Fréttablaðið - 12.03.2018, Blaðsíða 9
Don't enlarge the this template.
The size of this template can be reduced.
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
GE bílar
Reykjanesbæ
www.gebilar.is
420 0400
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
IB ehf.
Selfossi
www.ib.is
480 8080
BL söluumboð
Vestmannaeyjum
481 1313
862 2516
KOMDU OG
REYNSLUAKTU
NÝJUM NISSAN MICRA
NISSAN MICRA
VERÐ FRÁ: 2.190.000 KR.
HUGVITSSAMLEG
NEYÐARHEMLUN
ELDSNEYTISNOTKUN FRÁ:
DÍSIL 3,2 L/100 KM.*
BENSÍN 4,4 L/100 KM.*
AKGREINAVIÐVÖRUN
OG LEIÐRÉTTING
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
8
6
5
2
6
N
is
s
a
n
M
ic
ra
5
x
2
0
a
lm
e
n
n
f
e
b
*M
ið
að
v
ið
u
pp
ge
fn
ar
tö
lu
r f
ra
m
le
ið
an
da
u
m
e
ld
sn
ey
tis
no
tk
un
í
bl
ön
du
ðu
m
a
ks
tr
i.
Fjölmennu og afar vel heppn-uðu flokksþingi Framsóknar lauk í gær. Yfirskrift þess var
Framsókn til framtíðar.
Við höfum í hendi okkar hvernig
við vinnum úr tækifærum framtíð-
arinnar og hvernig sú saga verður
skrifuð. Á kjörtímabilinu verður
unnið að því að byggja upp gott og
samkeppnishæft samfélag. Engum
vafa er undirorpið að ríkuleg verð-
mæti felast í því að landið allt sé í
blómlegri byggð. Við eigum að vera
í fremstu röð hvað jöfnuð snertir
og skapa hvata til að laða ungt vel
menntað fólk til þess að setjast að á
landsbyggðinni.
Sýn Framsóknarflokksins er að
íbúar landsins hafi jöfn tækifæri
hvar sem þeir búa á landinu. Sem
dæmi má nefna að íbúar á Raufar-
höfn eða Þingeyri eiga rétt á að hafa
sama aðgengi að grunnþjónustu og
Reykvíkingar.
Jöfn tækifæri
Samfélagið er á fleygiferð. Framund-
an er tæknibylting sem breytir því
hvernig við lifum og störfum. Störfin
munu breytast og þau munu færast
til. Tæknin tengir saman byggðir og
Ísland við umheiminn. Ljósleiðar-
inn og verkefnið Ísland ljóstengt er
gott dæmi um framsækna stefnu
okkar framsóknarmanna.
Heilbrigðiskerfið þarf að standast
samanburð við það sem best gerist í
heiminum. Þjónustan á að vera sem
mest í nærsamfélaginu, en jafnframt
þarf að vera gott aðgengi að henni á
höfuðborgarsvæðinu.
Aldrei hefur verið jafn mikil þörf
á að jafna tækifæri allra landsmanna
til atvinnu og þjónustu. Aldrei hefur
verið jafn mikil þörf á að spyrna við
fæti á svæðum sem búa við fólks-
fækkun og einhæft atvinnulífi. Um
allt land er verk að vinna.
Menntamál
Á aldarafmæli Framsóknarflokks-
ins, í desember 2016, var sem fyrr
horft til framtíðar og settur á fót
menntastefnuhópur til að móta
nýja stefnu flokksins í mennta-
málum. Stefnan var síðan kynnt á
nýliðnu flokksþingi.
Því miður eru mennta- og skóla-
mál víða í ólagi og starfsumhverfi
skólanna þarf að bæta. Skólinn á
að vera eftirsóttur vinnustaður.
Það er skylda okkar að efla skóla-
starfið á öllum stigum. Kennarar
verja margir hverjir meiri tíma með
börnunum en foreldrar. Þeir hafa
áhrif á mannauð framtíðarinnar.
