Víkurfréttir


Víkurfréttir - 08.03.2018, Blaðsíða 16

Víkurfréttir - 08.03.2018, Blaðsíða 16
Garður Einkasafn Ásgeirs Hjálmars- sonar í Græna bragga Hvar: Skagabraut 17 í Garði (á horni Skagabrautar og Nýja lands). Opið: Laugardag og sunnudag 12:00– 17:00. Lýsing á sýningu: Ásgeir hóf þá vinnu sem varð að Byggðasafninu á Garðskaga og hefur nú sett upp einkasýningu á munum sem ýmist eru tengdir sjósókn, landbúnaði og lífinu í Garðinum. Byggðasafnið á Garðskaga Hvar: Út á Garðskaga. Opið: Laugardag og sunnudag 12:00–17:00. Lýsing á sýningu: Byggða- og sjóminjasafn. Þar eru ríflega sextíu gangfærar vélar úr gömlum bátum sem heiðursborgari Garðs Guðni Ingimundarson gerði upp. Fyrirlestur í Byggða- safninu í Garði Einar Ásgeirsson fyrrum skipstjóri flytur fyrirlestur með myndefni, sem hann nefnir Max Pemberton. Fyrirlesturinn verður fluttur laugardaginn 10. mars 2018, hefst kl. 14:00. Flutningur tekur um eina klukkustund. Einkasafn Hilmars Foss Hvar: Iðngörðum 2 í Garði (gengið inn á hlið hússins, í portinu). Opið: Laugardag og sunnu- dag frá kl. 12:00–17:00. Lýsing á sýningu: Hilmar hefur sett upp einkasýn- ingu á munum sem eru sérstakir og sögulegir fyrir flugvéla- og bílasögu á Íslandi. Ævintýragarður- inn í Garði Hvar: Urðarbraut 4 Opið: Laugardag og sunnudag 12:00–17:00. Lýsing á sýningu: Listamaður- inn Helgi Valdimarsson, íbúi í Garði, hefur byggt ævintýra- garð á lóð sinni með glæsilegri hönnun lóðarinnar og gerð fjölda listaverka sem prýða lóðina. SAFNAHELGI Á SUÐURNESJUM DAGANA 10.–11. MARS ÓKEYPIS Á ÖLL SÖFN Reykjanesbær Söfn og setur: Duus Safnahús Hvar: Duusgötu 2–8, Keflavík. Opið: Laugardag og sunnudag kl. 12:00–17:00. duusmuseum.is sofn.reykjanesbaer.is Sjö ólíkar sýningar í sjö sýningarsölum Bátasalur: Bátafloti Gríms Karlssonar Rúmlega 100 bátalíkön úr skipa- flota landsmanna sem Grímur Karlsson fyrrverandi skipstjóri og líkanasmiður hefur gert. Viðburður: 10.mars kl. 15.00: Félag harmonikkuunnenda á Suðurnesjum leikur sjómannalög. Gryfjan: Verndarsvæði í byggð Er ástæða til að vernda ákveðin svæði í Reykjanesbæ vegna menn- ingarsögulegs mikilvægis? Íbúum gefst kostur á að koma með tillögur um framtíðarásýnd áhugaverðra svæða í bæjarlandinu. Viðburður: 11.mars kl. 14.00: Leiðsögn um sýninguna. Einnig verður Leikfélag Keflavíkur með lifandi gjörning í sýningunni. Listasalur: Hjartastaður Listasafn Reykjanesbæjar sýnir Þingvallamyndir eftir marga helstu listamenn þjóðarinnar. Sýningin er framlag Reykjanesbæjar í tilefni 100 ára afmælis fullveldis á Íslandi. Viðburður: 11.mars kl. 15.00: Leiðsögn sýningarstjóra um sýninguna. Einnig verður myndlistargjörningur í salnum á sama tíma. Bíósalur: Íslensk náttúra Listaverk í eigu Listasafns Reykjanesbæjar sem spanna yfir 100 ára sögu náttúrumyndlistar á Íslandi. Viðburður: 11.mars kl. 16.00: Tónleikar Kvennakórs Suðurnesja. Gestastofa Reykjanesjarðvangs Sýning um myndun og mótun Reykjanesskagans, lífríki og náttúrufar. Reykjanes Geopark er á jarðvangaskrá UNESCO ásamt 119 öðrum svæðum í heiminum. Stofan: Afmælissýning Kvennakórs Suðurnesja Sýning sem Byggðasafn Reykjanesbæjar hefur sett upp í samstarfi við Kvennakór Suðurnesja til að minnast 50 ára afmælis kórsins en Kvennakór Suðurnesja er elsti starfandi kvennakór landsins. Síðasta sýningarhelgi. Miðloft: Þyrping verður að þorpi Grunnsýning Byggðasafns Reykjanesbæjar á Miðlofti í Bryggjuhúsi þar sem stiklað er á stóru um sögu svæðisins frá níundu öld til miðrar síð- ustu aldar. Grindavíkurbær Kvennó: SÖGUSLÓÐIR Saga Grindavíkur skoðuð út frá persónusögu fjögurra einstakl- inga sem bjuggu í Grindavík á fyrrihluta 20. aldar. Sýningin er opin 13–17 Safnahelgina og alla daga í Menningarviku 10.–18. mars. Sýning: 10. og 11. mars kl. 13:00–17:00. Framsóknarhúsið: ÞORPIÐ – ÞÓRKÖTLUSTAÐAHVERFI Sýning á ljósmyndum Sólveigar M. Jóns- dóttur, ljósmyndara. Hér fáum við að skyggnast inní líf íbúanna og mannlífið í Þórkötlustaðahverfi. Sýningin er opin 13–17 um Safnahelgina og alla daga í Menningarviku 10.–18. mars. Sýning: 10. og 11. mars kl. 13:00–17:00. Kvikan: Hjartsláttur – Fólkið sem byggir jörðina Á sýningunni eru sýnd verk unnin í samvinnu Önnu Sigríðar Sigurjónsdóttur, myndhöggvara og leikskólabarna í Grindavík, á leikskólanum Króki og Laut. Sýningin er opin 13–17 um Safnahelgina og alla daga í Menn- ingarviku 10.–18. mars. Sýning: 10. og 11. mars kl. 13:00–17:00. Víðihlíð: Blítt og létt Sönghópurinn Blítt og létt frá Vestmannaeyjum, heimsækir eldri borgara í Víðihlíð. Tónleikar: 10. mars kl.14:00. Grindavíkurkirkja: Opnunarhátíð Menningarviku 2018 Menningarvikunni ýtt úr vör með opnunarhátíð í Grinda- víkurkirkju. Ungir grindvískir söngvarar flytja gestum tón- list, bæjarlistamaður Grindavíkur verður útnefndur og eftir dagskrána verður boðið uppá veitingar í safnaðarheimilinu. Viðburður: 10. mars kl. 16:00. Salthúsið: Blítt og létt Sönghópurinn Blítt og létt frá Vestmannaeyjum efnir til mikillar söngskemmtunar þar sem allir geta tekið undir. Tónleikar: 10. mars klukkan 22:00.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.