Víkurfréttir


Víkurfréttir - 06.04.2017, Blaðsíða 18

Víkurfréttir - 06.04.2017, Blaðsíða 18
18 fimmtudagur 6. apríl 2017VÍKURFRÉTTIR Íslenskir aðalverktakar óska eftir dugmiklu starfsfólki í eftirfarandi störf : · Rafvirkja · Pípara · Smiði · Verkamenn Um er að ræða skemmtilegt og fjölbreytt starf í þjónustu, viðhalds og nýframkvæmdum á Suðurnesjum. Upplýsingar veitir Einar Ragnarsson í síma 414 4313 eða í tölvupósti einar.ragnarsson@iav.is ATVINNA Þá ert þú búinn að kveðja kæri vinur, leiðtogi og sannur KFK félagi. Það er afar margs að minnast þegar litið er yfir farinn veg en það sem alltaf stendur hæst í minningu um þig kæri vinur er öryggið sem við KFK krakk- arnir höfðum í þá gömlu góðu þegar þú varst alltaf til staðar. Við þurftum ekki að hafa neinar áhyggjur því þú gast leyst alla hluti fyrir okkur. Það voru ekki nein vandamál, það voru bara lausnir. Þú áttir alltaf tíma fyrir okkur. Traustari vin en þig er ekki hægt að finna. Eins og áður segir er svo margs að minnast og fór ég yfir marga þá hluti í ræðu minni í stórafmælinu þínu sem haldið var í Stapanum þar sem við KFK fólkið þitt og fleira gott fólk var samankomið til að fagna með þér deg- inum þínum góða. Ég gleymi aldrei innkomu þinni þar sem þú stóðst og horfðir á hópinn þinn samankominn, steigst svo í pontu og sagðir: „Ég hélt ég væri gleymdur, samt ekki dauður en hér eruð þið öll.“ Svo fylgdi glottið góða í kjölfarið. Það var svo margt brallað og hver man ekki eftir Selfoss ferðunum á Föstu- daginn langa. Þvílíkur dagur sem við upplifðum árlega á þessum góðu árum. Ég man að við Ingó og Jói Júl tókum alltaf mjög ríflegan skammt af nesti með okkur til að selja eldri strák- unum sem þóttust of gamlir til að taka með sér nesti. Það var mikið prúttað og ávallt sátum við snauðir eftir og þurfti Siggi oftar en ekki að skerast í málið svo við tækjum gleði okkar fljótt aftur. Það var aðeins einn leikmaður sem ávallt komst upp með að snuða okkur en þeim ljúfling var alltaf fyrir- gefið enda uppáhaldið okkar allra. Í minni fyrstu Selfoss ferð var um jafn- an leik að ræða, 1-1 þegar skammt var til leiksloka. Ég næ þá í vítaspyrnu en þegar kom að framkvæmd þá var ég eilítið stressaður enda ekki tekið víta- spyrnu í kappleik áður. Í kjölfar víta- spyrnunnar var leikurinn stoppaður þar sem huga þurfti að einum leik- manni Selfoss og notaðir þú tækifærið og sagðir mér að skjóta bara uppi því markvörðurinn var lágvaxinn. Þegar hins vegar kom að spyrnunni þá fannst mér öruggast að skjóta niðri og fórst það vel úr hendi og sigurinn í höfn. Eftir leikinn var ógurlegur fögnuður hjá okkur og með þetta veganesti var haldið út í rútu og nú yrðum við ekki snuðaðir aftur slíkt var sjálfstraustið sem við öðluðumst. En þá birtist Siggi. „Jón Óli ég sagði þér að skjóta uppi,“ sagði karlinn í grimmum tón sem við þekkjum öll. Ég leit hálf hræddur á Sigga en þegar ég sá þetta góðlátlega glott gerði ég mér grein fyrir því að hann var í raun að hrósa mér. Já, Siggi virkaði stundum grimmur en það var bara hans húmor í góð- mennskunni. Ég fór bara í eina Siglufjarðar ferð og er hún ávallt rædd í þau fáu skipti þegar við KFK strákar hittumst. Eins og ég sagði í ræðu minni í af- mælinu góða þá kenndi Siggi manni margt. Eitt af því var að vera hollur sínu félagi. Ég datt aðeins af leið einn daginn og ákvað að fara í Ungó. Þegar ég kom heim úr skólanum biðu mín skilaboð að ég ætti að hringja í Sigga Steindórs í síma 2373. En slík var virð- ing mín við Sigga að ég ákvað frekar að hlaupa niður eftir til hans. Eftir stuttan tíma og „þrumuræðu“ snérist mér að sjálfsögðu hugur og bragðaðist kakóið hennar Sigríðar á eftir einstak- lega vel. Ég og Krissi Geirs vinur minn rifj- uðum upp á dánardegi þínum tímann þegar við fengum að vera á vallar- klukkunni á meistaraflokksleikjum. Þetta fannst okkur á sínum tíma vera þvílíkur heiður því margir vildu kom- ast að. Þetta var einstaklega gefandi starf, færa stóra vísi á 5 mínútna fresti og þegar mark kom í leikinn færðum við það inn. Ég hef ávallt verið mikið fyrir að fíflast í fólki en þarna passaði maður sig á því að