Víkurfréttir


Víkurfréttir - 08.02.2018, Blaðsíða 16

Víkurfréttir - 08.02.2018, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIR Á SUÐURNESJUM f immtudagur 8. febrúar 2018 // 6. tbl. // 39. árg. PMTO foreldranámskeið PMTO námskeið er fyrir foreldra sem vilja læra aðferðir til að draga úr hættu á hegðunarerfiðleikum barns og stuðla að góðri aðlögun með því að: ▪ nota skýr fyrirmæli ▪ hvetja börn til jákvæðrar hegðunar ▪ nota jákvæða samveru og afskipti ▪ rjúfa vítahring í samskiptum ▪ vinna með tilfinningar og samskipti ▪ hafa markvisst eftirlit ▪ leysa ágreining ▪ auka markviss tengsl heimilis og skóla -fyrir foreldra 4-8 ára barna sem vilja efla uppeldisfærni sína Námskeiðið er haldið í Fjölskyldusetrinu Skólavegi 1 og hefst þriðjudaginn 20. febrúar 2018. Námskeiðið er í 8 skipti og stendur frá kl. 19:00 til 21:00. Námskeiðslok eru 11.apríl. Leiðbeinendur eru Ingibjörg María Guðmundsdóttir sálfræð- ingur og PMTO meðferðaraðili og Thelma Björk Guðbjörnsdóttir félagsráðgjafi og PMTO meðferðaraðili. Þátttökugjald er 10.000 kr. fyrir báða foreldra, 8.000 kr. fyrir einstakling. Hámarksfjöldi þátttakanda 20. Nánari upplýsinga og skráning á netfangið PMTO@reykjanes- baer.is. Velferðarsvið Reykjanesbæjar Flugakademía Keilis hefur tekið í notkun nýjan og fullkominn flug- hermi sem líkir eftir tveggja hreyfla Diamond DA42 kennsluflugvél skólans. Flughermirinn er sá full- komnasti á landinu sem notaður er við kennslu í atvinnuflugmanns- námi og sá næst fullkomnasti á eftir þjálfunarhermi Icelandair á Flug- völlunum í Hafnarfirði. Hermirinn mun veita flugnemum kost á enn ítarlegri þjálfun en áður og verður meðal annars hægt að æfa aðstæður og viðbrögð sem almennt er ekki hægt að æfa í kennsluflugi. Stjórnklefinn í flugherminum er ná- kvæm eftirlíking af DA42 kennslu- vélinni og finnur nemandi því nánast engan mun á umhverfinu sem gerir þjálfunina mun raunverulegri. Á endanum munu þessir þættir skila sér í betri þjálfun nemenda Flugaka- demíunnar. Hægt að æfa viðbrögð við aðstæðum sem ekki er hægt að æfa á flugi Vegna aukinnar ásóknar í flugnám hefur Flugakademía Keilis bætt við sig fjórum kennsluflugvélum. Áætlað er að vélarnar komi til landsins á næstu mánuðum og verður skólinn þá með samtals fjórtán kennsluvélar á Kefla- víkurflugvelli. Auk þess á skólinn fyrir hreyfanlegan flughermi sem hefur reynst afar vel og boðið flugnemum upp á góða möguleika í grunnþjálfun, þjálfun á stjórntækjum og þjálfunar- tæki í blindflugi. Snorri Páll Snorrason, skólastjóri Flugakademíunnar, segir að ákvörðun hafi verið tekin um að bæta við öðrum flughermi sem veiti nemendum enn betri árangur, en með honum verður hægt að þjálfa nemendur á tveggja hreyfla vél í sama umhverfi og þeir eiga að venjast í flugvélum og líkja eftir aðstæðum með mun raunveru- legri hætti en áður. Snorri bendir á að í flugkennslu er yfirleitt eingöngu verið að æfa við- brögð við mótormissi sem hluta af neyðarviðbrögðum, en með nýja herminum megi fara í ítarleg atriði og líkja eftir ýmsum aðstæðum sem geta komið upp og þjálfa ákvörðunartöku flugmannsins við þeim. Í flugherm- inum, sem kemur nýr frá austurríska Diamond framleiðandanum, þeim sama og framleiðir allar kennsluvélar skólans, má kalla fram allar tegundir af veðri og vindum, velja alla helstu flugvelli heims og kalla fram marg- víslegar bilanir. Það er því um mikla breytingu að ræða þegar kemur að gæðum kennslu og möguleikum sem atvinnuflug- nemum í Flugakademíu Keili bjóðast. „Við erum komin með flugnámsbraut Icelandair (cadet nám) og hafa fleiri flugfélög áhuga á sambærilegu sam- starfi vegna mikillar eftirspurnar eftir flugmönnum. Til þess þurfum við að fara alla leið og bjóða upp á enn betri kennsluaðstöðu og búnað, svo við getum boðið flugfélögum upp á það sem þau eru að leita eftir“, segir Snorri. Óli á Stað GK-99, kom í fyrsta sinn til heima hafn ar í Grinda- vík í síðustu viku. Skipið er í eigu Stakkavíkur en Óli á Stað GK er með króka afla mark. Báturinn var sjósettur á síðasta ári og hefur undanfarna mánuði verið að veiðum en lagt upp í öðrum höfnum en heimahöfninni, Grindavík. Báturinn var smíðaður hjá skipa smíðastöðinni Seigi. Hann er 13,17 metr ar á lengd og er tæp 30 brútt ót onn. Hann er sagður gott sjóskip. Í bátnum eru fjórir tveggja manna klefar, borðsalur og setu- stofa, ásamt fullkomnu og góðu eldhúsi. Það er mikið lagt upp úr góðri aðstöðu fyrir áhöfnina. Báturinn er nær samskonar og annar bátur sem Stakkavík fékk á haustmánuðum 2014 og hét Óli á Stað GK. Sá bátur var seldur austur á firði árið 2016 þegar fyrirtækið þurfti að gera breytingar í krókaaflamarkskerfinu. Óli á Stað GK er búinn til línuveiða en sl. fimmtudag, þegar báturinn kom fyrst til heimahafnar í Grindavík, var línan dregin skammt undan landi suður af Grindavík og veiðin var með ágætum. Kominn í fyrsta sinn til heimahafnar í Grindavík Mán inn reyndi að fela sig á bak við fjallið þegar Óli á Stað GK kom til hafn ar, en í bak sýn má einnig sjá fisk vinnslu Stakka vík ur. VF-myndir: Hilm ar Bragi AUKIN GÆÐI Í FLUGKENNSLU MEÐ NÝJUM FLUGHERMI Myndir frá Marie-Laure Parsy, nemanda í atvinnuflugnámi Keilis. Á myndunum eru Ingþór Ingólfsson, ritstjóri Allt um flug og Snorri Páll Snorrason, skólastjóri Flugakademíu Keilis

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.