Víkurfréttir - 08.03.2018, Síða 4
4 FRÉTTIR Á SUÐURNESJUM f immtudagur 8. mars 2018 // 10. tbl. // 39. árg.
Söfn á Suðurnesjum bjóða í tíunda
sinn upp á sameiginlega dagskrá
helgina 10. – 11. mars n.k. og kallast
þessi árlegi viðburður Safnahelgi
á Suðurnesjum. Markmiðið hefur
frá byrjun verið að kynna fyrir
landsmönnum hin fjölbreyttu söfn
og sýningar sem sveitarfélögin á
Suðurnesjum bjóða upp á. Þetta
er liður í menningarferðaþjón-
ustu svæðisins og upplagt fyrir
íbúa höfuðborgarinnar að renna
í bíltúr hingað suður eftir um
helgina og upplifa eitthvað af því
fjölmarga sem hér verður í boði.
Íbúar Suðurnesja eru að sjálfsögðu
líka hvattir til að kíkja við og endi-
lega að taka með sér gesti. Söfn, setur
og sýningar á svæðinu eru mörg og
fjölbreytt og margir skemmtilegir
viðburðir verða á döfinni. Athygli
er vakin á því að ókeypis er inn á öll
söfnin að þessu tilefni og um leið á þá
dagskrá sem er í boði á hverjum stað
nema annað sé tekið fram. Sveitar-
félögin fimm á Suðurnesjum hafa
unnið sameiginlega að undirbúningi
dagskrárinnar og er verkefnið stutt
af Uppbyggingarsjóði Suðurnesja.
Sjá má alla dagskrána á safnahelgi.is.
Dagskráin er afar fjölbreytt; alls kyns
sýningar, tónleikar, fyrirlestrar og
margs konar uppákomur. Söfn, safn-
vísar og sýningar nálgast á annan
tuginn og fjölbreytni safnanna er í
raun einstök á ekki stærra svæði.
Sjósókn og vinnsla sjávaraflans er
kynnt á þremur söfnum í þremur
mismunandi bæjarfélögum, Byggða-
safninu í Garði, Kvikunni í Grindavík
og Bátasafninu í Duus Safnahúsum.
Náttúran er áberandi í Þekkingarsetri
Suðurnesja og í Gestastofu Reykja-
ness jarðvangsins í Duus Safnahúsum
og að sjálfsögðu í Orkuverinu Jörð
í Reykjanesvirkjun. Í Duus Safna-
húsum eru átta sýningarsalir með
fjölbreyttum sýningum um sögu, listir
og náttúru og þar verða t.d. leiðsagnir
og gjörningar í tengslum við tvær
sýningar á sunnudeginum. Óhætt er
líka að nefna Slökkviliðsminjasafn Ís-
lands í Safnamiðstöðinni í Ramma og
sýningar Páls Óskars og Bjögga í Rokk-
safninu í Hljómahöllinni. Nokkur
einkasöfn verða líka opin almenningi
m.a. í Sandgerði og Garðinum og mál-
þing um Stefán Thorarensen tónskáld
verður haldið í Kálfatjarnarkirkju á
Vatnsleysuströnd. Menningarvika
Grindavíkur hefst þessa sömu helgi og
þar verður fjöldi viðburða alla helgina
og er öllum m.a. boðið á opnunarvið-
burðinn í Grindavíkurkirkju á laugar-
deginum. „Við bjóðum alla velkomna
og hvetjum fjölskyldur til að koma og
njóta þess sem í boði er. Fjöldi góðra
veitinga- og kaffihúsa er í bæjunum
og víða er list- og handverksfólk einn-
ig með sölu á munum sínum,“ segir
í tilkynningu sem menningarfull-
trúar sveitarfélaganna á Suðurnesjum
sendu út.
- Sjá nánari dagskrá á safnahelgi.is.
Tveir skemmtilegir viðburðir
verða í listasal Duus Safnahúsa á
sunnudag kl. 15 sem enginn listá-
hugamaður ætti að láta framhjá
sér fara. Aðalsteinn Ingólfsson list-
fræðingur verður með leiðsögn um
sýninguna Hjartastaður sem sett var
upp í tilefni 100 ára fullveldisafmæli
Íslands. Þar gefur að líta einstakt
úrval málverka af Þingvöllum eftir
marga helstu myndlistarmenn Ís-
lands á 20. öld en verkin eru öll í
eigu safnarans Sverris Kristinssonar.
Hvernig hlutu Þingvellir þann sess
sem þeir skipa í hjörtum okkar Ís-
lendinga og hefur myndlistin haft þar áhrif á eða hvað? Þeir sem ekki
hafa heyrt í Aðalsteini ættu að grípa tækifærið því hann er margfróður
og mjög skemmtilegur á að hlýða.
