Fréttablaðið - 12.03.2018, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 12.03.2018, Blaðsíða 38
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Elmar Hallgríms Hallgrímsson elmar@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@frettabladid.is, Máté Dalmay mate@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is og Ragnheiður Tryggvadóttir heida@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR / FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is, Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is FAXAFENI 5 Reykjavík 588 8477 DALSBRAUT 1 Akureyri 588 1100 R ÝM U M F YR IR N ÝJ U M V Ö R U M Seljum í stuttan tíma eldri gerðir rúma, sýningar eintök og skipti dýnur með veg legum afslætti. HEILSUDÝNUR & HEILSURÚM 25% TIL 50% A F S L ÁT T U R Nú styttist óðfluga í Sónar hátíðina þar s e m f j ö l b r e y t t u r hópur listamanna kemur fram. Í þeim hópi er meðal annars raftónlistar- maðurinn Bjarki Rúnar Sigurðar- son. Það hefur farið tiltölulega lítið fyrir Bjarka hér á Íslandi en hann þó búinn að „meika“ það, ef svo má að orði komast, í raftónlistarheim- inum og hefur spilað víða um heim á undanförnum árum. Bjarki hefur verið að fikta í tón- list síðan hann man eftir sér. „Ég hef verið að reyna að tjá hugsanir mínar og tilfinningar í gegnum tón- list alveg frá því ég man eftir mér. Ég hef unnið með það hvernig mér líður frá degi til dags í einhvers konar tón-dagbók. Margt sem ég bý til er einungis fyrir sjálfan mig,“ útskýrir Bjarki sem er í dag í fullri vinnu við að búa til og spila tón- list. Ég vinn með útgáfufyrirtækinu трип records sem gefur út tónlistina mína, en sömuleiðis rek ég mitt eigið útgáfufyrirtæki bbbbbb records með tveimur vinum mínum. Þar einblínum við á að kynna íslenska danstónlist og dægurlög.“ Eins og áður sagði hefur frekar lítið farið fyrir Bjarka á Íslandi en hann spilar mestmegnis erlendis. Spurður út í muninn á milli þess að spila á Íslandi og erlendis segir hann: „Íslendingar eru kröfuharðir og hafa ákveðna skoðun á hlutun- um, þeir vita hvað þeim finnst gott. Á sama tíma taka þeir hlutunum ekkert of alvarlega eins og fólk sums staðar annars staðar, mér finnst það vera mjög jákvætt.“ Ég hef mikið gaman af því að grínast og hafa það skemmtilegt, sérstaklega þegar alvarlegir teknó- aðdáendur eru nálægt. Heima á Íslandi get ég verið að spila lag aftur á bak í blandi við Siggu Beinteins og svo eftir það komið með tryllt teknó og allir verða glaðir. Fyrir tveimur árum spilaði ég á tónlistarhátíð í Belgíu þar sem flestir voru að búast við einhverjum alvarlegum teknó tónum en ég spilaði bara tónlist úr Tetris í staðinn. Stundum fer það í taugarnar á mér hvað fólk getur verið búið að ákveða fyrir fram hvað sé að fara gerast.“ Bjarki spilaði á Sónar Reykjavík fyrir tveimur árum, þá í bílakjallar- anum. Núna verður hann á stóra sviðinu. Spurður út í hvort það verði mikill munur á tónleikunum hans í ár miðað við fyrir tveimur árum svarar hann játandi. „Já, hugmyndin var að gera eitt- hvað öðruvísi og útkoman er sú að um tíu manns munu koma að upp- setningu myndefnis, ljósa og leik- myndar. Allt eru þetta vinir mínir sem eru algjörir snillingar og hafa komið mér verulega á óvart síðustu daga. Þetta er í fyrsta skipti sem ég tek þátt í svona stórum undirbún- ing fyrir tónleikana mína, ég hef aldrei verið jafn spenntur.“ Bjarki tekur fram að hann sé líka mjög spenntur fyrir að sjá tónleik- ana í bílakjallaranum í ár. „Kjallar- inn er eitt af því besta við Sónar og í ár verður þetta enn betra þegar flestir þeir Íslendingar sem spila eru vinir mínir.“ Bjarki bætir við að þeir félagar hjá bbbbbb records verði með útgáfup- artí í Lucky Records á miðvikudag- inn og þar geta dansþyrstir hitað upp fyrir Sónar. „Þeir sem spila verða EOD, Volruptus, Lord Pussw- hip og ég,“ segir Bjarki spenntur. gudnyhronn@frettabladid.is Hefur aldrei verið jafn spenntur Raftónlistarmaðurinn Bjarki Rúnar Sigurðarson mun spila á Sónar Reykjavík um næstu helgi. Hann lofar mikilfenglegri sýningu á stóra sviðinu og segist aldrei hafa verið jafn spenntur. „Um tíu manns munu koma að uppsetningu myndefnis, ljósa og leikmyndar.“ Bjarki mun skemmta dansþyrstum gestum á Sónar Reykjavík á laugardaginn. Þetta er í fyrsta skipti sem ég tek Þátt í svona stórum undir- búningi fyrir tónleikana mína, ég Hef aldrei verið jafn spenntur. 1 2 . m a r s 2 0 1 8 m Á N U D a G U r22 l í f i ð ∙ f r É T T a B l a ð i ð 1 2 -0 3 -2 0 1 8 0 4 :4 2 F B 0 4 0 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 F 2 A -6 E 5 8 1 F 2 A -6 D 1 C 1 F 2 A -6 B E 0 1 F 2 A -6 A A 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 4 0 s _ 1 1 _ 3 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.