Víkurfréttir - 11.05.2017, Page 24
23fimmtudagur 11. maí 2017 VÍKURFRÉTTIR
Fitjabakka 2-4 • 260 Reykjanesbær • Sími 420 1000 • olis.is
Samferða síðan 1927
Verið velkomin á vörukynningu fimmtudaginn 18. maí, í útibúi Olís, kl. 15–18.
Skráning á jk@olis.is
VÖRUKYNNING
Nilfisk og
Kimberly-Clark
PIPA
R\TBW
A
• SÍA
• 171909
■ Landsliðsþjálfari Englands með æfingabúðir á Keflavík Open
Keflavík Open taekwondo mótið var haldið í annað sinn um helgina. Landsliðs-
þjálfari Englands, Martin Stamper, kom í heimsókn og stóð fyrir æfingabúðum
samhliða mótinu. Í tilkynningu frá taekwondo-deild Keflavíkur segir að helgin
hafi heppnast einkar vel en iðkendur komu frá fjölda félögum. Keppendur voru
á öllum aldri og þeir yngstu tveggja ára gamlir.
■ Aron Snær valinn í landsliðið
Aron Snær Arnarsson, júdómaður
hjá UMFG, var á dögunum valinn í
landslið Íslands í júdó. Aron er 16 ára
gamall og er Íslandsmeistari í -90 kg
flokki, 18 ára og yngri.
Aron Snær mun um næstu helgi
keppa með landsliðinu á Norður-
landamóti í Svíþjóð. Þar mun hann
keppa í sínum flokki og í -90 kg flokki,
yngri en 21 árs.
Keflvíkingar hirtu marga einstaklings titla þegar Domino’s
deildin í körfubolta var gerð upp í lok vikunnar. Thelma
Dís Ágústsdóttir var kjörinn besti leikmaður kvenna og
þá voru þau Arianna Moorer og Amin Stevens valin bestu
erlendu leikmennirnir.
Keflvíkingar áttu einnig bestu varnarmennina en Salbjörg
R. Sævarsdóttir og Hörður Axel Vilhjálmsson fengu þá
nafnbót.
Birna Valgerður Benónýssdóttir var kjörin besti ungi leik-
maður kvenna.
Suðurnesjamenn áttu einnig bestu þjálfarana. Grindvík-
ingurinn Jóhann Þór Ólafsson hjá körlum og Sverrir Þór
Sverrisson var valinn besti þjálfari í Domino’s deild kvenna.
Þá voru þær Thelma Dís Ágústsdóttir og Emelía Ósk
Gunnarsdóttir valdar í úrvalslið kvenna. Logi Gunnarsson
úr Njarðvík og Ólafur Ólafsson voru Suðurnesjamennirnir
í úrvalsliði karla.
Thelma Dís Ágústsdóttir
var valin besti leikmaður
kvenna í Domino’s deild-
inni í körfu. VF-mynd/
pket.
●● ●í●uppgjöri●Domino’s●deildarinnar●í●körfubolta
Suðurnesjamenn með marga titla
Jóhann Ólafsson var besti þjálfari
karla. Sverrir Þór Sverrisson og Ari-
anna Moore var valin besti útlend-
ingurinn. VF-mynd/pket og Sólborg.