Fréttablaðið - 03.03.2018, Blaðsíða 40
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um-
fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar-
efni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 512 5349 | Ragnheiður Tryggvadóttir,
heida@frettabladid.is, s. 512 5367 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is, s. 512 5368
| Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@frettabladid.is, s. 512 5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@
frettabladid.is, s. 512 5358 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is s. 512 5338
Útgefandi:
365 miðlar
Ábyrgðarmaður:
Elmar Hallgríms Hallgrímsson
Sölumenn: Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 512 5457 | Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 512 5429 |
Ólafur H. Hákonarson, olafurh@frettabladid.is, s. 512 5433 | Máté Dalmay, mate@frettabladid.is, s. 512 5442 ,
Jökull Jóhannsson hefur um rúmlega eins árs skeið starfað hjá Spotify sem er stærsta
tónlistarveita heims og um leið eitt
þekktasta tæknifyrirtæki heims.
Höfuðstöðvar fyrirtækisins eru í
Stokkhólmi í Svíþjóð.
Hann segir starfið vera spenn-
andi og skemmtilegt auk þess sem
Spotify sé mjög lifandi vinnu-
staður. Lífið í Stokkhólmi er auk
þess dásamlegt, borgin er falleg og
fjölskylduvæn og þar hefur fjöl-
skyldan komið sér vel fyrir. „Í starfi
mínu hjá Spotify starfa ég við rann-
sóknir á notendahegðun og greini
hlustunarhegðun notenda. Ég bý
til tölfræðimódel sem miðar að því
að auðvelda notendum Spotify að
finna það sem þeir eru að leita að,
byggt á venjum þeirra.“
Lifandi vinnustaður
Eins og við er að búast er Spotify
mjög lifandi og spennandi fyrir-
tæki. „Spotify er þekkt um allan
heim fyrir að vera skemmtilegur
vinnustaður og hvað vel er hugsað
um starfsmenn fyrirtækisins. Til að
mynda eru tónleikar á skrifstofum
fyrirtækisins reglulegir viðburðir,
þar sem heimsfrægir tónlistar-
menn koma fram. Starfsmenn hafa
einnig aðgang að t.d. sýndarveru-
leikaherbergi, tölvuleikjaherbergi,
karókíherbergi og mörgu fleira
til að geta tekið sér frí frá annríki
dagsins.“
Byrjaði með Nintendo
Jökull er menntaður á sviði gervi-
greindar en hann lauk námi við
Konunglega tækniháskólann í
Stokkhólmi í vélrænu gagnanámi
(e. machine learning) vorið 2017.
Skólagangan hófst þó í Þingholt-
unum í Reykjavík þar sem hann
stundaði nám við Austurbæjar-
skóla. „Á þessum árum eignaðist ég
mína fyrstu leikjatölvu, Nintendo
NES, sem átti hug minn allan. Strax
eftir fermingu keypti ég mér fyrstu
borðtölvuna mína og byrjaði að
fikta við forritun og búa til vef-
síður.“
Breytti um plan
Eftir útskrift lá leiðin í Iðnskólann
í Reykjavík þar sem hann lærði
Fjölskyldan kann vel við sig í Svíþjóð og ætlar að nýta næsta sumar í frekari ferðalög innanlands. Hér er Jökull ásamt
eiginkonu sinni, Báru Kristgeirsdóttur, og yngra barninu, Urði Jökulsdóttur.
Lifið í Stokkhólmi fer vel í fjölskylduna. Hér er Bára Kristgeirsdóttir, eiginkona
Jökuls, ásamt börnunum tveimur, Tóbíasi Ingvarssyni og Urði Jökulsdóttur.
Starri Freyr
Jónsson
starri@365.is
Framhald af forsíðu ➛
grunninn í tölvunarfræði ásamt
öðrum raungreinum. Draumurinn
var þó alltaf að læra gervigreind og
þangað stefndi hann á fyrsta degi.
„En á öðru ári í tölvunarfræði varð
ljósmyndun aðaláhugamálið og
skipti ég þá yfir og útskrifaðist sem
ljósmyndari úr Iðnskólanum.“
Næst lá leiðin til Danmerkur
þar sem Jökull lærði ljósmyndun
ásamt því að vinna sem aðstoðar-
maður ljósmyndara í Kaupmanna-
höfn. „Haustið 2008 flutti ég aftur
heim til Íslands með það í huga að
stofna eigið stúdíó og koma undir
mig fótunum sem ljósmyndari.
