Víkurfréttir - 08.03.2018, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIR Á SUÐURNESJUM f immtudagur 8. mars 2018 // 10. tbl. // 39. árg.
Rósa Víkingsdóttir, hjúkrunarfræð-
ingur og móðir langveiks barns,
sendi opið bréf til Svandísar Svavars-
dóttur, heilbrigðisráðherra í síðustu
viku í Morgunblaðið. Í bréfinu talar
hún um hversu mikið álag er á for-
eldra sem eiga langveik börn.
Jenný, dóttir hennar er með arf-
gengan efnaskiptasjúkdóm sem ræðst
á taugakerfið og nefnist Batten Di-
sease, en líftími einstaklinga með
sjúkdóminn er 20 til 30 ár. Jenný er
blind og flogaveik og þarf aðstoð við
allar athafnir daglegs lífs.
Jenný hefur verið með liðveislu frá
öðrum bekk en þá greindist hún með
augnbotnahrörnun sem varð til þess
að hún varð blind. Seinna greinist hún
með sjúkdóminn eftir að hún fékk
flogaköst tólf ára gömul. Þá var ljóst
að hún þurfti meiri umönnun. „Sóla-
hringsummönnun hófst í september
á síðasta ári en búið er að útbúa fram-
tíðarbúsetu í bílskúrnum heima þar
sem að starfsfólk hefur aðstöðu en
þar er meðal annars bað og eldhús.
Það er mikilvægt að það sé metnaður
settur í mönnun þeirra sem sinna
umönnun.“
Rósa segir að það sé mikil óvissa í
framtíðinni, sú óvissa tengist meðal
annars því hvort hún geti haldið
áfram að sinna sínu starfi, hvort að
sumarfrí sé möguleiki og hvort það
sé hægt að lifa eðlilegu lífi með fjöl-
skyldunni. „Home in Home“ er ný
stefna, hún snýst um það að hafa
börnin sín sem lengst heima af því
að auðvitað vill maður hafa þau sem
lengst hjá sér í því umhverfi sem þeim
líður vel í.“
Tjáir tilfinningar
sínar með svipbrigðum
Eins og fram hefur komið hér að
ofan getur Jenný ekki tjáð sig og
þarf aðstoð við að sinna sínum dag-
legu þörfum. „Hún er með besta
móti þannig séð, er andlega kát en
það þarf að hjálpa henni að fá nær-
ingu og sinna daglegu þörfum. Hún
þarf aðstoð við allar athafnir daglegs
lífs, þarf flutning úr rúmi í stól. Hún
hefur ekki mikið úthald á sama stað
í einu, kannski klukkutíma í senn.
Hún hlustar á DVD-myndir, við lesum
fyrir hana og spjöllum við hana. Hún
notar eitt og eitt orð, tjáir tilfinningar
sínar með svipbrigðum og með brosi,
en hún er mjög kát þessa dagana.“
Jenný hefur verið í fjóra mánuði að
heiman og dvelur núna á HSS en Rósa
og fjölskylda hennar eru að bíða eftir
því að fá fullnægjandi mönnun til þess
að Jenný komist heim.
Óvissan er verst
Sjúkdómurinn hennar Jennýjar gerir
engin boð á undan sér en hann er
í jafnvægi í nokkra mánuði og svo
ágerist hann en að lokum kemur hún
til með að missa alla færni. „Hún
veiktist í Noregi í fyrra en hún hafði
áður veikst 2016, hún var búin að
vera á góðu róli á lyfjunum sínum
þar til 2016 og svo líður rúmt ár þar
til að sjúkdómurinn ágerist. Það var
í nóvember í fyrra í Noregi. Það er
óvissan sem er verst í þessu, maður
vill fá að lifa sem eðlilegasta lífi. Ég
vinn 50% vinnu í heimahjúkrun og
vil geta farið til hennar og veitt henni
umhyggju sem foreldri eftir vinnu,
ekki sem umönnunaraðili, því að
starfsfólk og foreldri eru ekki það
sama. Mér finnst líka mikilvægt að
hafa hana heima í sínu umhverfi.“
Rósa segir að það sé mikilvægt að fá
fólk til starfa í umönnun og það þarf
að benda á hvað starfið er gefandi
og lærdómsríkt. Hún segir einnig
að ríki og bær þurfi verklagsreglur
og framtíðarstefnu um það hvernig
eigi að sinna langveikum börnum.
