Víkurfréttir - 06.04.2017, Page 10
10 fimmtudagur 6. apríl 2017VÍKURFRÉTTIR
Á næstunni mun fara af stað verk-
efni sem stuðlar að bættri heilsu eldri
borgara á Suðurnesjum. Verkefnið er
í samstarfi við dr. Janus Guðlaugsson,
íþrótta- og heilsufræðing og lektor við
Háskóla Íslands.
„Stjórnendur Reykjanesbæjar voru
hrifnir af þessari hugmynd og köll-
uðu eftir frekari útfærslu sem nú er
að verða að veruleika. Fjölgun í eldri
aldurshópum kallar á nýjar útfærslur
sem leysa geta ákveðinn vanda í ört
fjölgandi samfélagi hinna eldri. Verk-
efnið er fyrirbyggjandi heilsuefling,“
segir Janus, en verkefnið er fyrir fólk
65 ára og eldri.
Markmið þess snýr að skipulagðri
heilsurækt svo eldri einstaklingar
geti sinnt athöfnum daglegs lífs eins
lengi og kostur er, geti búið lengur í
sjálfstæðri búsetu, geti komið í veg
fyrir eða seinkað innlögn á dvalar- og
hjúkrunarheimili og eigi möguleika á
því að starfa lengur á vinnumarkaði.
Janus segir ávinninginn geta orðið
gríðarlegan. „Það sem sérstaklega
vantar í tenglum við líkamlega virkni
hinna eldri er aukin styrktarþjálfun,
en hún kemur í veg fyrir hægfara
vöðvarýrnun. Hún hittir okkur öll
þegar við eldumst og ansi kröftug-
lega, ef við spyrnum ekki við fótum.
Markmiðið er að kenna fólkinu ýmsar
aðferðir til að það geti séð um sig sjálft
samhliða því að finna æfingar sem
henta hverjum og einum til að byggja
upp eða viðhalda sinni heilsu.“
Þátttakendum verður boðið að taka
þátt í verkefninu endurgjaldslaust.
„Verkefnið fékk styrk frá Uppbygg-
ingarsjóði Suðurnesja auk þess sem
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja hefur
sýnt því áhuga að vera okkur innan
handar með mælingar og ráðgjöf.
Þá er það einnig mikilvægt að vita
hvernig æskilegt sé að næra sig sam-
hliða þjálfun, því styrktaræfingar skila
sér ekki nægilega vel ef æskileg nær-
ing er ekki til staðar. Við munum fá
næringarfræðing með fyrirlestur og
öldrunarlækni til að skoða lyf og lyfja-
notkun en margir hinna eldri eru á
blóðþrýstings- og hjartalyfjum og slík
lyf gefa haft áhrif á hjartsláttinn við
þjálfun,“ segir hann.
Mælt er með 30 mínútna hreyfingu
alla daga vikunnar og styrktarþjálfun
að minnsta kosti tvisvar sinnum í
viku. Þá er hvatt til hóflegrar notk-
unar á salti, sykri, gosdrykkjum og
sætindum og mælt með fjölbreyttri
næringu.
Þátttakendum verður boðið upp á
ýmsar mælingar í upphafi og síðan á
6 mánaða fresti. Þetta eru meðal ann-
ars afkastagetumælingar, hreyfifærni-
mælingar og mælingar á líkamssam-
setningu.
Verkefnið er unnið í nánu samstarfi
við Velferðarsvið Reykjanesbæjar og
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og yf-
irumsjón með þjálfunni, í samstarfi
við Janus, hefur Ingvi Guðmundsson,
BS-íþróttafræðingur og meistaranemi
við Háskóla Íslands.
Janus hvetur fólk til þess að mæta á
kynningarfund á Nesvöllum í Reykja-
nesbæ þriðjudaginn 18. apríl næst-
komandi kl. 20 og fá frekari upplýs-
ingar um verkefnið. „Þetta er fram-
tíðin að bættri heilsu hinna eldri, þetta
er það sem koma skal innan sveitar-
félaga,“ segir Janus.
