Fréttablaðið - 16.04.2018, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 16.04.2018, Blaðsíða 8
Frá degi til dags ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Einar Þór Sverrisson FORSTJÓRI: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir ÚTGEFANDI OG AÐALRITSTJÓRI: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRAR: Kjartan Hreinn Njálssson kjartanh@frettabladid.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is, Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 85.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5800, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is MENNING: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Halldór Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is Það er ekki vita vonlaust að bjarga heiminum. Það veit Atli mætavel og vonandi verður hann alltaf á þeirri skoðun. Sjálfboða- liðar úr Rauðakross- deild Mos- fellsbæjar hafa unnið ötullega að móttöku hópsins og hjá bæjar- félaginu vinnur starfsmaður tímabundið að verkefn- inu. Löngum hafa foreldrar lagt börnum sínum hinar ýmsu lífsreglur, bæði í stóru og smáu. Ein af þeim er að ganga vel um umhverfið. Kynslóðir hafa fengið þessa ábendingu, en eitthvað gleymist greinilega á vegferðinni í gegnum lífið því það er nokkuð sama hvert er farið, ruslið blasir við. Þetta gerist þrátt fyrir að það teljist til almennra mannasiða að henda ekki frá sér rusli og skilja eftir í umhverfinu. Almennir mannasiðir eru kannski ekki svo almennir. Þótt útlitið sé ekki fallegt og sóðaskapurinn blasi við í alltof miklum mæli þá glittir samt í sólargeisla. Þar er á ferð hópur fólks sem hefur ekki geð í sér til að horfa upp á torg, stræti og náttúru fyllast af rusli. Þetta röska fólk telur ekki eftir sér að ganga um og tína upp ruslið sem náunginn fleygði frá sér í hugs- unarleysi. Þarna er alls konar fólk á ferð og á öllum aldri. Sumir vekja óneitanlega meiri athygli en aðrir. Það á til dæmis við um hinn unga Atla Svavarsson, sem á dögunum hlaut Samfélagsverðlaun Frétta- blaðsins í flokknum Frá kynslóð til kynslóðar. Þessi ellefu ára gamli verðlaunahafi stofnaði fyrir rúmu ári verkefni, sem nefnist hinu hugumstóra nafni, „Save the world“ og snýst um að tína rusl úr umhverfinu. „Það er ekki gott fyrir umhverfið að henda rusli á víðavangi. Hættið þessu og setjið það í ruslatunnu. Það er ekki það erfitt,“ segir Atli réttilega. Í ljóði eftir Guðmund Böðvarsson stendur: „Ef æskan bregst þeirri ættjörð sem henni var gefin/ er ekkert í heiminum til sem bjargar því landi.“ Æskan er ekki að bregðast landinu, eins og sést í verkum hins unga Atla. Meðan fullorðnar sjóaðar sálir eru margar hverjar orðnar fremur hertar í kaldlyndi sínu og hafa fyrir löngu gefist upp á hugmyndinni um að bjarga heimi sem virðist ekki vera viðbjarg- andi þá lætur Atli hendur standa fram úr ermum. Honum tekst á hverjum degi að gera umhverfið fegurra. Það framtak hlýtur að vekja okkur til umhugsunar um að ef allir leggja sitt litla lóð á vogarskálar þá verður árangur um leið afar sjáan- legur. Það er ekki vita vonlaust að bjarga heiminum. Það veit Atli mætavel og vonandi verður hann alltaf á þeirri skoðun. Um allt land er fólk sem ann náttúrunni og situr ekki aðgerðarlaust hjá heldur fer af stað til að tína upp rusl og fylla poka og sekki. Einhvers staðar eru þeir líka sóðarnir sem stöðugt menga umhverfið með því að henda frá sér rusli. Þeir þurfa ekki að bera ábyrgð á gjörðum sínum og sennilega hugsa þeir ekkert sérstaklega um það að þeir séu að skemma umhverfi sitt, hvað þá að þeir fyllist votti af sektarkennd við tilhugsunina um að það komi í annarra hlut að taka til eftir þá. Skilaboðin til þeirra eru hins vegar skýr, þökk sé þeim