Víkurfréttir - 11.05.2017, Page 16
16 fimmtudagur 11. maí 2017VÍKURFRÉTTIR
Sungið út í vornóttina
■ Karlakór Keflavíkur söng inn
vorið á tónleikum sínum sem fram
fóru í Ytri Njarðvíkurkirkju dag-
ana 2. og 4. maí en þar mátti heyra
afrakstur þeirrar vinnu sam söng-
félagar hafa lagt á sig á liðnum vetri.
Nýr kórstjóri hefur tekið við kórnum
en það er Suðurnesjamaðurinn og
bassinn Jóhann Smári Sævarsson
sem verður að teljast mikill happa-
fengur fyrir Karlakór Keflavíkur. Jó-
hann kemur úr mikilli tónlistarfjöl-
skyldu og því kom það ekki á óvart að
undirleikur var í höndum sonar hans
Sævars Helga, flutt var lag eftir bróðir
hans Sigurð og eiginkona hans Jelena
Rasche söng einsöng með kórnum,
sem og stjórnandinn sjálfur.
Aðrir einsöngvarar voru Ingólfur
Ólafsson, Haraldur Arnbjörnsson og
Þorvarður Guðmundsson, sem jafn-
framt var kynnir.
Á söngskránni voru hefðbundin
karlakóralög, ný íslensk dægurlög
sem útsett voru sérstaklega fyrir kór-
inn og lög úr söngleikjum og óperum
en að venju er mikill metnaður lagður
í tónleika karlakórsins.
Kórinn sýndi létta spretti í söngleikja-
syrpu með einsöng og glettnum til-
þrifum og það verður að segjast eins
og er að lag Sigurðar Sævarssonar,
„Upp skal á kjöl klífa“, við texta Þóris
Jökuls Steinfinnssonar er óhemju-
fallegt og var að vel flutt af kórnum.
Það sýnir metnað að færa dægurlög
í nýjan búning og þar naut kórinn
aðstoðar Arnórs B. Vilbergssonar
sem útsetti. Má þar nefna lag Ásgeirs
Trausta „Dýrð í dauðaþögn“.
Það verður þó að segjast eins og er að
þótt fjölbreytni sé góð þá finnst mér
karlakór bestur í hefðbundnum karla-
kóralögum eins og í „Þú álfu vorrar
yngsta land“ sem flutt var í lokin en
kórinn kvaddi tónleikagesti fallega
með því að syngja þá út í vornóttina.
Fjör í heimsreisu Kvennakórs Suðurnesja
■Kvennakór Suðurnesja hélt vor-
tónleika 26. og 27. apríl síðast-
liðinn í Hljómahöllinni. Á næsta
ári fagnar kórinn síðan 50 ára
afmæli en kórinn er elsti starf-
andi kvennakór á Íslandi. Undir-
búningur fyrir afmælisfagnaðinn
er hafinn en ætlunin er að halda
veglvega tónleika á afmælisdag-
inn, 22. febrúar 2018, auk þess
sem ýmislegt fleira er í bígerð í
tilefni stórafmælisins.
Á vortónleikunum var farið með gesti
í „heimsreisu“ tónlistarferðalag þar
sem byrjað var á Íslandi en farið til
Austurlanda og N-Ameríku og víðar.
Tónleikarnir voru skemmtilegir og
gestir nutu ferðalagsins en
stjórnandi Kvennakórs Suðurnesja
er Dagný Þórunn Jónsdóttir og um
hljóðfæraleik sá Geirþrúður Fanney
Bogadóttir sem leikur á píanó, Birna
Rúnarsdóttir á þverflautu og Þor-
valdur Halldórsson á slagverk.
■ Listnámsnemendur Fjölbrauta-
skóla Suðurnesja bættust við sem
þátttakendur í Listahátíð barna, en
þeir búa allir að því veganesti sem
þeir hlutu í leik- og grunnskólum. Í
Stofunni í Duus safnahúsum gefur
að líta verk útskriftarnemenda af
listnámsbraut sem unnin eru á
ýmsan hátt, til dæmis með bleki, ak-
rýl, vatnslitum, þrykki og blandaðri
tækni.
Listamennirnir eru: Fanný Elísabet
Arnarsdóttir, Guðrún Pálína Karls-
dóttir, Hinrik Örn Sölvason, Lovísa
Ýr Andradóttir, Smári Snær Laine og
Sæmundur Ingi Margeirsson.
Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri
Reykjanesbæjar, opnaði sýninguna.
Á opnuninni fluttu einnig tveir af
listamönnunum tónlistaratriði, en
það voru þær Lovísa Ýr, sem lék lag á
saxafón, og Guðrún Pálína söng.
Jóhanna Pálsdóttir
Sólveig Þórðardóttir Guðmundur R.J. Guðmundsson
Jóna Þórðardóttir Ólafur Árni Halldórsson
Páll Þórðarsson Sigríður Hanna Sigurðardóttir
Ásgeir Þórðarsson Unnur Guðmundsdóttir
Þórhanna Þórðardóttir Logi H. Halldórsson
Lilja Þórðardóttir
Barnabörn og barnabarnabörn
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi
Þórður Ásgeirsson
Lyngholti 12, Keflavík
verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju
föstudaginn 12. maí klukkan 13.
Karlakór Keflavíkur hélt tvenna vortónleika í Ytri-Njarðvíkurkirkju.
Þeir komu fram undir stjórn Jóhanns Smára Sævarssonar, við undirleik
Sævars Helga, sonar Jóhanns.
SUNNUDAGINN 14. MAÍ KL.17 OG 20
Queen-messa verður flutt tvisvar sinnum
þennan dag í Keflavíkurkirkju.
Fjallræðan verður umfjöllunarefni
íslenskra, trúarlegra texta sömdum
af sr. Davíð Þór Jónssyni og Sigurði
Ingólfssyni. Jón Jósep Snæbjörnsson er
forsöngvari ásamt Kór Keflavíkurkirkju og
hljómsveit. Arnór Vilbergsson organisti er
útsetjari og stjórnandi messunnar. Sr. Erla
Guðmundsdóttir mun leggja stuttlega út
frá stefum fjallræðunnar á milli laga.
FIMMTUDAGINN 18. MAÍ KL. 20
Vortónleikar Eldeyjar, kórs eldri borgara
á Suðurnesjum, fara fram í Kirkjulundi.
Stjórnandi þeirra er Arnór Vilbergsson,
organisti. Þessi fríði og fjörugi hópur lofar
góðri kvöldstund í söng og gleði.
Aðgangseyrir er 1000 kr.
Frá tónleikum Kvennakórs Suðurnesja í Hljómahöll.
Stútfullur Stapi af hæfileikum
Það var mikið um dýrðir þegar úrval árshátíðaratriða
úr öllum grunnskólum bæjarins, Tónlistarskólanum,
Bryn Ballett Akademíunni og Danskompaní voru
sýnd í Stapa síðastliðinn föstudag, í tilefni Listahá-
tíðar barna. Þar fengu nemendur tækifæri til að sýna
í alvöru sýningarhúsi með lýsingu og hljóði eins og
best verður á kosið. Áhorfendur voru nemendur 5. og
6. bekkja grunnskólanna, en allir voru velkomnir á
meðan húsrúm leyfði og var Stapinn þétt setinn.
Listrænir FS-ingar sýna í Duus
Fimmtudagskvöld
kl. 20:00