Nokkrum dögum eftir að ég lenti
á Íslandi horfði ég svo á Geir H.
Haarde blessa Ísland. Þá rann upp
fyrir mér að tímasetningin væri
líklegast ekki rétt til að opna ljós-
myndastúdíó og fór ég því að íhuga
aðra möguleika.“
HR er frábær skóli
Jökull ákvað að setjast aftur á
skólabekk og þá lá beinast við að
klára tölvunarfræðina. „Ég hóf nám
í Háskólanum í Reykjavík sem er
frábær skóli sem heldur vel utan
um nemendur sína og býður upp á
frábær tækifæri.
Þar gafst mér tækifæri til þess að
kenna sem aðstoðarkennari með-
fram námi og taka þátt í skemmti-
legum verkefnum tengdum því
sem ég var að læra, t.d. verkefninu
Almannaróm sem unnið var í sam-
starfi við Google og kafbátakeppni
sem haldin er á vegum ameríska
sjóhersins.“
Draumurinn endurvakinn
Eftir útskrift hóf hann störf hjá
Advania við samþættingu gagna
á milli kerfa hjá viðskiptavinum
þeirra. Nokkrum árum síðar skipti
hann yfir til Meniga þar sem hann
starfaði sem bakendaforritari.
„Eftir nokkur ár þar fannst mér
ég þurfa að láta drauminn verða
að veruleika og hóf að horfa út
fyrir landsteinana í leit að námi í
gervigreind sem leiddi mig síðar til
Stokkhólms árið 2015.“
Spotify heillaði
Þegar Jökull fluttist til Svíþjóðar
var efst í huga hans að starfa hjá
Spotify enda hefur fyrirtækið náð
mjög langt og er í fararbroddi
þegar kemur að tæknilegri nýsköp-
un að hans sögn. „Þegar kom að því
að leita að lokaverkefni hafði ég
samband við fyrirtækið með það í
huga að vinna lokaverkefnið mitt
fyrir þá. Þau voru mjög jákvæð og
áhugasöm og voru til í leyfa mér að
vinna verkefnið með sér. Í kjölfarið
var mér svo boðið starf hér.“
Fer vel um fjölskylduna
Hann segir frábært að búa í Svíþjóð
og vel sé hugsað um fjölskyldufólk.
„Ég bý á Kungsholmen í Stokk-
hólmi ásamt tveimur börnum og
eiginkonu minni Báru Kristgeirs-
dóttur sem starfar sem grafískur
hönnuður hjá einni stærstu hönn-
unarstofu Stokkhólms. Samgöngu-
kerfið hér er mjög gott og ekki þarf
að eiga bíl. Velferðar- og heil-
brigðiskerfið er með þeim bestu í
heiminum og skólarnir eru mjög
góðir enda eru börnin alsæl.“
Saknar sundlauganna heima
Sumrin í Stokkhólmi eru auk þess
frábær segir Jökull, þar sem fólk
lætur fara vel um sig í almennings-
görðum og syndir í sjónum inni
í borginni. „Það sem ég sakna þó
mest frá Íslandi er að geta farið í
sund hvenær sem er. Hér fer fólk
í sund til þess að synda og því er
ekki lögð mikil áhersla á heita
potta eða leiksvæði fyrir börn.
Annars eru frekari ferðalög fram
undan í sumar með fjölskyldunni
innan Svíþjóðar og þá viljum við
sjá meira af því frábæra landslagi
sem Svíþjóð hefur upp á að bjóða.“
LAGERSPRENGJA
3 og 4. mars 2018
Verslunin hættir og
allt á að seljast!
50 – 80% afsláttur
Opið mán. – föst. Kl. 10 - 18
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 3 . M A R S 2 0 1 8 L AU G A R DAG U R
0
3
-0
3
-2
0
1
8
0
4
:3
6
F
B
1
2
8
s
_
P
0
8
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
8
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
1
E
-2
0
3
8
1
F
1
E
-1
E
F
C
1
F
1
E
-1
D
C
0
1
F
1
E
-1
C
8
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
1
2
8
s
_
2
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K