Víkurfréttir


Víkurfréttir - 08.03.2018, Síða 31

Víkurfréttir - 08.03.2018, Síða 31
31ÍÞRÓTTIR Á SUÐURNESJUM f immtudagur 8. mars 2018 // 10. tbl. // 39. árg. „Sakna Villabars“ Elías Már Ómarsson er uppalinn Keflvíkingur og leikur knattspyrnu með IFK Göteborg. Hann hefur leikið með landsliðinu í knattspyrnu og vonast til að fá fleiri tækifæri með því í framtíðinni. Leiktíðin í sænsku deildinni hefst þann 1. apríl næstkomandi og ætlar Elías sér að vinna sig inn í byrj- unarliðið fyrir fyrsta leik. „Bikarkeppnin er byrjuð hjá okkur og við höfum unnið alla leikina í henni hingað til, persónulega hefur mér gengið mjög vel á þessu undirbún- ingstímabili,“ segir Elías. Hann kann vel við sig í Svíþjóð, býr á þægilegum stað í Gautaborg þar sem allt er mjög nálægt honum. Elías hefur leikið með A-landsliði Ís- lands í knattspyrnu sem er draumur flestra ungra knattspyrnuiðkenda. „Það er alltaf góð tilfinning að spila fyrir landsliðið og mikill heiður. Ég vona bara að ég fái að spila oftar fyrir Íslands hönd í framtíðinni.“ Elías Már byrjar daginn snemma og er vaknaður rétt um áttaleytið. „Fljótlega eftir að ég vakna fer ég á æfingasvæðið þar sem að ég fæ mér morgunmat, æfingin sjálf byrjar svo um hálfellefu og eftir hana borða ég hádegismat, sem er líka á æfingasvæðinu. Ég er oftast kominn heim um eittleytið. Einu sinni til tvisvar í viku eru tvær æfingar sama daginn og þá er ég yfirleitt kominn heim um þrjú-hálf- fjögur. Eftir það hef ég tíma til að gera eitthvað annað. Framundan er sænska deildin en nú er rétt um mánuður í hana og Elías vinnur að því að kappi núna að vinna sér fast sæti í byrjunarliðinu. Elías var spurður að því hvar hann sæi sig fyrir sér eftir fimm ár og því var auðsvarað. „Eftir fimm ár sé ég mig í stærri deild í Evrópu.“ Kærasta Elíasar og hann voru að koma á legg netverslun þar sem þau selja sínar eigin snyrtivörur undir merkinu E & T Cosmetics og er því óhætt að segja að atvinnumaðurinn sitji ekki auðum höndum í Svíþjóð. Þegar Elías er spurður að því hvort hann sakni einhvers á Íslandi er því auðsvarað. „Maður saknar fjölskyldu og vina mest, en reyndar sakna ég Villabars og bakarísins líka.“ Elías Már leikur knattspyrnu í Svíþjóð „Ég keppi allt- af með tyggjó“ Björk Gunnarsdóttir leikur körfuknattleik með Njarðvík en að hennar sögn er skemmtilegasta sagan af ferlinum þegar þær tryggðu sér annað sætið í Maltbikarnum í janúar sl. Björk svaraði nokkrum Sportspjalls-spurningum fyrir Víkurfréttir. Fullt nafn: Björk Gunnarsdóttir. Íþrótt: Körfubolti. Félag: Njarðvík. Hjúskaparstaða: Einhleyp. Hvenær hófst þú að stunda þína íþrótt? Þegar ég var um 7 ára. Hver var fyrsti þjálfarinn þinn? Guðni Erlendsson. Hvað er framundan? Framundan er að klára tímabilið í körfunni og einnig er ég að klára fyrsta árið mitt í verkfræði. Eftirminnilegasti áfanginn á ferl- inum? Örugglega þegar ég var að spila með U18 ára landsliðinu og við lentum í 4. sæti á Evrópumóti sem haldið var í Bosníu. Held að það sé einn besti árangur sem U18 ára landslið kvenna hefur náð á Evrópumóti. Uppáhalds...: ...leikari: Julia Roberts. ...bíómynd: Ég er