Víkurfréttir - 06.04.2017, Qupperneq 19
19fimmtudagur 6. apríl 2017 VÍKURFRÉTTIR
SÍÐASTA KVÖLDMÁLTÍÐIN
Sviðslistaverk um lífsgæði og lífsgildi
Skírdag 13. apríl
KEFLAVÍK
Miðasölusíminn er 421-2540
Opið frá sólarupprás til sólarlags
Enginn aðgangseyrir@sidastakvoldmaltid
Suðurnesjamagasín Sjónvarps Víkurfrétta
hefur fengið nýjan sýningartíma á fimmtudagskvöldum á Hringbraut.
Framvegis er þátturinn sýndur kl. 20:00 og endursýndur kl. 22:00.
Þá er þátturinn sýndur föstudaga kl. 12, 14, 16 og 18.
Á laugardögum er þátturinn kl. 14 og 22.
Sunnudaga er Suðurnesjamagasín kl. 08 og 18.SMÁAUGLÝSINGAR
WWW.VF.IS
Óskast
Vantar herbergi til leigu,
er reglusamur og 100% greiðslum
heitið. Upplýsingar í síma 691 1989,
Valur
Til sölu
Dekk til sölu.
Sumardekk lítið notuð á felgum,
undan Kía Sport Sorento.
Upplýsingar í síma 848-3422. Bílaviðgerðir
Smurþjónusta
Varahlutir
Brekkustíg 38 - 260 Njarðvík
sími 421 7979
www.bilarogpartar.is
Verið velkomin
á samkomu
alla sunnudaga kl. 11.00
Hvítasunnu-
kirkjan í Keflavík,
Hafnargötu 84
LAUS STÖRF
Umsóknum í öll ofangreind störf skal skilað á vef Reykjanes-
bæjar undir Stjórnsýsla: Laus störf. Þar eru jafnframt nánari
upplýsingar um auglýst störf og á Facebook síðunni Reykja-
nesbær - laus störf.
AKURSKÓLI
VINNUSKÓLI
HÁALEITISSKÓLI
UMHVERFISSVIÐ
HEIÐARSKÓLI
HEIMILI FATLAÐS FÓLKS
VINNUSKÓLI
NJARÐVÍKURSKÓLI
AKURSKÓLI
HÁALEITISSKÓLI
AKURSKÓLI
FJÁRMÁLASVIÐ
SUNDMIÐSTÖÐ
LYNGMÓI
Deildarstjóri yfir starfsstöð
Störf í garðyrkjuhópi
Textílmennt- hlutastarf
Skipulagsfulltrúi
Kennarar
Umönnunarstörf
Sumarstörf, 9. og 10. bekkur
Kennarar
Umsjónarmaður Frístundaskóla
Kennarar
Starfsmaður í mötuneyti
Sérfræðingur í launadeild
Starfsmaður á vaktir
Sumarstarf
VIÐBURÐIR
FARSÆL EFRI ÁR Í REYKJANESBÆ
Framtíðarþing um farsæl efri ár í Reykjanesbæ verður haldið
á Nesvöllum í dag, 6. apríl kl. 15-18 með fyrirkomulagi þjóð-
fundar. Umræður um öldrunarmál; væntingar, viðhorf og hug-
myndir um hvernig stuðla megi að farsælum efri árum í
Reykjanesbæ. Boðið verður upp á veitingar.
STORY TIME IN ENGLISH
On Saturday, April the 8th, the Reykjanesbær library will be
hosting Story Time in English. At 11:30 Ko-Lee will be reading
a short shildren´s story; Frog and Toad are friends. Special
offer for children at Ráðhúskaffi. Everyone is welcome.
LÉTTUR FÖSTUDAGUR Á NESVÖLLUM
Spilabingó og tónlist á Léttum föstudegi á Nesvöllum 7. apríl
kl. 14:00. Allir hjartanlega velkomnir.
Leikritin Partýland og Vinsæld voru
frumsýnd á árshátíð elsta stigs Grunn-
skóla Grindavíkur síðastliðinn þriðju-
dag. Nemendur í 7.- 8. bekkjum sýndu
leikritið Partýland í leikstjórn Aldísar
Davíðsdóttur og nemendur í 9.-10.
bekk sýndu leikritið Vinsæld eftir
Pálmar Guðmundsson í leikstjórn
höfundar. Víkurfréttir fengu að fylgj-
ast með generalprufum leikritanna.
