Víkurfréttir - 06.04.2017, Síða 6
6 fimmtudagur 6. apríl 2017VÍKURFRÉTTIR
Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 // Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000 // Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, sími
421 0004, pket@vf.is
Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is // Blaðamenn: Eyþór Sæmundsson, sími 421 0002, eythor@vf.is, Dagný Hulda Erlendsdóttir, sími 421
0002, dagnyhulda@vf.is Auglýsingastjóri: Sigfús Aðalsteinsson, sími 421 0001, fusi@vf.is, // Umbrot og hönnun: Þorsteinn Kristinsson, steini@vf.is, sími 421 0006 //
Afgreiðsla: Dóróthea Jónsdóttir, sími 421 0000, dora@vf.is, Aldís Jónsdóttir, sími 421 0000, aldis@vf.is // Prentvinnsla: Landsprent // Upplag: 9000 eintök. // Dreifing:
Íslandspóstur // Dagleg stafræn útgáfa: www.vf.is og kylfingur.is
Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið fusi@vf.is. Auglýsingar berist fyrir kl. 17 á þriðjudegi fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga fer
fram á vef Víkur-frétta, vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15 á þriðjudögum. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum og þá færist skilafrestur aug-
lýsinga fram um einn sólarhring.
Efni til Víkurfrétta skal sendast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á vef Víkurfrétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða aðsendu greinar birtast í prentaðri útgáfu
blaðsins. Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta.
Málefni kísilvera í Helguvík hafa vissulega verið mál málanna í
Reykjanesbæ að undanförnu og náði nýjum hæðum í vikunni þegar
Alþingi boðaði til fundar um stöðu mála. Þar kom reyndar fátt nýtt
fram en eftir fundinn sögðu tveir aðilar í viðtali við fréttamann VF
(sjáið viðtal á vf.is) sem staðið hafa í framlínu þeirra sem mótmælt
hafa starfsemi kísilvers United Silicon að þrýstingur íbúa hafi skilað
sér og náð eyrum alþingismanna. „Það er jákvætt að Alþingi taki
þetta mál upp. Það sýnir að lætin í okkur hafa skilað sér,“ segir Dagný
Halla Ágústsdóttir, íbúi í Reykjanesbæ en hún sat fundinn ásamt
Þórólfi Júlían Dagssyni fyrir hönd íbúa. Þó svo það hafi verið mikill
meirihluti sem var sammála stóriðju í Helguvík í skoðanakönnun
sem gerð var fyrir um það bil ári síðan er ljóst að stuðningsmönnum
stóriðju þar eða í bæjarfélaginu, hefur fækkað mikið. Og líka í bæjar-
stjórninni því hún samþykkti í vikunni að það yrði ekki samþykkt
frekari stóriðja í Helguvík á þeirra vakt. „Við höfum stigið það skref
að minnka þetta verulega og læra kannski af reynslunni, við hefðum
kannski átt að bregðast fyrr við,“ sagði Friðjón Einarsson formaður
bæjarráðs á fundi Umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis um
málefni United Silicon. Annað sem hefur gerst er að þessi ógangur,
ef svo má segja, í starfsemi United Silicon, hefur m.a. haft áhrif á
fjárfesta og þá sér í lagi forráðamenn stórra lífeyrissjóða sem höfðu
ákveðið í fyrra að setja verulega peninga í Thorsil kísilverið. Þeir
hiksta núna og sagt er að fjármögnun verksmiðjunnar sé komin á
byrjunarreit. Það gæti líklega þýtt að bygging hennar sé í hættu. Það
hefur komið fram í umræðum um málefni í Helguvík að það sé erfitt
að stoppa af mál sem hafa verið samþykkt í bæjarstjórn og íbúar hafi
skellt skollaeyrum við í undirbúningnum, eins og gerðist greinilega í
stóriðjumálum Helguvíkur. Þó seint sé, er þó ljóst að rödd íbúa hefur
áhrif. Þetta ætti líka að vera lærdómur í því og bæjarbúar verða að
vera á tánum þegar stærri mál koma upp og leitað er eftir áliti þeirra
á þeim.
En úr kísilþrasi í skemmtilegri mál. Fréttamenn Víkurfrétta eru stöð-
ugt á þeysingi og í blaði vikunnar er skemmtilegt viðtal við ungan
mann úr Njarðvík, Arnar Stefánsson, en hann gerði sér lítið fyrir og
tók upp myndskeið á símann sinn allt árið 2016, reyndar ekki nema
2 sekúndur á dag af hinum og þessum viðburðum en úr varð magnað
myndband. Þetta er skemmtilegt mál í mannlífinu á Suðurnesjum og
við sýnum þetta líka í Suðurnesjamagasíni vikunnar. En hann er ekki
eini ungi maðurinn í sviðsljósinu hjá okkur því við spjöllum líka við
Ellert Björn Ómarsson, ungan Keflvíking, sem lærði húsasmíði en
skellti sér svo í arkitektúr til viðbótar. Það ku vera ansi skemmtilegt
kombó. Margt fleira áhugavert í miðlum VF í vikunni en við biðjum
fólk endilega að benda okkur á hin margvíslegu mál sem eiga heima
þar.