lúmskur Harry Potter aðdáandi. ...bók: Engin ein sem sker sig úr. ...alþingismaður: Ég hef ekki hugmynd. ...staður á Íslandi: Ég er mjög heimakær svo ég verð að segja heima. Hvað vitum við ekki um þig? Ég keppi alltaf með tyggjó. Ég byrjaði á því þegar Margrét Sturlaugsdóttir var þjálfarinn minn, mig minnir að hún hafi sagt að þetta myndi auka vatnsframleiðsluna í munninum, hef verið háð því að keppa með tyggjó síðan. Hvernig æfir þú til að ná árangri? Ég mæti á allar æfingar með það hugarfar að leggja mig 100% fram, svo reynir maður að æfa aukalega eins mikið og maður getur. Hver eru helstu markmið þín? Ég stunda nám í verkfræði við Háskólann í Reykjavík, langar að klára það nám samhliða því að spila körfubolta. Skemmtilegasta sagan af ferl- inum? Svo margar skemmtilegar sögur, en sú nýlegasta er örugglega þegar við lentum í 2. sæti í Maltbik- arnum, þar sem enginn hafði trú á okkur en við sýndum loksins hvað í okkur býr. Skilaboð til upprennandi íþrótta- manna: Alltaf gera sitt besta og muna að það er aukaæfingin sem gerir góðan leikmann að frábærum leikmanni. UTANVALLAR PURIFYING & CLEANSING BODY FOAM er þétt og rík hreinsifroða sem gefur húðinni mýkt. Froðan slípar húðina, fjarlægir dauðar húðfrumur, frískar og jafnar áferð húðarinnar. INSTANT SMOOTHING & MOISTURIZING BODY TREATMENT er létt líkamsgel sem gefur samtundis raka. Það er einstaklega frískandi, mýkir, róar og rakanærir húðina. FIRMING & RECOVERY BODY EMULSION kremið er kælandi, styrkjandi og þéttir húðina. Gefur frískandi og góðan raka. Inniheldur kamforu sem hjálpar þreyttum og stífum vöðvum með verkjastillandi og bólgueyðandi eiginleikum FULLKOMNAÐU LÍKAMSRÆKTINA MEÐ STINNARI OG FALLEGRI HÚÐ. CANDICE SWANEPOEL EXPERIENCE THE STRONGEST REBIRTH Discover our exclusive massage ritual on www.biotherm.com MEÐAN ÞÚ SEFUR, GERAST KRAFTAVERKIN MASKINN RÓAR HÚÐINA, DREGUR ÚR ROÐA OG STREKKTRI HÚÐ. HÚÐIN VERÐUR ÞÉTTARI OG LJÓMAR FALLEGA. MASKI SEM RÓAR, GRÆÐIR, ENDURNÝJAR OG KÆLIR LIFE PLANKTON TM HEIL LÍNA AF RÓANDI OG STYRKJANDI VÖRUM ÁN ALKAHÓLS, LITAREFNA OG PARABENA SPA BURSTI SEM BIOTHERM HEFUR EINKALEYFI Á BIOTHERM DAGAR Í LYFJU REYKJANESBÆ 7.-10. MARS. SÉRFRÆÐINGUR FRÁ BIOTHERM VERÐUR Í LYFJU FÖSTUDAGINN 9. MARS. Glæsilegur kaupauki fylgir þegar keyptar eru Biotherm vörur fyrir 7.800 krónur eða meira, á meðan birgðir endast. A F S L Á T T U R A F Ö L L U M D Ö M U - O G H E R R AV Ö R U M F R Á B I O T H E R M20% KEFLAVÍK SEMUR VIÐ ÁSTRALSKAN MARKVÖRÐ Knattspyrnudeild Keflavíkur hefur samið við markvörðinn Jonathan Faerber og mun hann leika með liðinu í Pepsi-deildinni í sumar. Jonathan er fæddur árið 1988 og verður þrítugur síðar í mánuðinum en hann stóð á milli stanganna í marki Reynis í Sandgerði á síðasta tímabili. Keflavík kynnti Jonathan til leiks á heimasíðu sinni: Jonathan Mark Faerber gerði samn- ing við Keflavík út 2018. Hann er stór og mikill markvörður og mun veita Sindra Kristni samkeppni um mark- varðarstöðuna. Jon er fæddur 1988 og er frá Ástralíu. Hann pilaði með Reynir frá Sandgerði sl sumar.

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.