Fréttablaðið - 12.03.2018, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 12.03.2018, Blaðsíða 40
Dreifing dreifing@postdreifing.is Ef blaðið berst ekki 800 1177 Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5800 Ritstjórn 512 5801 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild 512 5401 auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja mest lesna dagblað landsins. ÞÚ GETUR NÁLGAST FRÍTT EINTAK AF FRÉTTABLAÐINU VÍÐSVEGAR UM LANDIÐ. Óskir þú eftir því að fá blaðið í áskrift, hafðu samband við Póstdreifingu. Láru G. Sigurðardóttur BAkþAnkAR Opið allan sólarhringinn í öllum verslunum 89% af lesendum dagblaða* á höfuðborgarsvæðinu á aldursbilinu 18–49 ára lesa Fréttablaðið daglega. *Fréttablaðið og Morgunblaðið. Heimild : Prentmiðlamæling Gallup okt. - des. 2017. Viðþolslaus af kvölum hefur hún reynt nokkur húsráð til að lina verkinn en ekkert slær á tannpínuna. Hún er vel gefin og hörkudugleg. Alla sína tíð unnið fyrir sínu og lagt sig fram við að vera góður samfélagsþegn. Greitt sína skatta. Hún er einstæð þriggja barna móðir. Hún getur ekki leyft sér margt utan lífsins nauðsynjar og nú kvelst hún heima því hún á ekki aur fyrir tann- læknakostnaði. Þetta er sönn saga. Ef hún hefði verið viðþolslaus af verkjum annars staðar í líkamanum hefði hún getað leitað til læknis í von um bata. En af því að verkurinn er í munnholinu þá er lítil von um bata á meðan veskið er tómt. Af hverju er tannlæknaþjónusta ekki sjúkratryggð líkt og önnur heil- brigðisþjónusta? Ef þú ert með verk í tönn þarftu að greiða allan læknis- kostnaðinn sjálf en ef þú færð verk annars staðar í líkamann ertu sjúkra- tryggð. Ef þú brýtur tönn þá ertu ekki sjúkratryggður en ef þú brýtur bein annars staðar í líkamanum ertu það. Hvers vegna er það? Tannheilsa er nátengd almennri heilsu. Ef tannheilsa er slæm geta munnuholsbakteríur sýkt aðra staði í líkamanum ef ónæmiskerfið er bælt og valdið hjartaþelsbólgu svo dæmi sé tekið. Auk þess getur ýmislegt gert tennur útsettari fyrir sjúkdómum, t.d. lyf. Ef aukaverkun af lyfjameð- ferð kemur fram í maga, t.d. magasár eftir ibufen, þá ertu sjúkratryggð. Ef aukaverkun kemur fram í munnholi, t.d. tann- og tannholdssjúkdómar eftir krabbameinslyfjameðferð, þá er sjúkratryggingin bitlaus. Tannheilsa er órjúfanleg heild almennrar heilsu og stór hluti af velferð okkar. Er ekki eðlilegt að geta gengið að því vísu að geta leitað læknis til að lina kvalir í tönnum líkt og annars staðar í líkamanum? Bitlaus sjúkratrygging 1 2 -0 3 -2 0 1 8 0 4 :4 2 F B 0 4 0 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 F 2 A -5 A 9 8 1 F 2 A -5 9 5 C 1 F 2 A -5 8 2 0 1 F 2 A -5 6 E 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 4 0 s _ 1 1 _ 3 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.