rannveig@vf.is
Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 // Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmóa 4a,
4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000 // Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, sími
421 0004, pket@vf.is // Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is
// Blaðamenn: Rannveig Jónína Guðmundsdóttir, sími 421 0002, rannveig@vf.is //
Auglýsingastjóri: Andrea Sif Þorvaldsdóttir, sími 421 0001, andrea@vf.is // Útlit & um-
brot: Jóhann Páll Kristbjörnsson, johann@vf.is // Afgreiðsla: Aldís Jónsdóttir, sími 421
0000, aldis@vf.is, Dóróthea Jónsdóttir, dora@vf.is // Prentun: Landsprent // Upplag:
9000 eintök // Dreifing: Íslandspóstur // Dagleg stafræn útgáfa: vf.is og kylfingur.is
Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið andrea@vf.is. Auglýsingar berist fyrir kl. 17:00
á mánudegi fyrir útgáfudag, sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga
er á vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15:00 á mánudögum. Sé fimmtudagur frídagur
þá kemur blaðið út á miðvikudögum. Dreifing blaðsins tekur að jafnaði tvo daga og er
dreift inn á öll heimili á Suðurnesjum.
Efni til Víkurfrétta skal berast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á vef Víkur
frétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða greinar birtast í prentaðri útgáfu Víkurfrétta.
Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á
vefsíðum Víkurfrétta.
FRÉTTIR Á SUÐURNESJUM
MANNLÍF Á SUÐURNESJUM
VIÐSKIPTI Á SUÐURNESJUM
ÍÞRÓTTIR Á SUÐURNESJUM
UMRÆÐAN Á SUÐURNESJUM
FINNDU OKKUR Á FACEBOOK
DAGLEGAR FERÐIR ALLA VIRKA DAGA
S U Ð U R N E S - R E Y K J A V Í K
845 0900
FERÐIR Á DAG
ALLTAF PLÁSS
Í BÍLNUM
„Óvissan er verst“
Rósa Víkingsdóttir á langveikt barn:
- Segir mikilvægt að foreldrar fái að sinna sínu hlutverki
„Það er mikilvægt að það
sé tryggt að við getum
verið í okkar hlutverki sem
foreldrar, ég vil sjá um-
ræðuna fara í þann farveg
og benda á það.“
Rósa Víkingsdóttir, hjúkrunarfræðingur, ásamt Jenný dóttur sinni á
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja í síðustu viku. VF-mynd: Hilmar Bragi
Mestar hækkanir á fasteigna-
mati er í Reykjanesbæ þegar tillit
hefur verið tekið til breytinga,
fráveitugjöld í fjölbýli hækka um
27% í Njarðvík og 28% í Keflavík.
Hækkunin er þó minni í sérbýli í
Njarðvík og Keflavík eða 15%. Þetta
kemur fram í verðlagseftirliti ASÍ
sem kannaði þær breytingar sem
orðið hafa á álagningu á fasteigna-
gjöldum og útsvari milli áranna
2017 og 2018 í fjölmennustu sveitar-
félögum landsins.
Í Njarðvík eru næst hæstu gjöldin
fyrir 75fm fjölbýli á landinu eða
226.049 kr. Þegar 100 fm fjölbýli
eru skoðuð eru næst hæstu gjöldin
í Keflavík eða 279.224 kr.
Fasteignagjöld fyrir 120 fm fjölbýli
eru hæst í Keflavík eða 344.517 kr.
Munurinn á hæstu og lægstu gjöld-
unum í þessu tilfelli er 140.194 kr. eða
69%. Næst lægstu gjöldin eru í Selja-
hverfi, Reykjavík á 208.824 kr. en þau
næst hæstu í Njarðvík á 314.633 kr.
Meiri munur er á fasteignagjöldum
milli sveitarfélaga í sérbýli en munur-
inn á hæstu og lægstu gjöldunum fyrir
150 fm sérbýli er til að mynda 194.466
kr. eða 76%. Þannig eru fasteignagjöld
í Keflavík fyrir þessa gerð af húsnæði
hæst á 450.207 kr.
Fyrir 200 fm sérbýli er Keflavík með
hæstu gjöldin eða 508.052 kr.
Reykjanesbær er eina bæjarfélag
landsins sem breytir útsvarsprósentu
sinni en hún hefur verið lækkuð um
3,52 %, áður hafði útsvarið hækkað
vegna slæmrar fjárhagstöðu sveitar-
félagsins
Þegar tekið er tillit til hækkana á
lóðamati hækkar hún hins vegar í
flestum bæjarfélögum, mest í fjölbýli
á Reykjanesi um 33,9% í Keflavík og
30,9% á í Njarðvík.
Þegar tillit hefur verið tekið til breyt-
inga á fasteignamati má sjá mestar
hækkanir í Reykjanesbæ en þar
hækka fráveitugjöld í fjölbýli um 27%
í Njarðvík og 28% í Keflavík. Hækk-
unin er öllu minna í sérbýli í Njarðvík
og Keflavík eða 15%.
Nánar má lesa um verðlagseftirlitið
á heimasíðu ASÍ.
MESTAR HÆKKANIR FASTEIGNAMATS Í REYKJANESBÆ