Víkurfréttir


Víkurfréttir - 06.04.2017, Blaðsíða 1

Víkurfréttir - 06.04.2017, Blaðsíða 1
„Það er jákvætt að Alþingi skuli taka þetta mál upp. Það sýnir að lætin í okkur hafa skilað sér,“ sagði Dagný Halla Ágústsdóttir, íbúi í Reykjanesbæ í gær, eftir fund Umhverfis- og sam- göngunefndar Alþingis um mengun frá United Silicon. Á fundinum voru málefni kísilverksmiðjunnar rædd frá ýmsum hliðum og sátu fyrir svörum nefndarinnar þau Björt Ólafsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra, Helgi Þórhallsson, forstjóri United Silicon, Sigrún Ágústsdóttir, sviðs- stjóri hjá Umhverfisstofnun, Þórólfur Júlían Dagsson, fulltrúi íbúa og Frið- jón Einarsson, formaður bæjarráðs Reykjanesbæjar. Kísilverksmiðjan tók til starfa um miðjan nóvember síðastliðinn og síðan þá hafa íbúar í næsta nágrenni sumir hverjir fundið fyrir óþægindum í öndunarvegi vegna mengunar. Þór- ólfur Júlían sagði á fundinum að ljóst væri að svæðið henti engan veginn undir stóriðju. Keflavíkurflugvöllur sé í næsta nágrenni, fjöldinn allur af bíla- leigum og gríðarleg bílaumferð um Reykjanesbraut. „Við viljum að verk- smiðjunni verði lokað. Mér heyrist fólk hérna gera sér grein fyrir því að hér hafa verið gert risastór mistök,“ sagði Þórólfur á fundinum. Á næstunni mun óháður aðili gera verkfræðilega úttekt á rekstri og hönnun verksmiðjunnar. Að sögn Helga Þórhallssonar, forstjóra United Silicon, tekur um eitt til tvö ár fyrir rekstur verksmiðju sem þessarar að komast í réttan farveg. Nú er beðið eftir nýrri síu sem minnka á lyktar- mengun og vonast Helgi til að hún komi innan tveggja til þriggja mánaða. Verksmiðjan er staðsett rúmlega kíló- metra frá íbúabyggð og var nálægðin rædd á fundinum í gær. Í máli Sigrún- ar Ágústsdóttur, sviðsstjóra hjá Um- hverfisstofnun kom fram að í reglum um hollustuvernd segir að íbúasvæði skuli ekki vera innan þynningarsvæðis en slíkt er ekki skilgreint í kringum S T Æ R S T A F R É T T A - O G A U G L Ý S I N G A B L A Ð I Ð Á S U Ð U R N E S J U M • fimmtudagurinn 6. apríl 2017 • 14. tölublað • 38. árgangur Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is auðveldar smásendingar eBOX flytur minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Sendingin þín kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt. Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA SMÆRRI SENDINGAR einföld reiknivél á ebox.is F ÍT O N / S ÍA Hafnargötu 20, 230 Reykjanesbær S: 420 4000 Guðlaugur H. Guðlaugsson lögg. fasteignasali Halldór Magnússon lögg. fasteignasali Brynjar Guðlaugsson aðstm. fasteignasala Haraldur Freyr Guðmundsson aðstm. fasteignasala studlaberg@studlaberg.is studlaberg.is Berjast næst í bókasafninu! ■ Keflvíkingar lögðu stjörnum prýtt lið Íslandsmeistara KR í öðrum leik liðanna í undanúrslitum Domino’s deildar- innar í körfubolta karla. Hér sjást þrír af lykilmönnum Keflvíkinga í baráttunni í öðrum leik liðanna í TM höllinni eða Sláturhúsinu í Keflavík sl. mánudag, Magnús Már Traustason reynir skot. Stuðningsmenn Keflvíkinga