Víkurfréttir - 20.05.2004, Síða 6
6 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
➤ Sauðburður í Grindavík að taka enda:
Kallinn
á kassanum
JÓNSI ER FRÁBÆR! Kallinn er gíf-
urlega ánægður með frammistöðu
hans í Evróvision Söngvakeppninni.
Á hverju ári fylgist Kallinn spenntur
með keppninni og það er alltaf jafn
gaman hjá honum. Síðustu 12 árin
hefur Kallinn alltaf grillað rétt áður
en keppnin hefst og fengið íshrist-
ing í eftirmat. Gott kaffi á eftir hefur
ekki spillt kvöldinu. Jónsi - til ham-
ingju!
KNATTSPYRNUDEILD Keflavíkur
gerði góða ferð til Akureyrar þar
sem þeir unnu KA 2-1. Kallinn er
einn helsti stuðningsmaður Kefla-
víkur, bæði í körfunni og boltanum
og er Kallinn á þeirri skoðun að fót-
boltadrengirnir hafi sjaldan verið í
eins góðu formi. Það verður veru-
lega spennandi að fylgjast með
þeim og Kallinn spáir þeim 5 efstu
sætunum.
NJARÐVÍKINGAR gerðu líka góða
hluti þegar þeir gjörsamlega rass-
skelltu Breiðablik. Kannski kemur
að því að Njarðvíkingar og Keflvík-
ingar spili saman í úrvalsdeildinni -
þó Kallinn efist kannski um það.
HEFUR EINHVER heyrt um frekari
uppsagnir á Keflavíkurflugvelli? Kall-
inn hefur verið að heyra sögur og
fengið eitthvað af pósti um fyrirhug-
aðar uppsagnir. Hafið samband!
Netfang Kallsins er kallinn@vf.is
„ ú kemur tíu mínútum of seint
væni minn,“ sagði Guðjón þegar
Víkurfréttir litu við í fjárhúsun-
um í Vík. „ Hún var tvílembd
blessunin,“ sagði Guðjón um leið
og hann tók lömbin upp og færði
þau nær mömmu sinni. au voru
hálf völt á fótunum og þeim var
kalt, enda ekki nema nokkrar
mínútur síðan þau voru í hl ju
legi móðurinnar. En lömbin eru
ótrúlega fljót að koma sér á lapp-
irnar og sömuleiðis eru þau ekki
lengi að finna spena mömmunn-
ar sem reynir að leiðbeina krílun-
um.
„ Já, svona komdu nú,“ sagði
Guðjón og hélt á lömbunum inn í
hlöðuna þar sem átti að setja þau
og mömmuna í stíu. „ að er ör-
uggara að hafa þau hér.“
Hinn kunni Grindvíkingur Dag-
bjartur Einarsson á fimm ær og
einn gemling í húsinu. „ Maður er
ekki í þessu út af hagnaðinum,
það er alveg á hreinu,“ sagði
Dagbjartur og hló um leið og
hann steig inn í stíuna hjá Gránu
sem varð þrílembd í morgun - í
þriðja sinn. „ Já hún er algjör eð-
alkind - það er hún,“ sagði hann
um leið og hann tók lömbin upp.
„ Tvær stelpur og einn strákur.
að verður örugglega alið undan
þér Grána mín,“ sagði Dagbjart-
ur stoltur á svip.
Dagbjartur segist hafa óskaplega
gaman af því að standa í þessum
smábúskap. „ Maður náttúrulega
ólst upp með þessu og þessir
kallar sem eru með fé hér eru í
þessu vegna ánægjunnar. að er
nú ekki svo d rt lambakjötið
maður.“
að fer vel um féð í Vík og
greinilega er vel hugsað um það.
Fyrir utan fjárhúsin er lítið gerði
þar sem kindurnar sem óbornar
eru geta sólað sig. Vinsælasta
ærin í fjárhúsunum er Fríða.
„ Hún er langvinsælust og krakk-
arnir hreinlega d rka hana. egar
þeir koma og heimsækja hana
getur hún verið klukkustundun-
um saman í fanginu á þeim þar
sem krakkarnir klappa henni og
strjúka,“ sagði Guðjón um leið
og hann strauk Fríðu sem leit
annars gæfulegum augum á
blaðamann.
Tvær ær þrílembdar
M esta fjö lgunin í Grindavík á sé r stað í fjá rhú sunum í Vík,vestast í bæ num en ar hó fst sauðburður á dö gunum. Ífjá rhú sunum eru 39 æ r og 8 gemlingar. Guðjó n Þorlá ks-
son á mest af fé nu en alls eru að níu aðilar sem eiga fé í fjá rhú s-
unum.
Guðjón Þorláksson hefur haldið fé í fjárhúsunum í Vík frá árinu 1980, en faðir hans Þorlákur Gíslason
var bóndi í Vík með um 170 ær á tímabili. Hér er Guðjón með lömbin sem komu í heiminn 10 mínút-
um áður en myndirnar voru teknar.
Dagbjartur heldur á þremur lömbum sem Grána bar. Þetta er í þriðja
sinn sem hún er þrílembd.
Ráðist á mann um hábjartan dag í Sandgerði
■ Ráðist var á mann um fimmleytið í Sandgerði á föstudag. egar
lögreglumenn komu á staðinn voru árásarmennirnir á brott en þeir
voru síðar stöðvaðir á Reykjanesbraut þar sem rætt var við þá. Var
síma og gleraugum meðal annars stolið af manninum en munirnir
fundust í Sandgerði. Maðurinn hlaut minniháttar áverka.
Hundruð lítra af olíu láku í Grindavíkurhöfn
■ Nokkur hundruð lítrar af olíu láku í Grindavíkurhöfn á fimmtu-
dagskvöld. Verið var að dæla gasolíu á Tjaldanes GK-525 þegar
óhappið varð. Talið er að olían hafi lekið gegnum yfirfallsrör þegar
verið var að dæla á dagtanka skipsins.
Olíufnykur fannst við höfnina en talið er að olían hafi lekið í sjóinn í
um klukkustund. Hafnarvörður hjá Grindavíkurhöfn tilkynnti um mál-
ið til lögreglunnar í Keflavík sem síðan tilkynnti það heilbrigðiseftir-
liti.
Kona féll af hestbaki í Vogum
■ Kona datt af hestbaki er hestur sem hún sat fældist vegna mótor-
hjóls sem ók í námunda konunnar. Atburðurinn varð við hesthúsa-
byggð í nágrenni Voga á Vatnsleysuströnd á föstudagskvöld. Lögregla
og sjúkralið voru kölluð á staðinn og var hún flutt á Heilbrigðisstofnun
Suðurnesja til skoðunar.
Varnarliðið stelur staurum á merktri bifreið
■ Í fyrradag var tilkynnt um að varnarliðsmenn væru að taka tré-
staura við Háabjalla. Voru mennirnir á varnarliðsbifreið. Hafði lög-
reglan á Keflavíkurflugvelli upp á bifreiðinni skömmu síðar og þeim
aðilum sem þarna voru að verki. Viðurkenndu varnarliðsmennirnir
verknaðinn en kváðust halda að þeim hafi verið þetta heimilt. Ekki er
vitað hvað varnarliðsmennirnir hafi ætlað sér að gera við tréstaurana.
N Ý J U ST U F R É T T I R Á V F. I S
21. tbl. 2004 umbrot 18.5.2004 13:17 Page 6