Víkurfréttir


Víkurfréttir - 08.03.2018, Síða 27

Víkurfréttir - 08.03.2018, Síða 27
27MANNLÍF Á SUÐURNESJUM f immtudagur 8. mars 2018 // 10. tbl. // 39. árg. VETRARFUNDUR FERÐAÞJÓNUSTUNNAR Á REYKJANESI Fundurinn er öllum opinn og aðgangur ókeypis en skrá þarf þátttöku á markadsstofareykjaness.is » Guðjón Bragason, sviðsstjóri lögfræði- og velferðarsviðs Sambands íslenskra sveitarfélaga » Rakel Theodórsdóttir, markaðsstjóri Friðheima » Sveinn Waage, verkefnastjóri á sviði ferðaþjónustu og skapandi greina hjá Íslandsstofu » Afhending viðurkenninga ferðaþjónustunnar á Reykjanesi 2018 Markaðsstofa Reykjaness og Reykjanes UNESCO Global Geopark bjóða til morgunverðarfundar um ábyrga ferðaþjónustu og markaðssetningu í Hljómahöll fimmtudaginn 15. mars kl. 8:30-10:30. Bókasafnið er samverustaður – Bókasafn Reykjanesbæjar 60 ára Bæjar- og héraðsbókasafn Kefla- víkur var formlega opnað þann 7. mars árið 1958 á efri hæð íþrótta- húss Barnaskólans í Keflavík, nú Myllubakkaskóli. Fyrsti bæjar- bókavörður var Hilmar Jónsson og gegndi hann því starfi til ársins 1992. Árið 1974 fékk safnið nýtt húsnæði að Mánagötu 7, þar var safnið til ársins 1993 en þá var það flutt í Kjarna að Hafnargötu 57. Hulda Björk Þorkelsdóttir tók við sem forstöðumaður árið 1992 og lét af störfum í lok árs 2013. Tók þá undirrituð við starfi forstöðu- manns og hefur gegnt því síðan. Um mitt ár 2013 flutti safnið í nú- verandi húsnæði í Ráðhús Reykja- nesbæjar, húsnæði sem skiptist í tvær hæðir. Það var upphaflega byggt fyrir banka og því þurfti að aðlaga safnið að húsinu. Hugmynda- fræðin á bak við flutninginn var að öll kjarnaþjónusta bæjarins væri undir einu þaki. Safnið er í opnu rými þar sem þjónustuver Reykja- nesbæjar er á sama stað auk þess sem Ráðhúskaffi er skemmtileg við- bót í húsinu. Á neðri hæð safnins er upplýsingaþjónusta, almenn fræðirit, lessalur og hópavinnuborð. Á aðalhæð safnins er afgreiðsla, barnadeild, tímarit, skáldrit og ævi- sögur. Gamla peningageymslan er orðin að Átthagastofu sem varð- veitir sögulegan fjársjóð um Reykja- nesbæ auk sýningarrýmis. Bókasafnið er menningar-, upplýs- inga- og þekkingasetur bæjarbúa. Í safninu er lögð áhersla á að bjóða upp á fjölbreyttan safnkost til að geta þjónað öllum almenningi, sinnt fræðslu og menningarviðburðum. Bókasöfn nútímans eru oft kall- aðir þriðji staðurinn; griðastaður í amstri dagsins, þar sem hægt er að njóta, læra, taka þátt og styrkja andann. Staður til þess að hitta fólk, lesa, læra, sækja viðburði og fræðslu á eigin forsendum og frum- kvæði. Á síðasta ári komu tæplega 10.000 manns á skipulagða viðburði í Bókasafninu. Þá er frátalið fólk sem sækir sér bækur, kíkir í tímarit eða kemur til að læra. Bókasöfn 21. aldar eru að þróast í öflug menntunar- og menningar- setur. Söfnin eru ekki lengur bara fyrir bækur heldur eru þau hlut- lausir staðir fyrir samskipti fólks og þekkingaröflun í sinni fjöl- breyttustu mynd. Þau eru lifandi menningarstofnanir sem eru að þróast í takt við breyttar þarfir íbúa og bókasöfn eru staðir þar sem hjartað slær í samfélögum. Bókasafnið býr yfir fjölhæfum starfsmönnum með breiðan bak- grunn og er það einn helsti styrk- leiki safnsins. Safnið er á vefnum og á samfélagsmiðlum. Haldið verður upp á 60 ára afmæli Bókasafns Reykjanesbæjar miðviku- daginn 7. mars milli kl. 15 og 18. Við fögnum því með súkkulaðiköku, kaffi og djús fyrir alla. Til hamingju bæjarbúar með