Víkurfréttir


Víkurfréttir - 08.03.2018, Side 19

Víkurfréttir - 08.03.2018, Side 19
19MANNLÍF Á SUÐURNESJUM f immtudagur 8. mars 2018 // 10. tbl. // 39. árg. Grindvíkingarnir og tónlistarfólkið Sólný Pálsdóttir og Sveinn Ari Guðjóns- son fóru ásamt elsta syni sínum, Guðjóni, og næstelsta syni þeirra, Sighvati, í fyrsta sinn í tónlistarsiglingu fyrir þremur árum síðan. Siglingin er fyrir tónlistarfólk sem leikur og hlustar á Progressive Rock-tónlist og eru um 2500 manns um borð í skemmtiferðaskipi í fimm daga að spila tónlist og ræða saman. Þau hafa farið saman í siglinguna í þrjú ár og stefna að því að halda því áfram en að eigin sögn er þetta sannkölluð tónlistarveisla. Guðjón þurfti þó að sannfæra foreldra sína töluvert að koma með sér í siglinguna og valdi hann það að fara frekar í hana heldur en útskriftarferð eftir að hann út- skrifaðist úr Verslunarskóla Íslands. Þau eru öll sammála því að þau sjá ekki eftir þessari ákvörðun í dag. Víkurfréttir hittu þau í heimastúdíóinu þeirra eitt rigningarkvöld í Grindavík og við fengum þau til að segja okkur frá ferðunum. Segið mér aðeins frá ævintýrinu ykkar. Sveinn: „Hvar á ég að byrja, þetta er í þriðja sinn sem við förum í svona siglingu, með nánast sama fólkinu.“ Guðjón: „Ég sá þessa siglingu aug- lýsta, ákvað að fara og spurði hvort þau vildu koma með mér. Þetta er tónlistarhátíð á sjó þar sem að tón- listin sem er spiluð er svokallað Pro- gressive Rock. Hljómsveitirnar koma héðan og þaðan, margir frá Banda- ríkjunum, Bretlandi og Svíþjóð en það er allur gangur á því. Líka frá Japan, Argentínu eða bara héðan og þaðan. Þetta er svipaður markhópur sem er um borð, við getum a.m.k. orðað það þannig.“ Sveinn: „Hljómsveitirnar og flytj- endur þurfa að falla undir þau gildi að vera Progressive Rock-hljómsveitir. Það er í rauninni ákveðið form tón- listar, ekki of þung en sumt svolítið flókið, taktbreytingar og kaflaskipti.“ Guðjón: „Þetta er kannski ákveðið formleysi. Tónlist án takmarkana. Það er ekki mikið um svona hljóm- sveitir hérna á Íslandi, ég held ég geti talið um tíu hljómsveitir hér á landi.“ Sólný: „Þetta er svolítið sérstakt, þarna safnast saman um 2500 manns sem koma saman um borð, víðsvegar úr heiminum, sem eiga það sam- eiginlegt að hlusta á þessa tónlist. Ég heyrði það um borð að það væru ekki nema um 5% af heiminum sem hlusta á þessa tónlist en það er samt erfitt að segja til um það. Það eru að minnsta kosti ekki mjög margir. Þann- ig að það má segja að þetta sé veisla fyrir okkur að fara þangað og hlusta á allar þessar hljómsveitir sem við höfum verið að fylgjast með í mörg ár. Þarna eru bæði eldri hljómsveitir og nýjar sem koma saman, það er ein hljómsveit sem er svokölluð „grunn- hljómsveit“ sem heitir Yes sem margir kannast örugglega við sem heldur utan um þetta og fær til sín bönd.“ Hefur þróast gegnum árin Dagskrá ferðarinnar eða uppstill- ing atriða um borð hefur þróast frá því að farið var í fyrstu siglinguna. Í byrjun var spilað frá klukkan tíu á morgnanna til ellefu á kvöldin og síðan settust flytjendur saman við píanóbarinn og spiluðu saman langt fram eftir nóttu. Þannig myndaðist ákveðin partýstemning og á öðru ári var ákveðið að hafa opið svið. Fyrsta árið sem Sólný, Sveinn og Guðjón tóku þátt í, var ákveðið að breyta aftur til og þurfti fólk að sækja um þátt- töku. En undirbúningsferlið er ansi skemmtilegt. Sólný: „Ég ákveð kannski eitthvað ákveðið lag sem mig langar að syngja og óska eftir einhverjum til að spila með mér og þá fæ ég bassaleikara, trommuleikara og svo framvegis til að spila með mér. Svo æfum við okkur heima en það skemmtilega við þetta er að við mætum og hittumst kannski í fyrsta sinn á sviðinu, æfum ekki saman, heldur eru allir í sínu horni að æfa heima áður en þeir mæta um borð. Þetta er ótrúlega magnað og skemmtilegt, svo kemur þú upp á svið og þá gerist eitthvað magnað, það er eiginlega ekki hægt að lýsa því.“ Sveinn: „Já það er gríðarlega mikil spenna í gangi til að sjá hvernig allt gengur.“ Guðjón: „Það gengur ekki alltaf allt upp og það kemur alveg fyrir að menn fara út af sporinu.“ Sólný: „Það sem er skemmtilegt við þetta er að tónlist hjá atvinnufólki er orðin mjög vönduð og flutningur og annað orðið mjög fullkomið eða það mætti segja sem svo, þannig að fegurðin við þetta er að þú mátt gera mistök og eins og þeir feðgar segja að stundum tekst það og stundum ekki.“ Sveinn: „Auðvitað gerir maður allt til að lágmarka mistökin sín og sem betur fer eru þau ekki mörg þegar allt kemur til alls. Svo er það fallega við þetta eins og þarna um borð að tónlistarmenn sem ég hef verið að fylgjast með í mörg ár eru þarna og maður sest bara niður með þeim með kaffibolla og spjallar. Fer yfir tón- listina og plöturnar þeirra. Svo er það líka skemmtilegt að körlunum úr stóru hljómsveitunum finnst pró- grammið okkar svo skemmtilegt að þeir eru farnir að spila með okkur þannig að við erum búin að spila með fullt af meðlimum úr stóru hljóm- sveitunum.“ Sólný: „Það er eiginlega óskráð regla að ef einhver vill syngja eða spila sitt lag úr stærri hljómsveitunum þá leyfir maður þeim það eða þarf að víkja. Maður er kannski búinn að vera æfa það lag heima í langan tíma og svo allt í einu dettur þú út.“ Guðjón: „Já, þegar meðlimur hljóm- sveitarinnar sem þú ert að spila lag með/eftir vill syngja eða spila þá þarft þú að víkja.“ Sólný: „Í fyrra þá gerðist það að einn bassaleikari vildi ekki gefa lagið sitt eftir, þannig að það voru tveir bassa- leikarar á sviðinu. Þetta er gríðar- lega mikil spenna og oft á tíðum pínu hlátur og grátur. Þetta er alveg þannig og eins og til dæmis fyrsta skiptið sem við komum þrjú saman á sviðinu var stór stund. Að koma öll saman á stóru Rannveig Jónína Guðmundsdóttir rannveig@vf.is VIÐTAL Fjölskylda úr Grindavík fer árlega í rokksiglingu „Lífið er eitt ævintýri og maður þarf að taka þátt í því“ Hljómsveitirnar koma héðan og þaðan, margir frá Bandaríkjunum, Bret- landi og Svíþjóð en það er allur gangur á því. Líka frá Japan, Argentínu eða bara héðan og þaðan. Guðjón á útgáfurtónleikum Ring of Gyges. Sólný, Fjölnir, Sveinn og Sighvatur.

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.