Fréttablaðið - 03.03.2018, Blaðsíða 86
Hvert einasta atriði
hefur sinn sjarma
og hefur keppnin aldrei
verið jafn spennandi. Lög
sem grípa mann strax
eiga jafnan mesta von.
Flosi Jón Ófeigsson
Ég hef verið forfallinn aðdáandi söngvakeppninnar síðan ég var sex ára. Þá fór Stjórnin um
landið og bauð krökkum að taka
þátt í söngvakeppni Stjórnarinnar.
Ég var dolfallinn yfir laginu Eitt
lag enn, sem Sigga og Grétar sungu
í Zagreb 1990, og vann krakka-
keppnina á Höfn í Hornafirði,“ segir
Flosi Jón Ófeigsson, nýr formaður
FÁSES, sem er skammstöfun fyrir
Félag áhugafólks um Söngvakeppni
evrópskra sjónvarpstöðva.
„Ég var einn af þessum krökkum
sem kunnu alla textana utan að,
hvort sem þeir voru á spænsku,
finnsku eða hebresku, og skynjaði
strax þessa ósviknu gleði og töfra
sem einkennir Eurovision-söngva-
keppnina.“
Taumlaus gleði alla helgina
Helgin sem nú er gengin í garð er sú
stærsta í starfi FÁSES.
„Við hófum gleðina strax í gær-
kvöldi með skemmtilegri spurn-
ingakeppni og í dag byrja ég daginn
á galopnum Eurovision-zúmbatíma
í Reebok Fitness í Holtagörðum
klukkan 11.15, þar sem ég er hóp-
tímakennari. Ég reyni að ýta Euro-
vision í allt sem ég get og það verður
líka Eurovision-spinning tími fyrir
meðlimi Reebok Fitness í dag,“ segir
Flosi sem eftir morgunspriklið ætlar
að gera sig kláran fyrir stóra kvöldið
í kvöld.
„Við byrjum fjörið í fyrirpartíi
klukkan hálf fimm, hitum okkur
upp og kýtum um hvaða tvö atriði
enda í lokarimmunni í kvöld, ásamt
því að hlusta á Eurovision-lögin og
taka á móti tveimur afar spenn-
andi leynigestum. Síðan örkum
við saman yfir í Höllina þar sem
við verðum með veifur og hvetjum
hvert einasta atriði til dáða því
markmið FÁSES er að gera upplifun
keppenda og gesta sem æðislegasta
og að allir skemmti sér vel.“
Þegar úrslit liggja fyrir í kvöld
verður í fyrsta sinn haldið glæsilegt
eftirpartí í Ölveri í Glæsibæ, að fyrir-
mynd vinsælla Eurovision-klúbba í
Evrópu.
„Fimm keppendur hafa þegar
staðfest komu sína þangað og ætla
að flytja atriðin sín, og Eurovision-
dragdrottningin Gógó Starr
þeytir skífum til klukkan þrjú í nótt.
Stemning í Eurovision-klúbbunum
úti er engu lík, eins og þeir þekkja
sem farið hafa reglulega utan til leiks
í Eurovision-landi,“ segir Flosi.
FÁSES er eins og Tólfan
FÁSES er einn af stærstu Eurovisi-
on-aðdáendaklúbbum í Evrópu og
eru virkir meðlimir yfir 400 talsins.
Flosi tók við formennsku í haust en
hefur verið í stjórn frá því félagið var
stofnað árið 2011.
„FÁSES er eins og önnur fjölskyld-
an mín og einstaklega skemmti-
legur félagsskapur. Það er óskaplega
gaman að hittast árlega til að upplifa
gleðina, samhuginn og samkennd-
ina. Líkja má FÁSES við stuðnings-
liðið Tólfuna í fótboltanum því við
styðjum framlagið sem vinnur alla
leið og hvert sem leiðin liggur; hvort
sem lagið fer alla leið í aðalkeppnina
eða stoppar í undankeppninni,“
segir Flosi og er fullur tilhlökkunar
að fara til Lissabon í maí.
