þú ert valin í það hlutverk að kæta og virkja annað fólk. Lykillinn að því að þú náir jafnvægi er að leyfa þér að vera svolítið ein og finna friðinn í því. Ekki láta glepja þig með ímyndaðri ham- ingju. Ef það sem er að koma til þín virðist of gott til að vera satt þá skaltu setja spurning- armerki við það og kanna betur hvort allt sé satt og rétt sem er verið að bjóða þér. Það eru margir á lausu í þessu merki og ég bið þá um að vanda valið því núna í febrúar í fullu tungli Ljónsins eru miklar tilfinningar og, ef ég má nota orðið, gredda. En það á ekkert skylt við ást. Svo gakktu varlega út febrúar- mánuð og þakkaðu fyrir heimilið, vinina og fjölskylduna því þar ertu svo sannarlega blessuð. Þú þarft bara að elska sjálfa þig þá færðu allt sem þú vilt. Þú munt semja vel Elsku Steingeitin mín, þú ert svo dásamlega stolt og hjartahrein persóna og það er svo mikilvægt að þú afhjúpir þitt rétta eðli því þá verður allt svo mikið skemmtilegra. Þú hefur svo fjölbreytt og merkilegt ímyndunarafl, en átt það til að festast í því og það kemur fyrir að þú einangrar þig í tómri vitleysu. Þú hefur tilhneigingu til þess að hafa svo mikla þráhyggju gagnvart því sem þig langar að gerist að ekkert annað kemst að í þínum fallega heila. Ef þú skoðar þetta orð þráhyggja, þá þýðir það stöðuga hugsun um það sem þú þráir og þá komast ekki aðrar hugsanir að til að breyta lífinu. Aldrei nokkurn tímann skaltu reyna að hindra þá sem eru að stoppa þig því það mun koma í bakið á þér, nú er ég að tala við mjög fáar Steingeitur í sambandi við þetta, og láttu engan fara í taugarnar á þér þá verðurðu heppnari en þig gæti grunað. Mér finnst það dásamlegur kostur þinn hversu skoðanaföst þú ert og gefur þig aldrei og þú munt gera góða samninga. Hættu að ofhugsa Elsku hjartans Tvíburinn minn, það er allt að fæðast núna og þú sérð svolítið fram í tímann hvað er að fara að gerast og það mun gefa þér ró og sjálfstraust. Sjálfstraustið þitt er að magnast svo upp, þú færð svo góðar hugmyndir og það er í eðli þínu að halda góðum hugmyndum fyrir þig. En ég ætla að ráðleggja þér að sleppa þeim út í alheiminn og læra að treysta því að það verði þér til góðs að læra að treysta fólki örlítið betur, því í því felst lykillinn að þeim breytingum sem þú ert að leita eftir. Það er mjög mikilvægt þú takir allt til í kringum þig, því drasl og óreiða munu svipta þig orkunni til að framkvæma, svo taktu HSG á þetta: Henda, Sortera, Gefa er leiðarvísinn að því að einfalda líf þitt. Eins og þú ert fjöl- breyttur, þá verðurðu í raun sjaldan ástfang- inn, en stóra ástin á eftir að koma fagnandi á hárréttum tíma, svo hættu að pæla í þessu „and live a little“! Alltaf til í lífið Elsku Vogin mín, þú ert svo mögnuð orka og öðruvísi en allir, þú líkist helst Rummikubb og þeir sem elska þig kunna á Rummikubbinn þinn, en þeir sem skilja þig ekki eru ekkert að reyna að læra á þennan Rummikubb sem þú ert. Þegar að það gerist að þú ert í tengslum við þá sem skilja þig ekki og skilja ekki þína samsetningu þá geturðu hreinlega orðið brjáluð og látið allt fara í taugarnar á þér, en það bitnar á þeim sem í raun og veru skilja þig. Ég elska svo sérstaklega samkynhneigt fólk og þá tignarlegu orku sem þessar per- sónur gefa frá sér, því þær hafa yfirleitt farið í gegnum svo margt og þú hefur þessa geislandi orku, elsku Vogin mín, að maður tekur eftir þér hvar sem þú ferð. Svo mundu að þú hefur þennan X-Faktor, gerðu meira úr honum en þú ert að gera í augnablikinu. Vertu gegnsæ, opnaðu hjarta þitt og segðu hlutina hreint út. Haltu svo áfram að vera svona tignarleg og alltaf til í lífið. Nægir peningar Elsku Vatnsberinn minn, ef hægt er að segja að einhver sé sérstakur þá ert það þú, þú ert svo langt á undan þinni samtíð og færð svo dásamlegar hugmyndir, en það eru alls ekki allir sammála þér, en það skiptir ekki máli, haltu bara áfram að vera þessi dásamlega týpa. Orka þín er svo frjáls og ég elska hvað þú ert frjálslyndur daðrari og án þess að meina nokkurn skapaðan hlut með því þá hressirðu alla við með daðrinu þínu. Ríkjandi plánetan þín er Venus svo ekki óttast eigin tilfinningar, svo er Úranus sem vill engar reglur og er þar að auki svolítið skrýtin pláneta en það er bara svo ofsalega leiðinlegt