fjölda lands- manna sem ofbýður ástandið og reyna að grípa í taumana með því að láta verkin tala. Að bjarga heiminum 19. mars sl. var merkisdagur í Mosfellsbæ þegar tíu flóttamenn fluttu þangað, sex fullorðnir og fjögur börn. Gerður hefur verið samningur á milli Mosfellsbæjar og velferðarráðuneytisins um móttöku og stuðning við nýju bæjarbúana. Landlaust fólk Flóttafólkið er frá Úganda en kemur hingað úr flótta- mannabúðum í Kenýa þar eð því var ekki vært í heima- landi sínu. Því miður er það nöturleg staðreynd að enn þarf fólk að sæta ofsóknum og grimmilegum refsingum vegna kynhneigðar sinnar. Tugir milljónir manna eru á flótta víða um heim af ýmsum ástæðum. Stríðsátök, hörundslitur, trúarbrögð, þjóðerni, stjórnmálaskoðanir og kynhneigð eru þar efst á blaði. En óháð því hvaða orsakir búa hér að baki er lífsreynsla og líðan flóttamanna ævinlega svipuð, þeir lifa í stöðugum ótta við ofbeldi og ofsóknir og oft er þeim nauðugur einn kostur að yfirgefa föðurland sitt og halda landlausir út í óvissuna. Aðeins lítill hluti flóttamanna heimsins fær úrlausn sinna mála og það er beinlínis siðferðisleg skylda okkar Íslendinga og margra annarra þjóða að hlaupa undir bagga og veita flóttafólki skjól og sjálfsögð mannréttindi. Þar skiptir sérhver einstaklingur miklu máli. Velkomin í Mosfellsbæ! Sjálfboðaliðar úr Rauðakrossdeild Mosfellsbæjar hafa unnið ötullega að móttöku hópsins og hjá bæjarfélag- inu vinnur starfsmaður tímabundið að verkefninu. Þar er í mörg horn að líta: Útvega húsnæði, innanstokks- muni, flíkur og leikföng. Einnig að hjálpa fólkinu til að aðlagast sem fyrst nýjum aðstæðum, börnin hafa þegar hafið skólanám og hin vilja byrja strax að vinna og fara á íslenskunámskeið. Einn þeirra er Hakim sem segir í blaða- viðtali: „Ég er með miklar væntingar um að þetta skref eigi eftir að breyta lífi mínu. Ég ætla að eignast nýja vini og vonandi öðlast nýtt líf á nýjum stað. Ég hlakka til að byrja að læra íslensku og verða hamingjusamur á Íslandi.“ Ég býð þessa nýju Mosfellinga innilega velkomna í bæinn. Fólk á flótta Bjarki Bjarnason forseti bæjarstjórnar Mosfellsbæjar Stuðpúðar VG Þótt því megi halda fram að stjórnarsamstarf Vinstri grænna með Sjálfstæðisflokki og Fram- sóknarflokki sé stöðug upp- spretta vandamála, ekki síst núna vegna gerólíkrar afstöðu annars vegar VG og hins vegar Sjálfstæðisflokksins til Nató, má segja að þau Rósa Björk Brynj- ólfsdóttir og Andrés Ingi Jóns- son séu hinn fullkomni böffer milli stjórnarsamstarfsins og óánægðra flokksfélaga. Þótt VG virðist þannig stöðugt fara á svig við yfirlýst stefnumál flokksins koma Rósa og Andrés sífellt til bjargar og rétta myndina. Þann- ig getur flokkurinn bæði stillt sér upp með Sjálfstæðisflokkn- um en einnig með grunnstefnu flokksins án þess þó að stjórnar- samstarfinu verði teflt í voða. Rósa reddar þessu Enda þótt flokkurinn hafi það formlega á stefnuskrá sinni að íslensk stjórnvöld eigi „að hafna hernaðaríhlutunum, beita sér fyrir alþjóðlegum samningum um frið og afvopnun sem og að vinna gegn vopnaframleiðslu og vígbúnaði“, þá er ekki viðlit að komast í ríkisstjórn en halda þessum áherslum til streitu. Þá er gott að eiga hana Rósu að til að standa á prinsippum flokks- ins, fyrir hönd formannsins sem neyðist til að leiða Natóríki með Guðlaugi Þór. adalheidur@frettabladid.is 1 6 . A P R Í L 2 0 1 8 M Á N U D A G U R8 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SKOÐUN 1 6 -0 4 -2 0 1 8 0 5 :2 6 F B 0 4 8 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F 7 6 -6 D 5 4 1 F 7 6 -6 C 1 8 1 F 7 6 -6 A D C 1 F 7 6 -6 9 A 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 4 8 s _ 1 5 _ 4 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.