Fréttablaðið - 03.03.2018, Blaðsíða 16
www.bjarmaland.is sími 770 50 60
bjarmaland@bjarmaland.is
Einnig: Georgía & Azerbædsjan,
siglingar Moskva - Pétursborg ofl.
RÚSSLAND 2018 - HM Á FERJU
15. - 27. júní I 12 nætur
VERÐ frá
230 000
kr.
Sigling á milli borganna sem Ísland leikur í, HM 2018 í Rússlandi
Moskva - Stalíngrad/Volgograd - Rostov-á-Don
19.- 26. maí I 7 nætur
ÆVINTÝRALJÓMI
TRANSILVANÍU
í fótspor Drakúla greifa í Karpatafjöllum
VERÐ
169 700
kr.
6. - 21. október I 15 nætur
HIÐ ÓÞEKKTA INDÓKÍNA
Víetnam og Kambódía
VERÐ
598 000
kr.
Flug og hótel innifalið
VERÐ frá
276 000
kr.
FÓTBOLTAHÁTÍÐ Í RÚSSLANDI
15.- 23. júní I 8 nætur
Bjarmaland ferðaskrifstofa
Bandaríkin Viðskiptastríð eru góð
fyrir almenning og það er auðvelt
að vinna þau. Þetta sagði Donald
Trump, forseti Bandaríkjanna, í gær
þegar hann brást við ósætti annarra
ríkja við ákvörðun forsetans um að
setja 25 prósenta innflutningstoll á
stál og tíu prósent á ál.
„Við verðum að vernda landið
okkar og verkamennina okkar. Stál
iðnaðurinn okkar er í slæmu standi.
EF ÞÚ ERT EKKI MEÐ STÁL ERTU
EKKI MEÐ RÍKI,“ tísti forsetinn.
Jafnframt sagði hann að ekki væri
skynsamlegt að leggja tolla á inn
fluttar vörur þegar önnur ríki legðu
tolla á vörur sem fluttar eru þangað
frá Bandaríkjunum.
Trump sagði aukinheldur að þar
sem Bandaríkin væru með milljarða
dala viðskiptahalla gagnvart nærri
hvaða ríki sem er væri þörf á við
skiptastríði.
„Til dæmis, þegar við erum með
hundrað milljarða dala viðskipta
halla gagnvart ákveðnu landi ættum
við að hætta þeim viðskiptum. Við
vinnum stórsigur. Það er auðvelt!“
Yfirvöld bæði í Kanada og Evr
ópusambandinu hafa nú þegar
tilkynnt um að ráðist verði í gagn
Segir auðvelt að vinna viðskiptastríð
Ákvörðun ríkisstjórnar Donalds Trump Bandaríkjaforseta um að leggja innflutningstolla á ál og stál vekur reiði Evrópu, Kanada,
Mexíkó, Kína og Brasilíu. Bandaríkjaforseti stendur fast á sínu og segir viðskiptastríð af hinu góða. Þau sé í þokkabót auðvelt að vinna.
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur engar áhyggjur af komandi viðskiptastríði. NorDicphoTos/AFp
Bretland Það geta ekki allir aðilar
fengið allt sem þeir vilja í samninga
viðræðum Bretlands og Evrópusam
bandsins um útgöngu Bretlands, svo
kallað Brexit. Þetta sagði Theresa
May, forsætisráðherra Bretlands, í
ræðu í Lundúnum í gær. Sagði May
jafnframt að þótt viðræðurnar væru
vissulega erfiðar væri það öllum í
hag að komast að góðri niðurstöðu
og að stutt væri í að samkomulag um
aðlögunarferlið næðist.
Á meðal þess sem kom fram í
ræðu forsætisráðherrans var að Bret
land væri vissulega á leiðinni út af
innri markaði Evrópusambandsins.
Það myndi breyta ýmsu í daglegu lífi
Breta. Ítrekaði May þar afstöðu sína
með svokölluðu „hörðu Brexit“ en
ýmsir úr Íhaldsflokki May sem og
flestir úr öðrum flokkum vilja heldur
„mjúkt Brexit“ sem felur í sér áfram
haldandi veru á innri markaðnum og
í tollabandalaginu.