Hera Ósk Einarsdóttir, sviðstjóri Vel-
ferðarsviðs Reykjanesbæjar, er bjart-
sýn fyrir verkefninu. „Við viljum öll
halda heilsu út ævina og geta verið
sjálfbjarga þegar við eldumst. Til að
geta það þurfum við meðal annars að
huga að hreyfingu og næringu og það
er aldrei of seint að byrja. Það er von
okkar, sem stöndum að verkefninu,
að við séum að mæta eftirspurn þeirra
aldurshópa sem eru að komast á þriðja
æviskeiðið. Markmið þeirra sem að
verkefninu koma er að aðstoða þátt-
takendur við að gera æviskeiðið að
tíma til þess að njóta, við góða heilsu,
virkir og hamingjusamir. Til þess er
leikurinn gerður.“
Heilsueflingarátak fyrir eldri borgara
●● Styrktarþjálfun●nauðsynleg●til●þess●að●koma●í●veg●fyrir●hægfara●vöðvarýrnun
DEILISKIPULAG
AUGLÝSING
um skipulag í Sveitarfélaginu Vogum.
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi
fyrir iðnaðarsvæði við Vogabraut.
Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga samþykkti þann 29.
mars 2017 að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipu-
lagi, skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, fyrir
iðnaðarsvæði við Vogabraut þar sem lóðirnar við Heiðar-
holt 2, 2a og 4 eru sameinaðar í eina lóð, Heiðarholt 2.
Stærð sameinaðar lóðar er 6.728 m2. Tillagan er sett fram
á uppdrætti ásamt greinargerð og vísast til hennar um
nánari upplýsinga.
Tillagan verður til sýnis á skrifstofu Sveitarfélagsins Voga,
Iðndal 2, 190 Vogar frá og með fimtudeginum 6. apríl
2017 til og með fimtudeginum 18. maí 2017. Tillagan er
einnig aðgengileg á vef Sveitarfélagsins Voga,
www.vogar.is.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn
kostur á að gera athugasemdir við tillöguna. Skila skal
skriflegum athugasemdum til skrifstofu Sveitarfélagsins
Voga, Iðndal 2, 190 Vogar eða á netfangið skrifstofa@
vogar.is fyrir 18. maí 2017
fh. Bæjarstjórnar
Ásgeir Eiríksson, bæjarstjóri
AÐALFUNDUR
Verslunarmannafélags Suðurnesja
verður haldinn að Vatnsnesvegi 14, Reykjanesbæ,
mánudaginn 10. apríl nk. kl. 20:00.
DAGSKRÁ
Venjuleg aðalfundarstörf skv. lögum félagsins.
Stjórn Verslunarmannafélags Suðurnesja.
ATVINNA
SBK ehf óskar eftir að ráða til sumarafleysinga bifreiðastjóra
við akstur á hópferðabílum fyrirtækisins sem og aksturs
strætó milli Keflavíkur og Reykjavíkur
Hæfniskröfur:
Rútupróf
Dugnaður og sjálfstæð vinnubrögð
Hæfni í mannlegum samskiptum
Áhugasamir sendi umsókn á sbk@sbk.is
og til að fá frekari upplýsingar.
SBK · Grófin 2 – 4 · 230 Reykjanesbæ · Sími 420 6000 · Fax 420 6009
sbk@sbk.is · sbk.is
Hefst með samkomu Skírdag 13. apríl kl. 20.00
Föstudaginn langa kl. 20.00. Samkoma
Páskadag kl. 11.00. Samkoma
Að þessu sinni fáum við syngjandi fjölskyldu
frá Færeyjum í heimsókn.
Þannig að það verður mikill og góður söngur.
Allir velkomnir og aðgangur ókeypis.
Páskamót
Hvítasunnukirkjunnar
í Keflavík
Janus Guðalaugsson og Hera Ósk
Einarsdóttir frá Reykjanesbæ.
VF-mynd/pket.