Víkurfréttir


Víkurfréttir - 08.02.2018, Side 15

Víkurfréttir - 08.02.2018, Side 15
15UMRÆÐAN Á SUÐURNESJUM f immtudagur 8. febrúar 2018 // 6. tbl. // 39. árg. „Ef við hyggjum ekki að for- tíð okkar, getum við ekki átt mikla von fyrir framtíð okkar,“ sagði Jackie Ken- nedy Onassis á tröppum Grand Central lestar- stöðvarinnar í New York árið 1975, þegar til stóð að rífa þá merku byggingu og byggja 59 hæða skrifstofu- byggingu í staðinn. Hún bætti við: „Við höfum öll heyrt að þetta sé of seint, eða að þetta þurfi að gerast, að þetta sé óumflýjanlegt. En ég held að það sé ekki satt. Vegna þess að ég tel að þegar það er sterkur vilji, jafnvel á elleftu stundu, þá getur þú haft sigur og ég veit að það er það sem munum hafa“. Og sem betur fer hlustuðu borgaryfirvöld í New York á þau rök og þessi fallega og sögufræga bygging heldur upp á 105 ára afmæli sitt síðar í þessum mánuði. Afmælisbarnið, sem var 62 ára þegar tókst að bjarga því, hefur sjaldan litið betur út og aldrei hafa fleiri notað bygginguna en einmitt núna. Þetta eru vissulega tvö ólík hús, tímarnir eru aðrir en samt eiga nákvæmlega sömu rökin við um 68 ára gamla Sundhöllina okkar í dag. Það er sterkur vilji meðal bæjarbúa fyrir að þyrma húsinu, þetta er alls ekki of seint, þetta þarf ekki að gerast og því fer fjarri að þetta sé óumflýjan- legt. Við erum auk þess réttu megin við þessa ákvörðun - það hefur ekki verið heimilað að rífa Sundhöll Keflavíkur og breyting á deiliskipu- lagi sem heimilar að byggt sé á lóðinni hefur ekki verið staðfest. Þeir sem segja að þetta sé frágengið og löngu ákveðið hafa einfaldlega rangt fyrir sér. Hvers vegna var þá verið að auglýsa eftir athugasemdum við deiliskipu- lagsbreytinguna og halda íbúafund? Auðvitað vegna þess að rétt eins og segir í umsögn Minja- stofnunar frá því í október 2017, þá er það „…í höndum sveitarfélagsins að ákvarða um framtíð þess“. Reykjanesbær fer með skipulagsvaldið og núverandi bæjarstjórn ber ábyrgð á þeirri ákvörðun um hvort rífa skuli húsið. Eignarhald og skaðabætur? Rætt hefur verið um meintar skaðabætur og fjárútlát sem myndu lenda á Reykjanesbæ ef deiliskipulaginu yrði hafnað. Það er einnig rangt. Það er ekki fyrr en deiliskipulagið yrði samþykkt sem möguleg skaðabótaskylda gæti myndast. Húsið var selt fyrir tæpu ári til nú- verandi eiganda, engin heimild til niðurrifs var til staðar þá (frekar en nú) samkvæmt gildandi deiliskipulagi né heimild til að byggja á lóðinni. Þetta vissu núverandi eigendur þegar þeir keypu húsið á innan við 40 milljónir króna og þess vegna sækja þeir um breytingu á deiliskipulagi til Reykjanesbæjar. Og það er sú tillaga sem ekki er búið að staðfesta. Á fjölmennum fundi sem nýstofnuð Hollvina- samtök Sundhallarinnar héldu sl. fimmtudag, og nærri 4000 manns hafa horft á á vefnum, fór Pétur Ármannsson, helsti sérfræðingur Íslands í verkum Guðjóns Samúelssonar yfir sögu þessa mikla meistara og mikilvægi Sund- hallarinnar okkar í þeirri sögu. Margt fróðlegt kom þar fram og hvet ég lesendur til þess að horfa á fyrirlestur Péturs og önnur áhugaverð erindi sem flutt voru á fundinum á heimasíðu Víkurfrétta og Facebook-síðu hópsins „Björgum Sundhöll Keflavíkur“. Þar kom einnig fram að Guðjón Samúelsson tók þátt í að teikna skipulag Keflavíkur á sínum tíma, eins og hann gerði víða annars staðar á landinu. Það var einnig fróðlegt að sjá hvernig önnur bæjarfélög, t.d. Akureyri, hafa hlúð að byggingum Guðjóns og varðveitt, enda margar hverjar mestu kennileiti bæjarins. Þetta getum við líka gert. Reykjanesbær hefur góða sögu að segja Reykjanesbær hefur staðið sig vel á undan- förnum árum við endurbyggingu á Duus húsum, Gömlu búð og Fischershúsi. Verkefnið um Duus- verndarsvæði í byggð þar sem bæjarbúum er hleypt að skipulagsvinnunni með beinum hætti er eftirtektarvert og algjörlega til fyrirmyndar. Öllum þessum húsum átti að farga á einhverjum tímapunkti, en var sem betur fer afstýrt. Við getum þakkað mönnum eins og Bigga Guðna heitnum fyrir