Fréttablaðið - 03.03.2018, Blaðsíða 42
Myndin sem
var valin inn á
PhotoVogue.
Fyrirsætan heitir
Julia Summut
og myndin var
tekin á Möltu.
MYND/ANNA ÓSk
Ég vil
ekki
eltast um
of við það
sem er
helst í tísku
hverju
sinni. En
auðvitað er
ég undir
áhrifum frá
mínum
samtíma.
Ragnhildur Sif
Reynisdóttir
Brynhildur
Björnsdóttir
brynhildur@frettabladid.is
Anna Ósk er búsett í Gauta-borg og hafa myndir hennar birst á ýmsum vettvangi.
Samstarf þeirra Ragnhildar hefur
verið farsælt og myndir eftir
Önnu Ósk þar sem skartgripir
Ragnhildar koma mikið við sögu
birtust á dögunum á PhotoVogue
sem er vettvangur á vegum ítalska
Vogue þar sem ljósmyndarar geta
sent inn myndir en aðeins brot
af aðsendum myndum endar á
síðunni.
„Ég sendi Önnu Ósk nýjungar
sem ég var að vinna með og hún
fór með þær með sér í myndatöku
á tískuviku á Möltu,“ segir Ragn-
hildur. „Við Anna Ósk höfum unnið
saman hátt í tíu ár. Mér finnst
mikilvægt að ná ákveðinni stemm-
ingu fyrir skartgripina mína því það
skiptir mig máli hvernig fólk sér þá
svo ég var að leita mér að ljósmynd-
ara til að vera í samstarfi við. Við
Anna Ósk hittumst í hádegismat
og allt small saman. Ég heillaðist af
þessum heimi og stemmingu sem
hún nær að skapa.“
Hún segir að skartgripirnir á
myndunum séu flestir úr línum
sem hún er að selja. „Á einni
myndinni er men frá 2010 sem ég
gerði þegar ég var að ljúka fram-
haldsnámi í Bretlandi og það er
bara til þetta eina. Ég smíða alla
skartgripi sjálf og þeir eru hluti af
línum sem allar heita ákveðnum
nöfnum.“
Ragnhildur vill helst að skart-
gripirnir hennar séu tímalausir.
„Ég vil ekki eltast um of við það
sem er helst í tísku hverju sinni. En
auðvitað er ég undir áhrifum frá
mínum samtíma. Stundum held
ég að ég sé að koma með hugmynd
að skartgrip sem ég held að ég hafi
hvergi séð. Þegar ég fer að skoða
betur fer ég að sjá sambærilega
skartgripi alls staðar. Það er eins
og eitthvað liggi í loftinu, einhver
hugmynd sem margir grípa á sama
tíma, mjög merkilegt og stundum
frekar svekkjandi.“
Hún segir innblásturinn koma
úr öllum áttum og stundum
óvæntum. „Sumar línur koma
mjög fljótt og mér reynist auðvelt
að vinna þær, aðrar taka langan
tíma, oft upp í nokkur ár og geta
verið mjög snúnar. Mér finnst
nauðsynlegt að stunda hreyfingu,
það er stór partur af mér og þá fer
flæðið af stað og ímyndunaraflið á
ferð. Ég þarf líka inn á milli að vera
Íslenskt skart í PhotoVogue
Skartgripahönnuðurinn og gullsmiðurinn Ragnhildur Sif Reynisdóttir og Anna Ósk ljósmyndari
hafa unnið saman í bráðum áratug og þetta samstarf rataði á vefsíðu ítalska Vogue.
Hér má sjá Hlín
Gísladóttur,
dóttur Ragn-
hildar, með
skartgripi úr
línu sem heitir
Auður í höfuðið
á móður Ragn-
hildar. MYND/
ANNA ÓSk
Ragnhildur Sif Reynisdóttir er komin
af gullsmiðum í marga ættliði og
hannar nú skartgripi sem hún selur
meðal annars á skartgripir.is en
myndir af þeim hafa birst meðal
annars á vefsíðu ítalska Vogue.
MYND/ANNA ÓSk
ein með sjálfri mér, er það að hluta
á vinnustofunni og í göngutúrum.
Eins hef stundað ég hugleiðslu-
jóga frá því fyrir tvítugt og leita oft
þangað.“
Ragnhildur lærði gullsmíði fyrst
á Íslandi hjá föður sínum, Reyni
Guðlaugssyni gullsmíðameistara.
„Síðan fór ég til Bretlands í skart-
gripahönnun með fjölskylduna
með mér því maðurinn minn
var einnig í námi. Eftir nokkur ár
fluttum við heim en ég var ekki
komin með nóg og fór í masters-
nám í skartgripahönnun.“
Hún lýsir hönnun sinni sem ein-
faldri og hreinni. „ Eins finnst mér
gaman að hægt sé að nota skart-
gripina á fleiri vegu en einn, til
dæmis að hægt sé að nota hálsmen
líka sem armband. Eins langt og
það nær. Svo reyni ég að hafa stóru
menin með einhverja „merkingu“
eða skemmtilegt notagildi. Ég kalla
menin mín nöfnum eins og Lykill
að velgengni, Lífið er list, Njóttu og
Pendúll. Mér finnst gaman að gera
fallegan hlut sem er ekki allur þar
sem hann er séður.“
Skartgripi Ragnhildar er hægt að
kaupa á heimasíðunni skartgripir.
is eða gegnum Facebooksíðuna Sif
skartgripir. Hún verður einnig með
opið hús í tengslum við Hönnunar-
Mars en allar upplýsingar um það
er hægt að nálgast á Facebook-
síðunni Sif skartgripir.
ÁSKRIFTARTILBOÐ
Heildarverðmæti pakkans er 19.900 kr.
5 tölublöð af Glamour, send heim að dyrum
+ EGF Serum frá Bioeffect á aðeins
9.990 kr.
4 kYNNINGARBLAÐ FÓLk 3 . M A R S 2 0 1 8 L AU G A R DAG U R
0
3
-0
3
-2
0
1
8
0
4
:3
6
F
B
1
2
8
s
_
P
0
9
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
8
7
K
_
N
Ý.
p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
3
9
K
_
N
Y
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
1
E
-1
B
4
8
1
F
1
E
-1
A
0
C
1
F
1
E
-1
8
D
0
1
F
1
E
-1
7
9
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
1
2
8
s
_
2
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K