Víkurfréttir - 20.05.2004, Síða 10
BÆTIEFNIÐ SPÍRUR
Fallegur gylltur litur og mildur hnetukeimur tekurá móti manni þegar opnuð er flaska af hö r-fræolíu. essi afurð náttú runnar er okkur lífs-
nauðsynleg þar sem hú n hefur að geyma ré tta sam-
setningu á hollum fjö lómettuðum fitus rum, þ.e.
omega 3 og omega 6.
Þessar fitusýrur verðum við að fá úr fæðunni þar sem
við getum ekki framleitt þær en hver einasta fruma líka-
mans þarf á þeim að halda til þess að starfa eðlilega.
Hörfræolían inniheldur m.a. ýmis steinefni og vítamín
s.s. fosfór, magnesíum, kalíum, kalk, sínk, járn, E
vítamín (í miklu magni), betakarótín, B1, B2, og C
vítamín. Einnig hafa fundist um 27 krabbameins- ham-
landi efni í hörfræjum.
Bæði omega 3 og 6 gegna mikilvægu hlutverki í að
koma jafnvægi á og mynda prostaglandína (PGE3 og
PGE1) sem eru hormónalík efni sem taka m.a. þátt í
æxlun, ónæmissvörun, bólgum, útvíkkun slagæða og
efnaskiptum frumnanna. Þessar fitusýrur geta hjálpað
okkur að minnka of mikið magn blóðfitu s.s. slæmt
kólesteról (LDL) og tríglýseríð fitusýrur, halda æðunum
mjúkum og koma í veg fyrir blóðsegamyndun með því
að stöðva of mikla myndun á thromboxín. Þær eru því
þörf viðbót í ýmsum hjarta- og æðasjúkdómum, s.s. of
háum blóðþrýstingi, hjartaöng, og kransæðastíflum.
Tauga- og hormónakerfi þurfa einnig sinn skerf af
fitusýrum en heilinn samanstendur t.d. af um 60% fitu-
magni! Húð okkar þarf einnig verulegt magn af
fitusýrum til þess að haldast mjúk og er hörfræolían
mikið notuð í meðferð á exemi og psoríasis. Önnur til-
felli þar sem hörfræolían getur hjálpað er t.d. við
hægðatregðu og bólgusjúkdómum í meltingarvegi,
ásamt fleiru.
Hörfræolían endist aðeins í um 6 vikur eftir opnun og
verður að geymast í kæli eða frysti til að koma í veg
fyrir þránun. Hæfilegur dagskammtur er 1 msk fyrir mat
eða 2 msk ef um kvilla er að ræða (1 á morgnana, 1 á
kvöldin). Gott er að nota hana í næringardrykki (sjeika),
í salat dressingar, hella yfir gufusoðið grænmeti eða
hýðishrísgrjón.
u m s j ó n : a s d í s r a g n a e i n a r s d ó t t i r
h e i l s a @ v f . i s
1. Nafn?
Haraldur Magnússon
B.Sc. (hons)
2. Starf?
Osteópati, sem hefur verið þýtt á
íslensku sem hrygg- og
liðskekkjufræðingur.
3. Hvað er osteópati og hvernig
starfar þú?
Osteópati er 4-5 ára háskólanám sem endar með B.Sc.
(hons) gráðu og er í sambland hefðbundin læknisfræði
og óhefðbundin meðhöndlunarfræði. Segja má að við
störfum eins og hefðbundinn læknir sem hefur nægan
tíma til að greina líkamlega vandamálið og athuga hvort
það sé viðeigandi fyrir meðhöndlun og svo notum við
margskonar aðferðir til að vinna á því eins og nudd,
hnykki og teygjur auk margra annarra aðferða. Einnig
hef ég menntað mig á sviði æfinga og næringu til að
styrkja meðferðina.
Osteópatía er sérhæfð til að leysa líkamleg sársauka-
vandamál, ef einhver óskar eftir að fara í nudd til að
slappa af þá er það ekki fyrir okkur.
Svo til gamans þá er ég fara til Belgíu í mánuðinum að
nema meðhöndlunarfræði sem ég er búinn að vera fylg-
jast lengi með sem hefur það orðspor á sér að vera öfl-
ugusta aðferðin til að vinna á vefjagigt sem til er í dag.
4. Hvernig hugsar þú um líkamann?
Ég reyni að halda mér í formi og velja frekar næringar-
ríkari mat en tilbúinn skyndibita- eða pakkamat.
5. Uppáhaldsheilsumatur?
Hvað er heilsumatur? Mér líður best af venjulegum
próteinríkum heimilismat og ef ég fer út að borða þá
verða annað hvort nautalundir í hrárri kantinum með
salati fyrir valinu eða fiskur. Ég takmarka mikil kolvetni,
sykur og hveiti og ekki séns að transfitusýrur, MSG (þrið-
ja kryddið) og aspartam (sætuefni) fái að koma inn fyrir
mínar varir.
6. Hvernig nærir þú sálina?
Reyni að vera í sátt við hlutina í kringum mig.
7. Hvernig slakar þú á?
Fara upp í sumarbústað með áhugaverða bók, safaríka
nautasteik og Rioja rauðvín. Sem gerist því miður alltof
sjaldan.
8. Hvað kemur þér í gott skap?
Létt stund í góðra vina hópi.
9. Hvað hvetur þig áfram?
Mig langar að vita „svarið“ við því af hverju svona mikil
heilsufarsleg og líkamleg vandamál herja á nútíma-man-
ninn. Það líður varla sá dagur sem ég les ekki eitt-hvað
varðandi líkamann og svo fer ég reglulega út á námskeið
til að komast nær svarinu og verða betri í starfi.