þrautsegju þeirra og baráttu - ég leyfi mér að fullyrða að það sé erfitt að finna þann íbúa í dag sem myndi vilja Duus húsin burt. Sundlaugin okkar var byggð af Ungmannafélag- inu og íbúunum sjálfum af miklum dugnaði, þrautseigju og samstöðu. Hún var vígð árið 1939, óskabarn kauptúnsins og eitt helsta stolt þess. Sundhallarbyggingin var vígð 1950, var byggð eftir teikningu Guðjóns Samúelssonar og var fjármögnuð af almannafé, með samskotum og alls kyns fjáröflun meðal bæjarbúa. Þessi saga er dýrmæt og ber að halda á lofti. Það verður best gert með því að vernda húsið og finna því viðeigandi hlutverk. Nú er tíminn til að staldra við og leita lausnar sem allir geta orðið sáttir um. Lærum af sögunni og finnum leið til þess að blanda því nýja með hinu gamla, eins og alls staðar er að gerast. Ég nefni uppbygginguna á Grandanum sem nærtækt dæmi. Fyrir hönd nýstofnaðra Hollvinasamtaka Sundhallar Keflavíkur skora ég á bæjarstjórn Reykjanesbæjar að fara að tilmælum Minjastofn- unar frá 31. janúar og „fresta því að samþykkja breytingu á deiliskipulagi svo tími vinnist til að kanna hvort unnt sé að finna húsinu verðugt hlutverk og varðveita það“. Undirskriftasöfnun er hafin og má skrifa undir á netinu (sjá slóð á Facebook- síðu hópsins Björgum Sundhöll Keflavíkur). Einnig munu fulltrúar Hollvinasamtakanna vera á ferðinni næstu daga með undirskriftalistana. Við hvetjum bæjarbúa til að taka afstöðu með sögu okkar og Sundhöllinni og skrifa undir áskorunina. Ragnheiður Elín Árnadóttir. NAFN Á SAMEINAÐ SVEITARFÉLAG GARÐS OG SANDGERÐISBÆJAR Nefnd sem skipuð hefur verið til að gera tillögu að nafni á sam- einað sveitarfélag Sveitarfélagsins Garðs og Sandgerðisbæjar óskar eftir tillögum að nöfnum. Tillögum skal fylgja rökstuðningur til stuðnings nafninu í sam- ræmi við leiðbeiningar sem finna má á vef Sandgerðisbæjar www.sandgerdi.is og Sveitarfélagsins Garðs www.svgardur.is Öllum er frjálst að senda inn tillögur. Hægt er að skila tillögum á bæjarskrif- stofur sveitarfélaganna, eða rafrænt. Tillögur þurfa að hafa borist fyrir hádegi þann 12. febrúar næstkomandi. HÖ NN UN : V ÍK UR FR ÉT TIR Strikinu 3 • Iðnbúð 2 • Garðabæ • 565 8070 • okkarbakari.is • facebook.com/okkarbakari Rjóma Hindberja Karamella Royal Irish Danskar bollur Vatnsdeigsbollur Gerbollur BOLLUDAGS B LLUM Mikið úrval af gómsætum Rjóma Púns Jarðarberja Velkomin í bollukaffi Vanilla Rjóma Núggat Vínarbrauðsdeig Strikinu 3 • Iðnbúð 2 • Garðabæ • 565 8070 • okkarbakari.is • facebook.com/okkarbakari Rjóma Hindberja Karamella Royal Irish Danskar bollur Vatnsdeigsbollur Gerbollur BOLLUDAGS B LLU Mikið úrval af gómsætum Rjóma Púns Jarðarberja Velkomin í bollukaffi Vanilla Rjóma Núggat Vínarbrauðsdeig Strikinu 3 • Iðnbúð 2 • Garðabæ • 565 8070 • okkarbakari.is • facebook.com/okkarbakari Rjóma Hindberja Karamella Royal Irish Danskar bollur Vatnsdeigsbollur Gerbollur BOLLUDAGS B LLUM Mikið úrval af gómsætum Rjóma Púns Jarðarberja Velkomin í bollukaffi Vanilla Rjóma Núggat Vínarbrauðsdeig Strikinu 3 • Iðnbúð 2 • Garðabæ • 565 8070 • okkarbakari.is • facebook.com/okkarbakari Rjóma Hindberja Karamella Royal Irish Dansk r bollur Vatnsdeigsbollur Gerbollur BOLLUDAGS Mikið úrval af gómsætum Rjóma Púns Jarðarberja Velkomin í bollukaffi Vanilla Rjóma Núggat Vínarbrauðsdeig Kökulist verslunarmiðstöðinni Firði Hafnarfirði · Iðnbúð 2 og Strikinu 3 Garðabæ · Hólagötu 17 Reykjanesbæ kokulist@kokulist.is · 555 6655 Björgum Höllinni. Undirskriftasöfnun hafin. STÖLDRUM VIÐ OG HUGUM AÐ SÖGUNNI OKKAR Rætt hefur verið um meintar skaðabætur og fjárútlát sem myndu lenda á Reykjanesbæ ef deiliskipulaginu yrði hafnað. Það er einnig rangt. Það er ekki fyrr en deiliskipulagið yrði samþykkt sem möguleg skaðabótaskylda gæti myndast. Húsið var selt fyrir tæpu ári til núverandi eiganda, engin heimild til niðurrifs var til staðar þá (frekar en nú) samkvæmt gildandi deiliskipulagi né heimild til að byggja á lóðinni.

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.