Víkurfréttir


Víkurfréttir - 06.04.2017, Blaðsíða 12

Víkurfréttir - 06.04.2017, Blaðsíða 12
12 fimmtudagur 6. apríl 2017VÍKURFRÉTTIR Sólborg Guðbrandsdóttir solborg@vf.is Næstkomandi laugardag liggur leið Ellerts til Berlínar í Þýskalandi þar sem hann verður í skiptinámi í sumar. Valið stóð á milli tveggja skóla, en Ell- ert fékk inngöngu í þá báða. „Ég verð í skóla í allt sumar og kem svo heim í haust og byrja strax á þriðja árinu mínu í arkitektúr hérna heima. Það er engin pása,“ segir hann. Í vetur vann Ellert hjá KRADS arki- tektum, hjá strákum sem höfðu áður kennt honum. Þar vann hann nokkur verkefni í módelsmíðum og gerð á þrívíddar teikningum. Í tengslum við Hönnunarmars var Ellert svo beðinn um að gera módel af einu verkefni, sem endaði síðan með því að hann gerði módel fyrir þrjú verkefni. En verkefnin tengd Hönnunarmars eru hluti sýningar, sem verður í Ráðhús- inu í Reykjavík næstu tvö árin í það minnsta og sýnir almenningi svolítið hvað sé að gerast og hvað muni verða. Sýningin inniheldur líkön af nýbygg- ingum sem unnið er að í miðborg Reykjavíkur. Ellert segir verkefnið hafa verið um- fangsmikið og tekið langan tíma en að allt borgi þetta sig. „Maður skapar sér tengslanet við arkitektúrstofur og þetta er líka mjög gaman. Ég vissi alveg að þetta yrði mikil vinna en maður reddar þessu.“ Hann segir það klárlega hafa hjálpað að læra húsasmíðina í grunninn. „Þetta blandast allt saman hjá mér; smíðin, arkitektúrinn og þessar list- greinar. Ég tel það góðan grunn að hafa byrjað á því að læra húsasmíði. Það veitir mér forskot í mörgum verk- efnum í náminu.“ Fyrir ári síðan vann Ellert, ásamt þremur öðrum, að verkefni í Öskju- hlíðinni. „Það heppnaðist það vel að Reykjavíkurborg leyfði skúlptúrnum að standa í heilt ár þó að hann hafi upprunalega bara átt að standa í eina viku,“ segir hann. Annað slagið tekur Ellert að sér ýmis önnur verkefni. Hann hannaði meðal annars tvær sviðsmyndir frá grunni fyrir Vox Arena, listaráð Nemenda- félags Fjölbrautaskóla Suðurnesja. „Það voru rosalega skemmtileg verk- efni. Ég hef mjög gaman af því að vera í kringum leik og söng. Svo hef ég líka aðeins starfað fyrir ljósafyrirtæki, við uppsetningu á árshátíðum og tón- leikasviðum til dæmis.“ Frítímann notar Ellert svo í það að elta öldur og hefur gert í nokkur ár. „Við Vilhjálmur, vinur minn, byrjuðum í þessu en vissum í raun ekkert út í hvað við vorum að fara. Í dag erum við búnir að fara í tvær utanlandsferðir til að sörfa. Maður verður heltekinn af þessu. Það er svo gott að komast frá öllu þessu stressi, skilja símann eftir og vera án allra tengsla í smá tíma.“ Aðspurður um framtíðina segist Ellert stefna að því að ná sér í smá starfs- reynslu og fara svo í mastersnám. „Draumurinn er náttúrulega að opna mína eigin stofu, líklegast á Íslandi og að hanna og smíða mitt eigið hús. En það getur svo sem breyst.“ HÚSASMÍÐIN VEITIR MÉR FORSKOT ●● Ellert●Björn●uppfyllir●draum●sinn●● um●að●verða●arkitekt Ellert Björn Ómarsson dreymdi um það frá tíu ára aldri að læra arki- tektúr og lét drauminn rætast eftir að hafa lokið námi í húsasmíði frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja.Hann er nú á öðru ári í námi í arkitektúr við Listaháskóla Íslands. „Ég útskrifaðist með sveinspróf í húsasmíði árið 2014 og bætti svo við mig stúdentsprófi. Ég valdi svo að taka áfanga eins og myndlist sem myndu svo nýtast mér í umsókninni í Listaháskól- anum,“ segir hann. Ellert á Gran Canary. Reykjavíkurborg leyfði skúlptúrnum að standa í heilt ár í Öskjuhlíðinni. Hafnartorg. Laugavegur 4 - 6. Vesturbugt.Mögulegt heimili. „Þetta blandast allt saman hjá mér; smíðin, arkitektúrinn og þessar listgreinar. Ég tel það góðan grunn að hafa byrjað á því að læra húsasmíði“

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.