„Þetta hefur gengið mjög vel. Það
hefur alltaf verið draumur hjá mér
að taka svona verkefni að mér. Rauði
þráðurinn í leikritinu er vinátta og
það að vera vinsæll og hvort það sé
eitthvað sem skipti máli. Krökkunum
finnst þetta fyndið og hafa verið mjög
áhugasöm og dugleg,“ segir Pálmar,
leikstjóri og höfundur Vinsældar.
Aldís, leikstjóri og höfundur Partý-
lands, segir boðskap verksins vera
þann að sama hvaða höft séu sett á
mann, þá vilji maður samt hafa frelsi
til þess að velja sjálfur. „Þetta er búið
að vera merkilega stutt æfingaferli.
Einhverjar þrjár vikur og örfáir tímar
fyrir það. Þau eru búin að vera alveg á
haus. En krakkarnir eru svo skapandi
og gefandi. Þetta er búið að vera mjög
góð samvinna.“
Sýning fyrir almenning var í gær,
miðvikudag og í dag fimmtudaginn
klukkan 20:00, þar sem bæjarbúum
gefst tækifæri á að sjá sýningarnar.
Fjallað er um málið í Suðurnesjama-
gasíni Sjónvarps Víkurfrétta í kvöld á
sjónvarpsstöðinni Hringbraut.
Síðasta kvöldmáltíðin er sviðslista-
verk í formi gönguferðar undir list-
rænni stjórn Steinunnar Knútsdóttur,
Rebekku Ingimundardóttur og Halls
Ingólfssonar.
Verkið leiðir áhorfandann, einn í einu,
til móts við eigin lífsgildi og lífsstíl
um leið og það beinir sjónum að sam-
félagslegum álitamálum. Það er eins
konar ratleikur hugleiðinga eða upp-
lifunarganga sem býður gestum að sjá
sína eigin sögu og eiga fund við sjálfa
sig í gegnum áleitnar spurningar og
frásagnir annarra. Gestir bóka sig á
tíma og mæta einir í gönguferð þar
sem á vegi þeirra verða spurningar,
vangaveltur, hugvekjur og brot úr frá-
sögnum af lífi og gildum annarra.
Verkið verður flutt á fjórum stöðum á
Íslandi á Skírdag, 13. apríl 2017:
Á Raufarhöfn, Bolungarvík, Höfn í
Hornafirði og í Keflavík.
Opið öllum endurgjaldslaust frá sólar-
upprás til sólarlags.
Hver ganga er kortlögð í kringum
sögu og andrúmsloft hvers staðar
fyrir sig og unnin upp úr viðtölum við
íbúa. Þá er framkvæmdin í nánu sam-
starfi við íbúa í hverju byggðarlagi þar
sem hún er flutt. Í Keflavík er Síðasta
kvöldmáltíðin í nánu samstarfi við
Leikfélag Keflavíkur sem sér um fram-
kvæmd verksins.
Markmið verkefnisins er að kafa ofan
í lífsgildi fólks á svæðum þar sem er
atgervisflótti eða aðrar sviptingar, já-
kvæðar sem og neikvæðar - eftir því
hvernig á það er litið. Verkinu er ætlað
að skoða og draga fram hugmyndir
íbúa þessara svæða um gott líf, hvað
skipti mestu máli. Eru þær hugmyndir
sameiginlegar öllum manneskjum?
Verkið beinir umfram allt sjónum
að hinu almenna og sammannlega
og miðar að því að spegla líf og gildi
hvers áhorfanda fyrir sig.
Óskað eftir tilboðum í
tímabundið húsnæði
fyrir grunnskóla
■ Reykjanesbær hefur auglýst eftir
tilboðum í uppsetningu og fulln-
aðarfrágang á tímabundnu húsnæði
fyrir nýjan grunnskóla í Dalshverfi
í Reykjanesbæ. Húsnæðið verður á
einni hæð og er flatarmál þess um
600 fm. Í húsnæðinu verða þrjár
kennslustofur, matsalur og eldhús,
kennarastofa og önnur stoðrými.
Miða skal við að auðvelt sé að fjar-
lægja húsnæðið og setja upp á öðrum
stað þegar fyrirhugaðri notkun þess
lýkur. Bjóðendur geta boðið mis-
munandi byggingaraðferðir. Hús-
næðið skal standast þær sömu kröfur
og almennt gilda um húsbyggingar á
Íslandi. Verklok miðast við 15. ágúst
2017.
Nánar má kynna sér útboðið á vef
Reykjanesbæjar.
SÍÐASTA KVÖLDMÁL-
TÍÐIN Í KEFLAVÍK
Efnilegir leikarar í Grindavík