Víkurfréttir


Víkurfréttir - 08.03.2018, Blaðsíða 14

Víkurfréttir - 08.03.2018, Blaðsíða 14
14 MANNLÍF Á SUÐURNESJUM f immtudagur 8. mars 2018 // 10. tbl. // 39. árg. Reykjanesbær Skólastjóri Holtaskóla Capacent — leiðir til árangurs Holtaskóli er heildstæður 450 barna grunnskóli. Kjörorð skólastarfsins eru virðing, ábyrgð, virkni og ánægja. Þau eru höfð að leiðarljósi við öll störf sem aðilar skólasamfélagsins koma að. Í skólanum er unnið eftir hugmyndafræði PBS um heildstæðan stuðning við jákvæða hegðun. Holtaskóli hefur á að skipa vel menntuðu og hæfu starfsfólki og er stöðugleiki í starfsmannahaldi. Mikilvægt er að skólastjóri sé tilbúinn að viðhalda góðum skólabrag og hafi ánægju af því að vinna með nemendum, starfsfólki og foreldrum. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ. Upplýsingar og umsókn capacent.is/s/6373 Menntunar- og hæfniskröfur Leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari. Viðbótarmenntun á sviði stjórnunar eða uppeldis- og menntunarfræða. Reynsla af faglegri forystu á sviði kennslu og þróunar í skólastarfi. Þekking og færni í áætlanagerð og fjármálastjórnun. Góð hæfni í mannlegum samskiptum og samstarfshæfileikar. Frumkvæði, sjálfstæði og góð skipulagshæfni. � � � � � � � � � � � Umsóknarfrestur 11. mars Starfssvið Veita skólanum faglega forystu. Móta framtíðastefnu skólans innan ramma laga og reglugerða, í samræmi við aðalnámskrá grunnskóla og menntastefnu Reykjanesbæjar. Stýra og bera ábyrgð á rekstri og daglegri starfsemi skólans. Bera ábyrgð á starfsmannamálum, s.s. ráðningum, vinnutilhögun og starfsþróun. Bera ábyrgð á samstarfi við aðila skólasamfélagsins. Reykjanesbær auglýsir starf skólastjóra í Holtaskóla. Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem býr yfir leiðtogahæfileikum, hefur víðtæka þekkingu á skólastarfi, framsækna skólasýn og er tilbúinn að leiða skólann inn í framtíðina. Ráðið verður í stöðuna frá og með 1. maí 2018. Háaleitisskóli á Ásbrú í Reykja- nesbæ fagnaði 10 ára afmæli á dögunum. Skólinn hóf starfsemi sína árið 2008 en síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar. Þegar skólinn tók til starfa voru nem- endur 80 talsins en nú áratug síðar eru þeir að nálgast þriðja hundraðið „og má segja að mikill fjölbreytileiki einkenni nemendahópinn okkar en í skólanum telst okkur til að séu nem- endur frá um það bil 25 löndum. Það kom því að sjálfu sér að í upphafi skólaárs var ákveðið að leggja aukna áherslu á fjölmenningu og þróa fjöl- menningarlega kennsluhætti með því að nýta þann fjölbreytta tungu- mála- og menningarbakgrunn sem nemendur bera með sér í skólastarfið og þá má ekki gleyma því að íslensku nemendurnir okkar búa yfir ólíkri reynslu hvað varðar búsetu á Íslandi,“ sagði Anna Sigríður Guðmundsdóttir, skólastjóri Háa- leitisskóla í ávarpi sem hún flutti í afmælishátíð sem haldin var í skól- anum. „Það má seg ja að „enginn sé frá Ásbrú“ Í Háaleitis- Nokkrir starfsmenn sem hafa verið frá stofnun skólans. Þeir eru: Anna Sigríður Guðmundsdóttir skólastjóri, Árdís Lára Gísladóttir, Margit Lína Hafsteinsdóttir, Sigfríður Ingibjörg Sigurðardóttir og Tone Solbakk. Á mynd- inni er einnig Jóhanna Sævarsdóttir aðstoðarskólastjóri. Víkurfréttamyndir: Hilmar Bragi Bárðarson Enginn á heimavelli í Háaleitisskóla skóla. Eng- inn er á heimavelli í þ e i r r i merkingu að hann sé hér fæddur og uppalinn og eigi jafnvel for- eldra sem gengu í sama skóla. Ég tel þetta vera styrkleika skólans og hafa margir sem hér starfa haft orð á því hversu vel nemendur taki á móti nýjum nemendum og að þeir eigi auðvelt með að aðlagast,“ sagði Anna Sigríður. Starfsmannahópurinn hefur líka stækkað og dafnað á þessum áratug sem liðinn er og nú starfa 44 starfs- menn við skólann. Þegar skólinn opn- aði haustið 2008 var einungis notaður lítill hluti skólabyggingarinnar. Næsta haust mun Háaleitisskóli nýta allt skólahúsið og þar á meðal húsnæðið sem Heilsuleikskólinn Háaleiti hefur haft afnota síðustu 10 ár.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.