10. Hvar finnst þér best að vera?
Heima er best, sérstaklega ef Díana er heima.
11. Hollráð?
Farðu vel með þig andlega og líkamlega, settu sjálfan
þig í forgang.
H E I L S U viðtalið
Spíruð fræ hafa verið notuð frá ö rófi alda alltaftur að 3000 árum fyrir krist og þá notaðar semlyf við msum kvillum. Undanfarin ár hefur áhugi
á spíruðum fræjum aukist til mikilla muna og eru margir
farnir að rækta sínar eigin spírur til matargerðar og heil-
subóta, sem er einmitt það sem þið lærið nú na!
Þetta verður að teljast með einfaldari aðferðum sem
fyrirfinnast því það sem til þarf er eftirfarandi: spírubox,
dagsbirta, stofuhiti, vatn, ýmis fræ/korn/baunir, kærleikur og
umhyggja :). Jafnvel sá sem býr í blokk í miðbænum getur
breytt eldhúsi sínu í lítið gróðurhús með lítilli fyrirhöfn og
fengið nýja uppskeru vikulega allt árið um kring.
Fræ/korn/baunir eru sett í glerkrukku að kvöldi og látið
standa yfir nótt, skolað morguninn eftir og sett í spírubox.
Fræin eru skoluð morgna og kvölds 30 sek í senn þangað til
spírurnar eru orðnar grænar og spengilegar (misjafnt eftir
tegund en oftast milli 5-10 dagar). Lokið á spíruboxinu er
tekið af á ca 3 degi til að hleypa sólarljósi inn til að mynda
blaðgrænu. Gott er að fjarlægja hýðið með því að skella
þeim í stóra plastskál fulla af vatni, spírurnar falla á botninn
og hýðið flýtur á yfirborðinu. Hýðið veitt af og vatnið hrist af
spírunum og þær loks settar í box með þéttu loki, inn í
ísskáp og tilbúnar til notkunar (geymast í 1-1 1/2 viku).
Engin mold, skordýraeitur, pöddur, eða illgresi!!!
Spírun er ákaflega merkilegt ferli en við það að spíra fræ
losnar úr læðingi gríðarleg orka þar sem mikil efnaskipti
eiga sér stað innan fræsins. Öll næringarefni margfaldast og
brotna niður í auðmeltanlegt form, kolvetni breytast í ein-
sykrur, prótein í amínó sýrur, og fitur í fitusýrur. Ensímvirkni
nær hámarki á 2 til 7 degi spírunar, en spírur veita okkur
þetta mikla magn af lifandi ensímum til viðhalds og
viðgerðar í hinum ýmsum líffærakerfum, ekki síst mikilvægt
þegar nútíma mataræði okkar er nánast snautt af ensímum
og næringarefnum.
Endilega verið dugleg að prófa ykkur áfram með því að
spíra ýmsar tegundir fræja, korns og bauna, s.s. alfalfa fræ,
linsubaunir, sólblóma/graskersfræ, kjúklingabaunir, mung
baunir o.fl. Spírun er mjög ódýr leið til þess að fá sneisafulla
lifandi fæðu þar sem fræin margfalda þyngd sína. Spírunar
má síðan nota í staðinn fyrir kál eða út í salat, á brauð, í
næringardrykki (sjeika), í brauðbakstur, léttsteikt með græn-
meti, eða bara hreinlega sem snarl milli mála!
ATH! Stundum spírast ekkert ef maður er ekki með lífrænt
hráefni. (Spírubox og lífræn alfalfa fræ nú fáanleg í
Samkaupum Njarðvík). Gangi ykkur vel og njótið.
JURTIN
UPPSKRIFTIN
SPEKI MÁ NA ARINS: „Ef þú gefur sjál-
fum þér aldrei þá gjöf að hlusta á þögnina, þá
ferðu á mis við þá reynslu að tala við sál þína“.
Haraldur Magnú sson starfar að
Hafnargö tu 35, Keflavík.
Uppl singar og tímapantanir: 846 3380.
Klóelfting (Equisetum arvense):
N ttir plö ntuhlutar: Öll jurtin, að rótinni
undanskilinni.
Sö fnun: Á vorin.
Á hrif: Samandragandi, örvar blóðstorknun,
vatnslosandi, styrkjandi og græðandi fyrir lungu,
nýru og liði, bólgueyðandi, hreinsandi (fjar-
lægir ýmis eiturefni úr líkamanum s.s.
þungamálma).
Notkun: Blæðingar innvortis sem útvortis,
bjúgur, þvagblöðru- og nýrnasjúkdómar, illa
gróin sár (blæðandi), legslímuflakk, bólgur í legi
og eggjastokkum.
Alveg einstaklega næringaríkur drykkur
(sjeik) sem hleður okkur dýrindins orku fyrir
annasaman dag.
2 dl möndlumjólk / sojamjólk / hrísgrjóna-
mjólk
2 dl spírur (t.d. alfalfa / mung / kjúklinga-
baunaspírur)
1 msk hörfræolía
1/2 avokadó
1/2 banani
1 msk carobduft (gefur súkkulaðibragð!)
smá engifer krydd og cayenne pipar
Aðferð: öllu blandað saman í 30 sek, nema
banana og avokadó sem bætt er út í síðast
þangað til kekkjalaust.
Græna próteinbomban
Hörfræolía:
21. tbl. 2004 umbrot 18.5.2004 13:32 Page 10