halda einbeitingu allan tímann enda undir vökulum augum þínum. Fyrir frammistöðuna fengum við að sjálfsögðu nokkrar Freyju karamellur fyrir vel unnin störf. Fyrir leik mættum við strákarnir allt- af snemma til að sjá þig meðhöndla menn undir „rauða lampanum“, þetta þótti okkur mikil vísindi og hlakkaði okkur einhver ósköp til að komast í meistaraflokk til að fá að fara undir „rauða lampann“. Þá rifjast einnig upp víðavangshlaupin góðu þar sem maður keyrði sig algjör- lega út til að vinna fyrir KFK. Einu hlaupinu man ég sérstaklega eftir en þá var ég í fjórða sæti, skammt í næsta mann og lítið eftir af hlaupinu er Malli kom æðandi á móti mér og kallaði á mig að Jói Magg væri að vinna og ég yrði að ná 3. sæti til að við myndum vinna bikarinn. Góður Guð, það tókst en ég hélt að ég myndi ekki lifa það af. Ef ekki hefði verið fyrir ævintýralegan svip Malla þegar hann kallaði á mig hefði þetta ekki tekist. Já, félagshollustan var mikil í þessa daga og held ég að ég megi mæla fyrir munn okkar allra að KFK verður alltaf í hávegum haft hjá okkur. Kæri vinur, nú fetar þú nýjar slóðir og gerir allt klárt fyrir okkur hina. Þú kannski færð Ragga Margeirs með þér að merkja malarvöllinn svo hægt verði að setja upp leik. Og kannski eitt enn, þú mátt líka minna Ragga á það að hann skuldar okkur Ingó og Jóa Júl nokkrar sam- lokur og kótilettur síðan úr Selfoss ferðunum. Elsku Siggi þakka þér allt það sem þú gafst af þér til okkar. Sigurður Steindórsson, þín verður ávallt minnst sem stórmennis. Hvíl í friði, Jón Óli, Vestmannaeyjum Minningarorð um Sigurð Steindórsson Við erum að leita eftir Matráð, matsveini eða miklum reynslubolta í eldhúsið hjá okkur í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Vaktakerfi 2 2 3, vaktirnar eru frá kl. 09:00 -21:00 Einnig erum við að leita eftir góðu aðstoðar fólki í eldhús og sal 12 tíma vaktir frá kl. 09:00 -21:00 aðra hverja helgi. Upplýsingar um störfin gefur Elín Bogga gsm 660 9350 Áhugasamir sendi umsókn og ferilskrá á netfangið elinbogga@iss.is. Umsóknarfrestur er til 19. apríl. ATVINNA MAT ASKUR MAT ASKUR MAT ASKUR Bæjarstjórn Sandgerðisbæjar auglýsir hér með tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hólahverfis - suður í Sandgerðisbæ samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin felst í því að við götuna Fagurhól verða byggð lítil raðhús í stað parhúsa. Rað- húsalengjurnar verða 4 með 3 íbúðum og 4 með 4 íbúðum þannig að heildar íbúðarmagn við götuna fer úr 16 íbúðum í 28. Ekki er gert ráð fyrir bílgeymslum í raðhúsunum. Áfram er gert ráð fyrir 12 einbýlishúsalóðum við Þinghól. Heildar íbúðarmagn í Hólahverfi – suður verður því 40 íbúðir. Breytingartillagan verður til sýnis á bæjarskrifstofu Sandgerðisbæjar, Vörðunni, Miðnestorgi 3 frá og með fimmtudeginum 6. apríl til og með fimmtudeginum 18. maí 2017. Tillagan er einnig aðgengileg á vef Sandgerðisbæjar, www.sandgerdi.is. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna. Frestur til þess að skila inn athugasemdum rennur út fimmtudaginn 18. maí 2017. Skila skal inn skriflegum athugasemdum á bæjarskrifstofu Sandgerðisbæjar, Vörðunni, Miðnestorgi 3. Sandgerðisbæ 5. apríl 2017 Skipulagsfulltrúi Sandgerðisbæjar TILLAGA AÐ BREYTINGU Á DEILISKIPULAGI HÓLAHVERFIS-SUÐUR Í SANDGERÐISBÆ DEILISKIPULAG AUGLÝSING um deiliskipulag íbúðabyggðar fyrir Aragerði 4 í Sveitarfélaginu Vogum Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga samþykkti þann 29. mars 2017, skv. 2. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, lýsingu fyrir fyrirhugaða vinnu við deiliskipulags fyrir Aragerði 4 vegna áforma um byggingu lítils fjölbýlishúss. Lýsingin er sett fram í greinargerð og má nálgast hana á heimasíðu sveitarfélagsins www.vogar.is. Hún liggur einnig frammi á skrifstofu sveitarfélagsins að Iðndal 2,  190 Vogum. Skriflegum ábendingum við efni lýsingarinnar má skila til skrifstofu Sveitarfélagsins Voga, Iðndal 2,  190 Vogum, eða á netfangið skrifstofa@vogar.is fyrir 24. apríl 2017 fh. Bæjarstjórnar Ásgeir Eiríksson, bæjarstjóri

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.