Í ljósi hins harða Brexit munu
Bretar þurfa að komast að sam
komulagi við ríki ESB um fríversl
unarsamninga og sagði May að þeir
þyrftu að vera sanngjarnir og með
ákveðnum skuldbindingum. „Við
gætum til að mynda valið að inn
leiða Evrópureglugerðir á ýmsum
sviðum stjórnsýslu okkar, til að
mynda reglur um samkeppni á
markaði.“
Sagði hún Breta vilja frelsi til þess
að semja um sína eigin fríverslunar
samninga og stýra eigin löggjöf auk
þess sem landamæragæsla á landa
mærum Írlands og NorðurÍrlands
ætti að vera eins lítil og mögulegt
væri. – þea
Geta ekki allir fengið allt
Theresa May,
forsætisráðherra
Bretlands
Búrkína Fasó Skæruliðar réðust
í gær á nokkrar stofnanir í Ouag
adougou, höfuðborg Búrkína Fasó,
og voru franska sendiráðið og
höfuðstöðvar búrkínska hersins á
meðal skotmarka. Í yfirlýsingu frá
búrkínsku ríkisstjórninni sagði að
fjórir árásarmannanna hefðu verið
felldir í sendiráðinu og að minnsta
kosti tveir á herstöðinni. Nokkrir
her og lögreglumenn væru særðir
en engar tilkynningar um andlát
hefðu borist.
Enginn hefur lýst yfir ábyrgð á
árásinni. Remis Fulgance Dandijnou
upplýsingamálaráðherra sagði í við
tali við ríkissjónvarp Afríkuríkisins
að allt benti til þess að um hryðju
verk væri að ræða. BBC greindi frá
því að vitni hefðu séð þungvopnaða
menn stíga út úr bíl sem snarheml
aði. Þeir hófu þá skothríð og héldu í
átt að franska sendiráðinu.
Armand Béouindé, borgarstjóri
Ouagadougou, sagði við franska
blaðið Le Monde að árásarmenn
hefðu sömuleiðis skotið á ráðhús
borgarinnar og að gluggarnir á skrif
stofu borgarstjóra hefðu brotnað
þegar skotið var á bygginguna. „Mér
skilst að þetta séu íslamskir öfga
menn,“ sagði borgarstjórinn. – þea
Ráðist á Ouagadougou
herinn barðist við skæruliða í ouagadougou. NorDicphoTos/AFp
aðgerðir af einhverju tagi. Þá eru
Mexíkó, Kína og Brasilía að velta
fyrir sér að gera slíkt hið sama.
Theo Leggett, fréttaskýrandi BBC,
var í gær ósammála fullyrðingu for
setans. „Ef viðskiptastríð væru í
raun og veru góð og það væri auð
velt að vinna þau væri Alþjóða
viðskiptastofnunin ekki til,“ sagði
í skýringu Leggetts. Flestar þjóðir
teldu ákjósanlegra að semja um
ágreiningsmál. Verndarstefna gæti
skaðað alla hlutaðeigandi aðila.
Bruno Le Maire, fjármálaráðherra
Frakklands, sagði í gær að ákvörðun
Trumps væri óásættanleg.
„Bandaríkin þurfa að átta sig á
því að ef þau fylgja þessu eftir mun
Evrópusambandið svara því á sam
hæfðan hátt. Einhliða aðgerð sem
þessi er óásættanleg. Slíkar aðgerðir
gætu haft mikil og varanleg áhrif á
evrópskt hagkerfi.“
Talsmaður breska forsætisráðu
neytisins sagði Bretlandsstjórn nú
ræða við Trump um hvað fælist í
aðgerðunum.
„Við höfum sérstakar áhyggjur
af því hvernig þetta gæti bitnað á
breskum ál og stáliðnaði.“
thorgnyr@frettabladid.is
3 . m a r s 2 0 1 8 l a U G a r d a G U r16 F r é t t i r ∙ F r é t t a B l a ð i ð
0
3
-0
3
-2
0
1
8
0
4
:3
6
F
B
1
2
8
s
_
P
1
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
1
D
-9
1
0
8
1
F
1
D
-8
F
C
C
1
F
1
D
-8
E
9
0
1
F
1
D
-8
D
5
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
1
2
8
s
_
2
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K