Fréttablaðið - 16.04.2018, Side 9
Guðmundur
Steingrímsson
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
GE bílar
Reykjanesbæ
www.gebilar.is
420 0400
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
IB ehf.
Selfossi
www.ib.is
480 8080
BL söluumboð
Vestmannaeyjum
481 1313
862 2516
* V
ið
m
ið
un
ar
tö
lu
r f
ra
m
le
ið
an
da
u
m
e
ld
sn
ey
tis
no
tk
un
í
bl
ön
du
ðu
m
a
ks
tri
.
Bú
na
ðu
r b
íls
á
m
yn
d
er
fr
áb
ru
gð
in
n
au
gl
ýs
tu
v
er
ði
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
8
7
1
1
1
N
is
s
a
n
J
u
k
e
5
x
2
0
a
lm
e
n
n
m
a
rs
TÖFFARINN
Í FJÖLSKYLDUNNI
NISSAN JUKE ACENTA
SJÁLFSKIPTUR / 117 HESTÖFL / EYÐSLA 6,0 L/100 KM*
3.350.000 KR.
Einu sinni var veröldin þannig að það fól í sér mjög sterka pólitíska afstöðu að ákveða á hvaða bensínstöð ætti að stoppa á leið um Hvalfjörð. Ef maður stoppaði í Botns
skála var maður fylgismaður Sjálfstæðis
flokksins. Ef maður stoppaði á Þyrli var
maður hliðhollur Framsóknarflokknum.
Ef maður keypti bensínið á Ferstiklu var
maður kommúnisti.
Á fleiri sviðum fól daglegt hátterni í
sér pólitíska afstöðu. Það skipti vitaskuld
máli hvaða dagblöð fólk las. Víða skipti
máli í hvaða bakaríi fólk keypti sæta
brauð. Ekki tóku sjallar í mál að borða
kommasnúð eða öfugt. Hveitið var póli
tískt. Lífið hlýtur að hafa verið erfitt fyrir
óákveðna, sem svitnuðu ábyggilega mjög
á efri vör á degi hverjum við að taka rétt
ar pólitískar innkaupaákvarðanir.
Breytt veröld
Nú hefur veröldin breyst. Það eru
komin göng undir Hvalfjörð og bensín
stöðvarnar þar mega muna sinn fífil
fegurri. Ég held að ákaflega fáir spái í
flokkapólitíska merkingu hveitis eða
dísilolíu. Pólitík er auðvitað samt víða,
sumir fjölmiðlar eru pólitískari en aðrir
og viðskiptalífið eins og það er. Hallar til
hægri. Ég held að mér sé óhætt að segja
að veröldin hafa í öllu falli breyst þannig
að ef ung manneskja myndi taka ákvarð
anir um innkaup hinna hversdagslegu
hluta á grundvelli hollustu við stjórn
málaflokk yrði hún álitin spes.
Staðreyndin er þessi: Stjórnmálaflokk
ar skiptu þjóðinni í fylkingar einu sinni.
Þeir skipta fáum í fylkingar núna. Þeir
eru tímaskekkja. Upplýsingar flæða yfir
mann og möguleikinn til að setja sig inn
í einstök mál er orðinn svo ævintýralega
miklu meiri. Möguleikinn til að kynnast
sjónarmiðum einstaklinga er orðinn
miklu meiri. Stjórnmálaflokkar, oft með
sína löngu sögu, með sína svörtu sauði
og dökku hliðar, flækjast fyrir þeirri
löngun manns að fá að taka afstöðu á
beinan og upplýstan hátt til manna og
málefna.
Eitt grín, einn hlátur
Ímyndum okkur að grínistar væru með
svona flokka. „Hlæið til framtíðar með
MiðÍslandi!“ „Steypustöðin er rétta
grínið fyrir þig!“ Sjáið Ara Eldjárn! Ekki
fíla Steinda! Vissulega getur smekkur
fólks verið mismunandi en hvers vegna
í ósköpunum skyldi maður hafa svo
ákveðnar skoðanir á gríni að maður
gengi í sérstakan grínflokk, styddi hann
og neitaði að hlæja að öðru?
Hvers vegna ekki að njóta allra lit
anna? Er ekki Anna Svava fyndin líka,
Pétur Jóhann, Tvíhöfði, Lolla og Sarah
Silverman? Ég á í mjög miklum erfið
leikum með að sætta mig við það, að
þegar kemur að grunngerð samfélags
ins, skoðunum á því hvað þurfi að gera
og hvernig eigi að gera það, gildi önnur
lögmál en annars staðar í lífinu. Má ekki
læka margt?
Tilvist stjórnmálaflokka setur kjós
endum óeðlilega afarkosti. Þeir njörva
kjósendur niður í hólf sem eiga sér litla
samsvörun í raunveruleikanum. Enda fer
stuðningur við stjórnmálaflokka þverr
andi. Stærsta bylting stjórnmálanna á
undanförnum árum felst í hverfandi
hollustu við flokka. Langflestir kjós
endur ákveða sig rétt áður en þeir fara
í kjörklefann.
Í komandi kosningum í Reykjavík ætla
vel á annan tug flokka að bjóða fram
lista. Fullt af fólki vill gefa sig að sveitar
stjórnarmálum. Löggjafarvaldið átti ekki
í vandræðum með að taka ákvörðun um
að fjölga sveitarstjórnarfulltrúum um
heilan helling. Besta gjöfin til kjósenda
væri þó sú að gefa kjósendum frelsi til
að velja úr öllum þessum hópum þá ein
staklinga sem þeir treysta best. Svo vinna
þeir saman.
Hin feiga hönd
Ég get borið vitni um það að auk þess að
vera hamlandi og óeðlilegir, með hlið
sjón af nútímasamfélagi, eru flokkar líka
til hreinnar óþurftar að öðru leyti: Í þeim
öllum ríkir andrúmsloft óbærilegra leið
inda. Flokkar drepa allt þokkalegt fólk
úr leiðindum. Það er bara tímaspurs
mál. Hin kæfandi krafa um að kyngja
eigin lífsviðhorfum í þágu flokksholl
ustu verður smám saman óbærileg, um
að ganga í takt við alls konar fólk sem
manni líkar jafnvel illa við, um að brosa
framan í heiminn þótt flestir viti að til
þess séu fáar ástæður. Að vera einhver
allt annar en maður er.
Þannig gera flokkar. Nú síðast hefur
Björt framtíð orðið leiðindunum að
bráð. Sá flokkur var stofnaður í þeirri
von að hægt væri að skapa stjórnmála
flokk sem væri meira eins og opinn,
afslappaður vettvangur, laus við þrúg
andi kröfur, byggður á löngun fólks til
að þjóna samfélagi sínu á heilbrigðan
og óþvingaðan hátt.
Það tók nokkur ár fyrir leiðindin – ill
girni, deilur og ríg – að vinna fullnaðar
sigur yfir fögrum hugsjónum og góðu
fólki.
Hvernig virka þá hinir flokkarnir sem
enn standa? Jú, einn af þeim skrimtir
því hann er klíka um völd. Hinir hanga
á leikaraskap.
Flokkar eru til óþurftar
Tilvist
stjórnmála-
flokka setur
kjósendum
óeðlilega
afarkosti.
S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 9M Á N U D A G U R 1 6 . A P R Í L 2 0 1 8
1
6
-0
4
-2
0
1
8
0
5
:2
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
7
6
-5
E
8
4
1
F
7
6
-5
D
4
8
1
F
7
6
-5
C
0
C
1
F
7
6
-5
A
D
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
8
s
_
1
5
_
4
_
2
0
1
8
C
M
Y
K