að vera „normal“ svo umfaðm- aðu þær breytingar og leyfðu villingnum að koma fram núna í febrúar þá verður líf þitt svo miklu léttara. Það verða nægir peningar í kringum þig, en það er svo sérstakt að þú stjórnast ekki af peningum og þú leitar ekki eftir hinu veraldlega í raun. Mikill kraftur fylgir þér í tvo til þrjá mánuði og skapar svo merkilegar aðstæður í lífi þínu. Fólk mun keppa um athygli Elsku Krabbinn minn, þú sendir frá þér svo dásamlega strauma, ert svo hughrifinn og stundum of hamslaus á tilfinningar þínar sem getur fengið þig til að vera of drama- tískur og láta gamla erfiðleika lita líf þitt. Þú ert svo trygglyndur og vilt hafa allt svo flott og frábært sem þú gerir fyrir aðra að þú átt það til að tæmast og verða eins og sprungin blaðra. Þú þarft að koma þér upp afslappaðri tilveru og finna þér áhugamál sem setur frið í huga þinn. Það munu margir keppast um athygli þína næstu mánuði svo þú þarft að ákveða í hvaða liði þú ert, stundum veistu samt ekki einu sinni hver þú ert, en þú ert þversumman af fimm bestu vinum þínum – skoðaðu þá og þá sérðu hver þú ert. Mundu svo að það er mikilvægt að nota æðruleysisbænina sem við eigum öll og sættu þig við það sem við getum ekki breytt. Allt sem gerist í kringum þig er til að gefa þér þroska og vit til að skilja lífið. Speglaðu upp heimilið Elsku Sporðdrekinn minn, þú ert svo magn- aður og hefur kraft til að magna upp allar tilfinningar, en þú býrð yfir svo margbreyti- legum tilfinningum. Þú getur verið svolítið hvatvís og sumar setningar sem þú segir geta hreinlega sært sjálfan þig vegna þess að þú ert svo hreinskilinn og það eru ekki allir sem vilja heyra það sem þér finnst. Slepptu því bara stundum að segja skoðanir þínar upp- hátt, elsku ljúfa sál, það mun hjálpa þér að halda jafnvægi og frelsa þig til að líða betur. Takmark þitt næsta mánuðinn er að fyrirgefa og horfa fram hjá því að aðrir séu að gera vitleysur því þú berð ekki ábyrgð á öðrum, bara sjálfum þér. Þú býrð yfir svo segulmagnaðri orku sem færir þér mörg tækifæri; þú þarft að velja þér vinnu þar sem þú ert mikið í kringum annað fólk og vinnu- staðurinn eða skólinn er skemmtilegur. Ef þú kæmir heim til mín, elskan mín, þá eru speglar úti um allt, svo speglaðu upp heimili þitt og farðu að tala fallega við þig því það mun breyta svörtu í hvítt. Ferðalög eru fram undan Elsku Fiskurinn minn, andlegra merki er ekki hægt að finna, það er svo mikið og stórbrotið listrænt eðli og orka í karakternum þínum. Næstu þrjá mánuði ertu að fara inn í svo merkilega tíma, en þú þarft sjálfur að nálgast það fólk sem þér finnst geta breytt lífi þínu. Þú átt ekki að bíða eftir breytingum heldur hefurðu kraftinn núna til að gera breytingar með því að vera ákveðinn og vaða í gegnum skaflinn. Alls ekki treysta á neitt eða neinn nema sjálfan þig til þess að breyta lífi þínu svo þú sjáir að þú hefur nákvæmlega núna þann dásamlega kraft til að breyta þínum eigin örlögum. Það er mikið um ferðalög fram undan. Þessi ferðalög eiga eftir að gefa þér eitthvað sérstakt og þú verður ríkari í hjarta þínu. Það er svo mikilvægt fyrir þig, elskan mín, að eiga sálufélaga, en stundum þarftu bara að viðurkenna að þú ert þinn besti sálufélagi, en ert tilbúinn að leyfa einhverjum sem dýrkar þig að koma inn. Orka þín til að elska er mjög sterk yfir næstu 3- 4 mánuði. Spáin gildir fyrir febrúar Lengri útgáfa af stjörnuspá á visir.is/SiggaKling Febrúarspá Siggu Kling 21. mars–19. apríl Hrúturinn 20. apríl–20. maí Nautið 21. maí–20. júní Tvíburinn Krabbinn 23. júlí–22. ágúst Ljónið 23. ágúst–22. september Meyjan 23. september–22. október Vogin 23. október–21. nóvember Sporðdrekinn 22. nóvember–21. desember Bogmaðurinn 22. desember–19. janúar Steingeitin 20. janúar–18. febrúar Vatnsberinn 21. júní–22. júlí 19. febrúar–20. mars Fiskarnir Spáin birtist fyrsta föstudag hvers mánaðar. 2 . f e b r ú a r 2 0 1 8 f Ö S T U D a G U r34 l í f i ð ∙ f r É T T a b l a ð i ð Lífið 0 2 -0 2 -2 0 1 8 0 4 :3 3 F B 0 4 8 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E E 2 -4 C 1 8 1 E E 2 -4 A D C 1 E E 2 -4 9 A 0 1 E E 2 -4 8 6 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 4 8 s _ 1 _ 2 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.