safnið okkar allra, við vonumst til að sem flestir bæjar- búar mæti og taki þátt í gleðinni. Stefanía Gunnarsdóttir, forstöðumaður. OPNAR SÝNINGU OG HELDUR NÁMSKEIÐ Í BÓKASAFNINU Teiknarinn og söngkonan Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir er með mörg járn í eldinum um þessar mundir. Lóa Hlín gerir teiknimyndasögur undir nafninu Lóa- boratoríum og syngur með hljómsveitinni FM Belfast sem hún stofnaði ásamt Árna Rúnari árið 2005. Í byrjun janúar var sett upp verk eftir hana í Borgarleikhúsinu. „Leik- konan María Heba Þorkelsdóttir og leikhópurinn Sokkabandið komu til máls við mig og spurðu hvort ég vildi taka þátt í verkefni með þeim og skrifa leikrit upp úr myndasögunum mínum. Ég sagði já og svo hófust hug- myndavinna og handritaskrif.“ Leik- ritið fjallar um samskipti, mæðgur og systur sem eiga ekki frábær sam- skipti. Ákveðin atburðarrás fer svo af stað og konurnar neyðast til að kynn- ast betur. Lóa Hlín er strax komin með fleiri leikverk í kollinn en segir það allt á hugmyndastigi. Það er í mörgu að snúast hjá lista- konunni og þegar hún er innt eftir því hvernig gangi að sameina mynd- listina, tónlistina, leikhúsið og móður- hlutverkið stóð ekki á heiðarlegum svörum. „Þetta gengur misvel. Stundum vinn ég allt of mikið. Ég er einmitt í þessum töluðu orðum að reyna að greiða úr flækjum sem ég hef sjálf skapað,“ segir Lóa Hlín kímin á svip. Það er ekki eingöngu leik- húsið sem á allan hug Lóu um þessar mundir en sýning á teiknimyndasögum hennar opnar í Bókasafni Reykjanes- bæjar fimmtudaginn 8. mars. Sýningin heitir Gamandrama og verður í unglinga- og teikni- myndasöguhorni safnsins. „Ég hef verið með svipaða sýningu í Borgarbókasafninu í Grófinni. Þar fékk ég líka að leggja undir mig veggplássið í myndasögudeildinni.“ Lóa Hlín lærði myndskreytingu við Parsons í New York en hún byrjaði ung að teikna eða frá því að hún uppgötvaði að það væri hægt eins og hún segir sjálf. Hún hefur verið atvinnumanneskja síðan árið 2005 en eftir hana hafa komið út þrjár bækur: Alhæft um þjóðir (2009), Lóa- boratoríum (2014) og Lóaboratoríum: Nýjar rannsóknir hafa mögulega leitt eitthvað í ljós (2015). Myndasögur eftir hana hafa komið út víða, m.a. í Grapevine, ÓkeiPiss, Mannlífi og Very Nice Comics. „Elsta myndasagan í mínum fórum er síðan ég var átta ára og fór á nám- skeið þar sem við áttum að skrifa myndasögur. en ég byrjaði að vinna við þetta meðfram öðrum verkefnum árið 2005.“ Í kjölfar sýningarinnar í Bókasafni Reykjanesbæjar mun Lóa Hlín bjóða upp á námskeið í teiknimyndasögu- gerð í safninu laugardaginn 17. mars milli klukkan 12.00 og 16.00. Nám- skeiðið er opið fyrir alla og kostar ekkert, það eina sem þarf er að skrá sig á námskeiðið. Lóa Hlín hefur margsinnis verið með námskeið af þessu tagi, m.a. í Myndlistaskóla Reykjavíkur, Listahá- skóla Íslands, Bókasafni Kópavogs, í ýmsum grunnskólum, þar á meðal í Garði í tengslum við verkefnið Skáld í skólum. „Það eina sem fólk þarf til að koma á námskeiðið er áhugi og almenn forvitni. Ímyndunarafl sakar ekki. Teiknikunnátta er góð en hún er ekki nauðsynleg. Ég hvet alla til að koma, bæði til að prófa eitthvað nýtt og njóta þess að vera innan um teiknandi fólk. Það er svo huggulegt,“ segir Lóa Hlín að lokum. Áhugasamir geta fengið allar nánari upplýsingar á heimasíðu Bókasafns Reykjanesbæjar: sofn.reykjanesbaer.is/bokasafn

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.