Okkur ber skylda til þess að styðja
betur við kennarana, en hér þurfa
ríki og sveitarfélög að koma að.
Við megum ekki missa fleiri störf
úr landi. Það þarf að efla nýsköpun
og þróun á öllum skólastigum enda
er menntun kjarninn í nýsköpun
til framtíðar. Við erum í sam-
keppni við aðrar þjóðir um störfin
okkar. Hvernig okkur tekst til mun
ráða miklu um framtíðarlífskjör á
Íslandi.
Samgöngur
Við vitum líka að vegakerfið er
grundvöllurinn að búsetu, atvinnu-
lífi um land allt. Samgöngur eru
hreyfiafl samfélagsins hvernig sem
á það er litið. Við viljum og þurfum
að komast leiðar okkar. Sum okkar
eru einnig háð því að samgöngur á
sjó séu skilvirkar. Frá og með deg-
inum í dag verður sama fargjald og
er til og frá Landeyjahöfn, þó siglt sé
í Þorlákshöfn. Það er byggðastefna
í verki.
Vegakerfið hefur setið á hakanum
og krefst risavaxinna fjármuna. Í
sáttmála ríkisstjórnarinnar segir
að hraða eigi uppbyggingu í vega-
málum. Vegakerfið var ekki byggt
fyrir þá umferð sem við horfum nú
upp á. Við höfum ekki undan við að
endurbyggja þjóðvegina og koma
þeim í það horf sem nútíma þjóð-
félag krefst. Ástæðurnar eru öllum
kunnar: Of lág fjárframlög til vega-
mála, stóraukin umferð og álag á
vegakerfið.
Verkefnið er stórt og við ætlum í
uppbygginu, enda veitir ekki af.
Við ætlum einnig að gera innan-
landsflugið að raunhæfari kosti
fyrir íbúa í dreifðum byggðum og
tengja byggðir landsins saman með
almenningssamgöngum. Aukin
notkun mun stuðla að fjölgun
ferðamanna um landið, allt árið
um kring.
Húsnæði
Framsóknarflokkurinn hefur
áorkað miklu í húsnæðismálum.
Lög um fyrstu fasteign skiluðu
góðum árangri fyrir fyrstu kaup-
endur. Húsnæðissamvinnufélög
fengu betri umgjörð. En við viljum
gera betur og halda áfram að styðja
við ungt fólk. Við höfum horft til
annarra þjóða í þeim efnum. Og
hvernig við getum lært af þeim sem
hafa glímt við sams konar vanda og
fundið á honum lausnir. Staðan er
alvarleg, ekki bara á höfuðborgar-
svæðinu heldur einnig vítt og breitt
um landið.
Ísland í fremstu röð
Fyrir kosningar lögðum við áherslu
á að bankarnir nýttu strax það svig-
rúm sem þeir hafa til að greiða arð
í ríkissjóð. Við stöndum við það
loforð. Við ætlum að nýta fjármagn
frá bönkunum til að byggja upp
vegakerfið. Innviðir er slagæðar
samfélagsins. Án þeirra drögumst
við aftur úr öðrum þjóðum og sam-
keppnishæfni landsins minnar.
Framsóknarflokkurinn ætlar að
koma Íslandi í fremstu röð. Fram-
sókn til framtíðar.
Framsókn til framtíðar
Sigurður Ingi
Jóhannsson
formaður Fram-
sóknarflokksins
Á kjörtímabilinu verður
unnið að því að byggja upp
gott og samkeppnishæft sam-
félag. Engum vafa er undir-
orpið að ríkuleg verðmæti
felast í því að landið allt sé í
blómlegri byggð.
S k o ð u n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 9M Á n u D A G u R 1 2 . M A R S 2 0 1 8
1
2
-0
3
-2
0
1
8
0
4
:4
2
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
2
A
-7
3
4
8
1
F
2
A
-7
2
0
C
1
F
2
A
-7
0
D
0
1
F
2
A
-6
F
9
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
0
s
_
1
1
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K