Víkurfréttir - 08.03.2018, Qupperneq 30
30 ÍÞRÓTTIR Á SUÐURNESJUM f immtudagur 8. mars 2018 // 10. tbl. // 39. árg.
ATVINNA
Starfsmaður með
meirapróf óskast
Upplýsingar í síma 8927512 eða hjá
Lyftu ehf., Njarðarbraut 1, Reykjanesbæ.
Tuttugasta og áttunda Nettómótinu í körfubolta lauk í Reykjanesbæ um
síðustu helgi. Það er KarfaN, hagsmunafélag barna- og unglingaráða
körfuknattleiksdeilda Keflavíkur og Njarðvíkur, sem heldur mótið.
Leikið er á fimmtán keppnisvöllum í Reykjanesbæ og Garði. Að þessu
sinni sendu 24 félög lið til keppni en alls kepptu 267 lið á mótinu. Liðin
eru skipuð stelpum og strákum á aldrinum 5-10 ára.
Börnin sem tóku þátt í mótinu voru 1265 talsins, leikirnir næstum 600 talsins
og það tók samtals 19 klukkustundir að leika alla leikina á mótinu. Það
var ekki bara leikinn körfubolti, því margt annað var gert til skemmtunar.
Börnin fóru í bíó, leiksvæði var opið í Reykjaneshöll og þá voru fjölmennar
matarveislur, kvöldvaka og kvöldkaffi. Þá var haldin pizzaveisla á sunnu-
deginum þar sem pantaðar voru 470 pizzur af stærstu gerð frá Langbest.
Ljósmyndari Víkurfrétta tók meðfylgjandi myndir á Nettómótinu.
Stærð: 4316 m
Byggt: 1972
Tegund: Atvinnuhúsnæði
Fasteignamat: 196.400.000 kr.
Viltu árfesta á vaxtarsvæði?
Á innan við áratug hefur byggst upp á Ásbrú, fyrrum varnarsvæðinu við Keflavíkurflugvöll, þróttmikið og litríkt samfélag
í gagnaveraiðnaði og örþörungarækt, ásamt nálægð við Keflavíkurflugvöll gera Ásbrú að sönnu vaxtarsvæði til framtíðar.
GRÆNÁSBRAUT 720
Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar | Sími 425 2100 | www.kadeco.is
Opið hús 14. mars frá kl. 13–14. Tilboð óskast eigi síðar en kl. 11, þriðjudaginn 20. mars í
lokuðu umslagi. Eignin hýsti áður matvöruverslun varnarliðsins og skiptist í tvær vöruskemmur,
1873 m og 1944 m að stærð auk 373 m tengibyggingar. Nánari upplýsingar á kadeco.is
P
ip
ar
\T
B
W
A
\
S
ÍA
\
1
74
92
1
1265 KRAKKAR Á NETTÓMÓTI Í REYKJANESBÆ