Víkurfréttir - 08.03.2018, Blaðsíða 24
24 MANNLÍF Á SUÐURNESJUM f immtudagur 8. mars 2018 // 10. tbl. // 39. árg.
Reykjanesbæ var á dögunum afhent
stór gjöf sem komin er úr dánarbúi
hjónanna Áka Gränz og Guðlaugar
S. Karvelsdóttur. Áki var lengi einn
af forsvarsmönnum Njarðvíkinga,
sat þar m.a. lengi í bæjarstjórn og
hann og Guðlaug tóku þátt í bæjar-
lífinu af lífi og sál á sínum tíma.
Gjöfin samanstóð af fjölda lista-
verka, ýmsum skjölum og bréfum
og fjölbreyttu steinasafni ásamt
nokkrum fágætum fuglum. Áki var
lengi einn af virkustu listamönnum
Reykjanesbæjar og gjöfinni fylgdu
alls 158 listaverk af margvíslegu tagi;
teikningar, málverk og vatnslita-
myndir. Er þetta stærsta einstaka
gjöf sem Listasafni Reykjanesbæjar
hefur borist og lét forstöðumaður
safnsins þess getið að þetta væri
góður fengur fyrir sögu myndlistar
á svæðinu. Skjöl og ljósmyndir fór
til Byggðasafns Reykjanesbæjar og
náttúrugripirnir verða sýndir í Duus
Safnahúsum í sumar.
Sonur Áka og Guðlaugar, Karvel Gränz
afhenti gjöfina fyrir sína hönd og
tveggja systkina sinna, þeirra Guð-
rúnar F. Gränz og Carls B. Gränz
heitins en þetta var þeirra arfhluti
úr dánarbúi foreldranna. Formaður
menningarráðs Guðbjörg Ingi-
mundardóttir ásamt safnstjórunum
Sigrún Ástu Jónsdóttur og Valgerði
Guðmundsdóttur tóku á móti gjöfinni
en Ásbjörn Jónsson settur bæjarstjóri
í forföllum Kjartan Más Kjartans-
sonar og Gunnar Þórarinsson bæjar-
fulltrúi í Reykjanesbæ voru einnig
viðstaddir og vottuðu gjörninginn.
Voru fjölskyldunni færðar góðar
þakkir fyrir höfðingsskapinn.
Kvenfélag Grindavíkur gaf Grindavíkurkirkju brúðuleikhús sem
notað er í sunnudagaskólanum og eru þær Kristín Pálsdóttir
og Margrét Þorláksdóttir, umsjónarmenn sunnudagaskólans
hæstánægðar með gjöfina.
Sunnudagaskólinn fékk einnig að gjöf nokkur ásláttarhljóðfæri
frá kvenfélaginu. Meðfylgjandi myndir voru teknar í sunnudaga-
skólanum þegar gjafirnar voru afhentar.
Frá afhendingu gjafarinnar. Frá vinstri: Gunnar Þórarinsson bæjarfulltrúi, Sigrún Ásta Jónsdóttir forstöðumaður
Byggðasafns, Karvel Granz, Guðbjörg Ingimundardóttir formaður menningarráðs, Ásbjörn Jónsson staðgengill
bæjarstjóra, Valgerður Guðmundsdóttir menningarfulltrúi og forstöðumaður Listasafns Reykjanesbæjar.
Reykjanesbæ afhentur
fjöldi listaverka
Leikfélag FS, VoxArena-listanefnd
FS, mun nk. föstudagskvöld, 9.
mars kl. 20:00, frumsýna nýjan
söngleik í Andrews Theatre. Bur-
lesque er heiti verksins og hafa
bæði núverandi og fyrrverandi
nemendur FS æft stíft undanfarnar
vikur að þessari uppsetningu.
Helga Ásta Ólafsdóttir, eigandi
Danskompaní, samdi dansana af
sinni alkunnu snilld en leikstjórn
er í höndum fyrrum nemanda FS,
Brynju Ýrar Júlíusdóttur og er þetta
frumraun hennar í leikstjórn.
Það þarf ekki að taka það fram
hversu mikil vinna liggur að baki
uppsetningu sem þessari og því er
það skylda okkar Suðurnesjamanna
að koma og styrkja ungviði okkar
með því að koma og sjá sýninguna.
Þetta eru hæfileikaríkir krakkar sem
þarna sýna sitt besta í leik, söng,
dansi og gleði.
Aðeins verða sex sýningar í boði svo
það er um að gera að tryggja sér
miða sem fyrst. Allar upplýsingar
um sýningar og miðakaup er að
finna á Facebooksíðu NFS Bur-
lesque, segir í tilkynningu.
Vox Arena
sýnir Burleque
Í A N D R E W S T H E A T R E
KVENFÉLAG GRINDAVÍKUR
FÆRÐI KIRKJUNNI GJAFIR
AÐALFUNDUR
Aðalfundur Félags eldri borgara á Suðurnesjum
fer fram föstudaginn 9. mars 2018 kl.16:00 á
Nesvöllum. Venjuleg aðalfundastörf. Boðið upp á kaffi
og meðlæti. Eldir borgarar hvattir til að mæta.
Stjórnin.