„Það er mikill áhugi hjá Íslending-
um á að fara í aðalkeppnina í Portú-
gal og sóttu yfir 150 manns um að fá
aðdáendapakka í aðalkeppnina en
við fengum þá bara 52. Margir ætla
út á eigin vegum og ég geri ráð fyrir
að á annað hundrað Íslendingar fari
utan til að baða sig í portúgalskri sól
og njóta glyss og glamúrs Eurovis-
ion- veislunnar.“
Flosi segir sigurvegarann frá því
í fyrra, Salvador Sobral, allan að
hressast en hann fékk nýtt hjarta í
desember síðastliðnum.
„Við reiknum með að Salvador
stígi á svið í Lissabon. Hann stóð
einn á sviðinu þegar hann sigraði í
fyrra og var atriðið látlaust og sætt.
Portúgalar hafa hug á að mynda
svipaða stemningu í ár og dempa
aðeins ljósasjó og tæknibrellur. Það
er áhugi fyrir því að draga svolítið
úr umbúnaði keppenda en einblína
frekar á sönginn og lagið, eins og
var á árum áður. Með því er öllum
löndum gert jafn hátt undir höfði
því ekki eru þau öll í stakk búin að
halda eins íburðarmikla keppni og
ríkari löndin geta,“ útskýrir Flosi.
Æsispennandi keppni í ár
Flosi vill ekki gera upp á milli
laganna sem keppa til úrslita í
Laugardalshöll í kvöld.
„Hvert einasta atriði hefur sinn
sjarma og hefur keppnin aldrei
verið jafn spennandi. Lög sem grípa
mann strax eiga mesta von. Hvert
land hefur aðeins þrjár mínútur til
að stimpla sig inn í hug og hjörtu
kjósenda og verður lagið helst að
grípa mann á fyrstu sekúndu. Við í
FÁSES styðjum alla keppendur jafnt
enda eru þeir allir flottir söngvarar
með frábærar lagasmíðar.“
Í dag eru sléttir sjötíu dagar í
aðalkeppnina í Lissabon.
„Þá verður FÁSES í Portúgal
að njóta þess að vera túristar og
skemmta sér í botn. Við munum
þó miðla upplifun okkar að utan
og taka fullt af skemmtilegum
snúningum úti.
Hægt verður að fylgjast með því
öllu á fases.is þar sem nú þegar er
mikið um að vera fyrir keppnina.
Við fylgjumst vel með öllum
forkeppnunum úti og því helsta
sem er að frétta í tengslum við
keppnina,“ segir Flosi og hlakkar
mikið til kvöldsins.
„Í Höllinni mun hver og einn
keppandi finna fyrir stuðningi
FÁSES. Draumur okkar er að allir
áhorfendur í salnum séu með fána
og blöðrur, líkt og sænska ríkis-
sjónvarpið útvegar gestum sínum
í úrslitakeppninni í Svíþjóð. Það
kemur mjög vel út í sjónvarpi og
skapar jákvæða orku fyrir þátt-
takendur og alla viðstadda.“
Fylgstu með á fases.is og á
Facebook undir FÁSES.
Lagið verður að grípa strax
Það verður mikið um dýrðir í Höllinni í kvöld þegar keppt verður til úrslita í Söngvakeppni Sjón-
varpsins. Flosi Jón Ófeigsson, nýr formaður FÁSES, segir ógjörning að gera upp á milli laganna.
Flosi segir fjóra félaga FÁSES taka þátt í kvöld, þau Eirík Hafdal og Sigurjón Böðvarsson í Fókus, Þórunni Ernu Clausen og Svein Rúnar Sigurðsson. MYND/ERNIR
Þórdís Lilja
Gunnarsdóttir
thordisg@frettabladid.is
BRÚÐKAUPSBLAÐ
Veglegt sérblað Fréttablaðsins
um brúðkaup kemur út 23. mars nk.
Allt sem hugsast getur varðandi brúðkaup.
Tryggðu þér gott auglýsingapláss
í langmest lesna dagblaði landsins.
Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402
eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is
12 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 3 . M A R S 2 0 1 8 L AU G A R DAG U R
0
3
-0
3
-2
0
1
8
0
4
:3
6
F
B
1
2
8
s
_
P
0
9
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
8
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
1
E
-0
C
7
8
1
F
1
E
-0
B
3
C
1
F
1
E
-0
A
0
0
1
F
1
E
-0
8
C
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
1
2
8
s
_
2
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K