Á sunnudaginn fer einnig fram einstakur listviðburður í listasal þegar
portrett málarinn Stephen Lárus Stephen málar portrett af lifandi módeli
á staðnum og eru allir velkomnir að fylgjast með. Stephen, sem er sonur
myndlistarkonunnar góðkunnu Karólínu Lárusdóttur, sýndi í Listasafninu
árið 2014 ásamt nafna sínum Stefáni Boulter þar sem þeir tefldu saman
mannamyndum á sýningunni Mannlegar víddir. Gjörningur Stephens verður
í gangi á meðan á leiðsögn Aðalsteins stendur og því geta gestir slegið tvær
flugur í einu höggi á sunnudag.
Leikþáttur, leiðsögn og tón-
leikar í Duus Safnhúsum
Þeir sem enn eiga eftir að kynna sér sýninguna Reykjanesbær – verndar-
svæði í byggð? í Duus Safnahúsum verða hreinlega að nýta Safnahelgi á
Suðurnesjum til þess. Á sýningunni er skoðað með hvaða hætti byggð
þróaðist á svæðinu og það sem mikilvægara er, spurningum varpað til gesta
um það hvernig þeir sjái fyrir sér framtíðarásýnd ýmissa svæða í bænum
og hvort ástæða sé til að vernda einhver þeirra. Á sýningunni eru bæjar-
búar hvattir til að láta í ljós skoðun á því hvernig þeir vilja t.d. sjá svæðið
í kringum Duus Safnahús þróast og einnig til að koma með ábendingar
um önnur svæði, svo sem í Njarðvík, Höfnum og á Ásbrú, sem þeir telja
ástæðu til að vernda eða huga að með einhverjum hætti.
Á sunnudag kl. 14 verður Sigrún Ásta Jónsdóttir forstöðumaður byggðasafns
Reykjanesbæjar með leiðsögn um sýninguna og á sama stað og tíma munu
félagar úr Leikfélagi Keflavíkur gera tilraun til að fara með okkur í huganum
aftur til fullveldisársins 1918 en í Duus Safnahúsum er þess einmitt minnst
um þessar stundir á ýmsan máta að 100 ár eru liðin frá því að Ísland varð
fullvalda ríki.
Þennan sama dag kl. 15 er boðið upp á leiðsögn og listviðburð í listasal en
lokaviðburður dagsins eru síðan tónleikar Kvennakórs Suðurnesja kl. 16 í
Bíósal og eru þeir öllum opnir. Tónleikarnir eru liður í 50 ára afmælishátíð
kórsins en þennan dag lýkur einnig sýningu Kvennakórsins sem spannar
sögu hans og staðið hefur í Stofunni s.l. mánuð.
SAFNAHELGI Á SUÐURNESJUM 10. OG 11. MARS
safnahelgi.is
Listamaður í beinni
og leiðsögn í Hjartastað
Menningarvika Grindavíkur er nú
haldin í tíunda sinn og að vanda
er dagskráin fjölbreytt. Formleg
setning hátíðarinnar verður í
Grindavíkurkirkju laugardaginn
10. mars kl. 16:00. Að þessu sinni
er áhersla lögð á það sem sameinar
okkur, sama hver bakgrunnur
okkar er. Dagskrá Menningarviku
er að finna á vef Grindavíkurbæjar,
www.grindavik.is.
Nemendur leikskólanna hafa unnið
með Önnu Sigríði Sigurjónsdóttur
myndhöggvara undir merkjum
fjölmenningar og ákváðu að í stað
þess að horfa á það sem gerir okkur
mismunandi á einn eða annan hátt,
horfum við á hvað það er sem við
eigum sameiginlegt óháð uppruna,
kyni eða aldri. Sýning á verkum
þeirra verður í Kvikunni og áhuga-
vert að sjá hvað það er sem þeim
finnst sameina fólk og við eiga
sameiginlegt. Sýningin heitir Hjart-
sláttur og gott fyrir fullorðna að
hlusta á skilaboð unga fólksins okkar
og hlusta um leið og við skoðum.
Fjölbreyttir viðburðir verða í Grunn-
skólanum og nemendur Tónlistar-
skólans standa fyrir fjölbreyttri dag-
skrá. Áhersla er lögð á unga fólkið
og listsköpun þeirra og á opnunar-
hátíðinni stíga ungir söngvarar á
stokk og leyfa íbúum að njóta færni
sinnar en þau hafa verið á námskeiði
frá byrjun árs. Auk tónleikanna á
opnunarhátíð Menningarviku halda
þau tónleika í Kvikunni þar sem hóp-
arnir fimm sem sótt hafa námskeiðið
flytja dagskrá sína.
Veitingastaðir bjóða Grindvíkingum
til mikillar veislu og auk síns hefð-
bundna góðgætis heimsækja fjöl-
margir tónlistarmenn veitingin
heim á Menningarvikunni. Í Kvennó
verður litið til fortíðar þar sem sagt
verður frá ævi og störfum fjögurra
einstaklinga sem bjuggu í Grindavík
á fyrri hluta 20. aldar og settu öll
mark sitt á samfélagið. Stór og glæsi-
legur karlakór kemur alla leið frá
Manchester á Englandi og flytur fjöl-
breytta dagskrá, Sævar Helgi skoðar
himingeiminn með gestum Bóka-
safnsins, kynntar verða bækur sem
snerta Grindavík og Grindvíkinga og
á morgnana verður hægt að hlusta á
áhugaverðar frásagnir á Bryggjunni.