hafa látið heyra í sér svo um munar og trommað og sungið allan leikinn og meira að segja eftir leiki í úrslitakeppninni. Það hefur hjálpað bítlabæjarliðinu. Þeir munu þó þurfa að láta sönginn duga annað kvöld þegar þeir mæta í Vesturbæinn í þriðja leikinn gegn KR. Íþróttahúsið þar hefur fengið viðurnefnið „Bókasafnið“ því þar má ekki tromma eða slá takt í auglýsingaspjöld. Grindvíkingar eru í góðum málum gegn Stjörnunni og í gærkvöldi var þriðji leikur kvennaliðs Keflavíkur gegn Skallagrími í undanúrslitum kvenna. Nánar á bls. 23. VF-mynd/pket. Ekki meiri stóriðja í Helguvík ●● Bæjarstjórn● Reykjanesbæjar● bannar●frekari● mengandi●starfsemi ■ Bæjarstjórn Reykjane sbæjar sam- þykkti á fundi sínum í gær að banna frekari mengandi stóriðnað í sveita- félaginu. Samþykkt var nýtt aðal- skipulag þar sem gerðar eru tals- verðar breytingar á iðnaðarsvæðinu við Helguvík. „Við höfum stigið það skref að minnka þetta verulega og læra kannski af reynslunni, við hefðum kannski átt að bregaðst fyrr við,“ sagði Friðjón Einarsson formaður bæjarráðs á fundi Umhverfis- og samgöngunefndar Al- þingis um málefni United Silicon í morgun. Nú þegar hafa þrjú fyrirtæki fengið leyfi til stóriðju á svæðinu. Auk kísil- verksmiðju United silicon þá er fyrir- hugað að Thorsil reisi samskonar verksmiðju í Helguvík. Norðurál hefur svo leyfi fyrir álveri sem talið er ólíklegt að muni taka til starfa. Fjarlægja annan hvern staur við Reykjanesbraut ■ Vegagerðin vinnur nú að því að fjarlægja annan hvern ljósastaur við Reykjanesbraut en slökkt hefur verið á þeim undanfarin ár. Sam- kvæmt upplýsingum frá Vegagerð- inni verða ljósastaurar við gatna- mót ekki fjarlægðir. Þá hefur verið ákveðið byrja á því næsta sumar að skipta út þeim staurum sem eftir verða og setja upp aðra betri, vott- aða staura. Nálægð við íbúabyggð umhugsunarefni ●● Umhverfisráðherra●segir●áhyggjuefni●að●mengun●í●Helguvík●muni●væntanlega● aukast●með●fleiri●verksmiðjum● Umhverfis-●og●samgöngunefnd●Alþingis● fundaði●um●mengun●frá●United●Silicon kísilverksmiðjuna. Þynningarsvæði þýðir að mengun má fara yfir mörk. Sigrún sagði návígið við íbúabyggð umhugsunarefni. „Þetta var áhyggju- efni í ferlinu og það var bent á það. Þetta er eitthvað fyrir okkur að hugsa um,“ sagði Sigrún. Björt Ólafsdóttir, umhverfisráðherra, tók undir með Sigrúnu og sagði fulla ástæðu til að endurskoða reglur um fjarlægð á milli stóriðjusvæða og íbúabyggða. „Væntanlega mun íbúabyggðin stækka og mengun aukast á svæðinu enda eru uppi áform um fleiri verksmiðjur þar. Þetta er því gríðarlegt áhyggjuefni,“ sagði umhverfisráðherra. Frá fundi Umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis í gær. Frá hægri á myndinni má sjá Helga Þórhallsson, forstjóra United Silicon, Sigrúnu Ágústsdóttur, sviðs- stjóra hjá Umhverfisstofnun, Björt Ólafsdóttur, umhverfis- og auðlindaráðherra, Friðjón Einarsson, formann bæjarráðs Reykjanesbæjar og Þórólf Júlían Dagsson, fulltrúa íbúa. VF-mynd/dagnyhulda

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.