RÖDD FÓLKSINS HEFUR ÁHRIF
RITSTJÓRNARPISTILL
Páll Ketilsson
Stærðfræðikeppni grunnskólanema
fór fram í Fjölbrautaskóla Suður-
nesja 14. mars síðastliðinn. Þátt-
takendur voru 119 úr öllum grunn-
skólum á Suðurnesjum. Nemendur
mættu í FS klukkan 14:30 og fengu
pizzu og gos. Keppnin sjálf hófst
síðan klukkan 15:00 og stóð til 16:30.
Ragnheiður Gunnarsdóttir stærð-
fræðikennari sem hafði umsjón með
keppninni eins og undanfarin ár.
Verðlaunaafhendingin fór síðan fram
fimmtudaginn 30. mars. Þar mættu
tíu efstu í hverjum árgangi ásamt for-
eldrum sínum, stærðfræðikennurum
og skólastjórnendum grunnskólanna.
Allir sem voru boðaðir fengu viður-
kenningarskjal. Íslandsbanki og
Verkfræðistofa Suðurnesja gáfu verð-
launin.
Verðlaun fyrir fyrsta sæti voru 20.000
krónur, fyrir annað sætið 15.000
krónur og 10.000 krónur fyrir það
þriðja. Að auki fengu þrír efstu í 10.
bekk grafiskan vasareikni frá Verk-
fræðistofu Suðurnesja.
Flensborgarskólinn hélt fyrst stærð-
fræðikeppnir fyrir grunnskólanema
vorið 1996 og síðan hafa fleiri fram-
haldsskólar bæst við. Tveir háskóla-
nemar í stærðfræði sömdu dæmin
sem voru lögð voru fyrir í keppninni.
Tilgangurinn með keppninni er að
auka samstarf við grunnskólana og
efla áhuga nemenda á stærðfræði.
Verðlaunahafar í Stærðfræðikeppni grunnskólanna við verðlaunaafhendingu.
Verðlaun veitt í Stærðfræðikeppni grunnskólanna
●● Tilgangur●keppninnar●meðal●annars●að●efla●áhuga●nemenda●á●stærðfræði
Í 8. bekk voru eftirtaldir í þremur
efstu sætum en þar voru
þátttakendur 56.
1. sæti var
Stefán Ingi Víðisson,
Heiðarskóla
2. sæti var
Eyþór Ingi Einarsson,
Gerðaskóla
3. sæti var
Alexander Viðar Garðarsson,
Myllubakkaskóla
Í 9. bekk voru eftirtaldir í þremur
efstu sætum en þar voru
þátttakendur 38.
Jafnar í 1. til 2. sæti voru
systurnar Guðbjörg Viðja Péturs-
dóttir og Sigurbjörg Erla Péturs-
dóttir úr Stóru-Vogaskóla
3. sæti var
Birgitta Rós Ásgrímsdóttir,
Heiðarskóla
Í 10. bekk voru eftirtaldir í efstu
sætum en þar voru
þátttakendur 25.
1. sæti var
Glóey Hannah,
Holtaskóla.
2. sæti var
Ólafur Þór Gunnarsson,
Holtaskóla
3. sæti var
Bergur Daði Ágústsson, Heiðarskóla
Tíndu rusl á
skólalóðinni
■ Þrír ungir drengir í 4.bekk
Heiðarskóla tóku sig til og tíndu rusl
á skólalóðinni í hádegisfrímínútum
í síðustu viku. Þeim þótti ruslið á
lóðinni vera orðið alltof mikið og
vildu gera eitthvað í málinu. Þeir
fengu ruslapoka, brettu upp ermar
og gengu vaskir til verks. Verst þótti
þeim hve mikið er af tyggjóklessum
á stéttunum í kringum skólann. Þeir
héldu ruslatínslunni áfram daginn
eftir og þá bættust fleiri nemendur
í hópinn.
Eimskip eykur þjónustugetu sína í Helguvíkurhöfn
■ Eimskip hefur bætt þjónustugetu sína svo um munar í Helguvíkurhöfn. Með Lagarfossi kom á dögunum 132 tonna
þjónustutæki sem er sérlega afkastamikið við að ferma og afferma vörur og farma við krefjandi aðstæður.
Framleiðandi tækisins er Sennebogen í Þýskalandi og er þetta fyrsta tæki sinnar tegundar á Íslandi.
Á meðfylgjandi mynd sést stærð tækisins vel.