Lokatónninn er svo sleginn á sunnu-
dag, 18. mars með tónleikum Eyjólfs
Ólafssonar í Grindavíkurkirkju og á
laugardeginum heimsækja félagar
í leikhópnum Lottu Grindavík með
sýninguna Galdrakarlinn í Oz. Allir
ættu sannarlega að finna eitthvað
við sitt hæfi á Menningarvikunni.
Sem fyrr er uppistaðan í Menningar-
vikunni framlag heimamanna auk
þess sem fjöldi landsþekktra lista-
manna og skemmtikrafta sækja
Grindvíkinga heim. Undanfarin ár
hefur Menningarvikunni verið vel
tekið og Grindvíkingar duglegir að
taka þátt og njóta þess fjölbreytta
úrvals viðburða sem í boði er. Allir
leggjast á eitt við að bjóða uppá fjöl-
breytta og skemmtilega dagskrá og
eru Grindvíkingar hvattir til að nýta
sér tækifærið og fjölmenna á menn-
ingarviðburðina. Menningarvikan er
skipulögð af Björgu Erlingsdóttur,
sviðsstjóra frístunda- og menn-
ingarsvið en fjöldi fólks aðstoðar
og leggur til hugmyndir, húsnæði
og krafta sína.
MENNINGARVIKA Í GRINDAVÍK
Frá hafi til hafnar er sýning sem haldin verður á heimili Jónatans Jó-
hanns Stefánssonar í Miðhúsum í Sandgerði á laugardag og sunnudag kl.
13-16. Á sýningunni verða skipslíkön, myndir og minningarbrot frá ævi
sjómannsins. Margir merkilegi munir eru þar til sýnis frá ævi Jónatans.
Náttúrugripasýning með yfir 70 uppstoppuðum dýrum verður í Þekkingarsetri
Suðurnesja í Sandgerði. Þar má einnig sjá ýmis lifandi sjávardýr og jafnvel
koma við þau. Sýningin er opin laugardag og sunnudag kl. 13-17
Sýningin er um franska heimskautafarann Jean-Baptiste Charcot, einn
merkasta landkönnuð síðustu aldar en hann fórst með skipi sínu Pourquoi-
pas? og áhöfn við Mýrar 1936 er einnig í Þekkingarsetri Suðurnesja og er opin
á sama tíma. Nánar um sýningar á safnahelgi í miðopnu Víkurfrétta í dag.
FRÁ HAFI TIL HAFNAR OG MARGT ANNAÐ Í SANDGERÐI
Jónatan Stefánsson er með líkan af Titanic á heimili sínu.
Einka-
söfn opin
í Garði
Einkasafn Ásgeirs Hjálmarssonar
í Græna bragga að Skagabraut 17
í Garði (á horni Skagabrautar og
Nýja lands) verður opið á laugardag
og sunnudag kl. 12-17 báða dagana.
Ásgeir hóf þá vinnu sem varð að
Byggðasafninu á Garðskaga og hefur
nú sett upp einkasýningu á munum
sem ýmist eru tengdir sjósókn, land-
búnaði og lífinu í Garðinum.
Einkasafn Hilmars Foss að Iðngörðum
2 í Garði (gengið inn á hlið hússins,
í portinu) verður opið laugardag og
sunnudag frá kl. 12:00–17:00. Hilmar
hefur sett upp einkasýningu á munum
sem eru sérstakir og sögulegir fyrir
flugvéla- og bílasögu á Íslandi.
Ævintýragarðurinn
í Garði að Urðar-
braut 4 verður
opinn laugardag
og sunnudag kl. 12-
17. Listamaðurinn
Helgi Valdimars-
son, íbúi í Garði,
hefur byggt ævin-
týragarð á lóð sinni með glæsilegri
hönnun lóðarinnar og gerð fjölda
listaverka sem prýða lóðina.
Nánar um safnahelgina í Garði í mið-
opnu Víkurfrétta í dag.
Blaðauki með dagskrá Safnahelgar á Suður-
nesjum fylgir Víkurfréttum í dag. Blaðaukinn
er í miðju blaðsins og er tilvalið að taka
hann út úr blaðinu og hafa með sér á ferð
um Suðurnes þegar njóta skal þeirra fjöl-
mörgu viðburða sem eru í boði á Safnahelgi
á Suðurnesjum.
SAFNAHELGI Á SUÐURNESJUM DAGANA 10.–11. MARS
ÓKEYPIS Á ÖLL SÖFN
SÓKNARÁÆTLUN SUÐURNESJA
Garður
Sandgerði
Hafnir
Reykjanesbær
Vogar
Grindavík
Sjá dagskrá á safnahelgi.is
Reykjanestá
Suðurstrandarvegur
Reykjanesbraut
Keflavíkurflug-
völlur
Blaðauki