Fréttablaðið - 16.04.2018, Side 10
Spá Fréttablaðsins fyrir Pepsi-deild karla 2018 Ítarlegri grein má lesa á Fréttablaðið.is
PEPSI
DEILDIN
2018
1. ?
2. ?
3. ?
4. ?
5. ?
6. ?
7. ?
8. ?
9. ?
10. ?
11. ?
12. Keflavík
Fréttablaðið spáir því að nýliðar
Keflavíkur stoppi stutt við í Pepsi-
deildinni. Guðlaugur Baldursson
kom Keflavík upp á sínu fyrsta
tímabili með liðið. Keflvíkingar eru
með nokkra unga og spennandi
stráka í bland við sterka útlendinga.
Þeir hafa hins vegar sama og ekkert
styrkt sig í vetur og það gæti reynst
þeim dýrkeypt í baráttunni í sumar.
Keflavík
hafnar í 12. sæti
Nýju andlitin
Fylgstu með Þessum
Ísak Óli Ólafsson var lykilmaður í
vörn Keflavíkur í fyrra og var valinn
efnilegasti leikmaður Inkasso-
deildarinnar. Leeds United reyndi
að fá Ísak í sínar raðir í vetur.
Aron Freyr Róbertsson Grindavík
Bojan Stefán Ljubicic Fjölni
Jonathan Faerber Reyni S.
Tölfræði frá
síðasta sumri
Danski framherjinn Jeppe Hansen var marka-
kóngur Inkasso-deildarinnar og mætir nú
í Pepsi-deildina með þriðja liðinu.
Hann skoraði 16 mörk í 37 deildar-
leikjum fyrir Stjörnuna 2014-16
og lék svo hálft tímabil með KR
þar sem lítið gekk. Hansen ber
þyngstu byrðarnar í sóknarleik
Keflavíkur og nýliðarnir treysta
á mörk frá honum í sumar.
Lykilmaðurinn í sumar
Jeppe Hansen
ENKUNNASPJALDIÐ VÖRNIN HHHHH ❘ SÓKNIN HHHHH ❘ ÞJÁLFARINN HHHHH ❘ BREIDDIN HHHHH ❘ LIÐSSTYRKINGIN HHHHH ❘
GENGIÐ SÍÐUSTU SEX TÍMABIL 2017 2. sæti (B-deild) ❘ 2016 3. sæti (B-deild) ❘ 2015 12. sæti ❘ 2014 8. sæti ❘ 2013 9. sæti ❘ 2012 9. sæti ❘
19mörk skoruðu
Danirnir Hansen
og Rise samtals.
9 sinnum hélt Sindri
Kristinn Ólafs-
son hreinu,
oftast allra.
Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 8, sími 515 7040 I Brimborg Akureyri: Tryggvabraut 5, sími 515 7050
VERÐ FRÁ 2.702.000 K
R. ÁN VSK
3.350.000
KR. MEÐ VSK
CITROEN.IS
CITROËN JUMPY
MODUWORK - aukið flutningsrýmiNálægðarskynjarar að aftan
Þrjár lengdir
– allt að 4 metra
flutningsrými
FJÖLHÆFUR & STERKUR
LENGDIN SKIPTIR MÁLIBAKKAÐU AF ÖRYGG
I
KOMDU & MÁTAÐU
CITROËN JUMPY Í DAG!
BJÓÐUM EINNIG REKSTRAR
LEIGU
FÓTBOLTI Bolvíkingurinn Andri
Rúnar Bjarnason minnti á sig í
umræðunni um hvaða framherjar
fara með landsliðinu til Rússlands
um helgina er hann skoraði þrennu
fyrir Helsingborg í sigri á Frej í
Super ettan.
Markakonungur Pepsi-deildar-
innar á síðasta ári hefur byrjað
tímabilið í Svíþjóð af krafti en hann
hefur skorað fimm mörk í fimm
leikjum í öllum keppnum ásamt því
að leggja upp tvö í fyrsta deildarleik
Helsingborg en sænska deildin hófst
á dögunum. Er þetta fyrsta ár Andra
Rúnars í atvinnumennsku eftir
félagsskipti frá Grindavík í vetur.
Hefur nýtt tímann vel
Andri Rúnar sem jafnaði markamet
íslensku deildarinnar með Grinda-
vík í fyrra tekur undir að fyrstu
leikirnir hafi reynst draumi líkastir
þegar Fréttablaðið heyrir í honum.
Hafði hann háleit markmið þegar
hann kom út en fimm mörk og tvær
stoðsendingar voru framar vonum.
„Ég get ekki verið annað en
ánægður með fyrstu vikurnar hérna
í Svíþjóð, tvær stoðsendingar og
þrjú mörk í fyrstu tveimur leikj-
unum í deildinni. Auðvitað hafði
maður háleit markmið en þetta
hefur gengið betur en ég þorði að
vonast eftir,“ segir Andri og bætir
við:
„Ég er í raun enn að koma sjálfum
mér á óvart með hvað hægt er að
bæta sig mikið á stuttum tíma.
Hérna fæ ég svo tækifæri til að æfa
aukalega og fæ góða hvíld á milli og
það hjálpar manni að bæta sig sem
fótboltamaður, ég hef nýtt tímann
vel síðustu mánuði.“
Andri fann fyrir pressu
er hann kom út en hann
heyrði strax ytra að búist
var við því að hann yrði
markakóngur.
„Það var mikilvægt
að ná að skora strax
tvö mörk í bik-
arnum og ég fann
það líka þegar ég
skoraði fyrsta
m a r k i ð u m
helgina að það
létti á mér.
Sjálfstraust-
i ð k o m
með því og
ég finn mig
betur með hverjum leik,“
segir Andri en veðbankar
í Svíþjóð höfðu mikla trú á
honum.
„ S æ n s k i r ve ð b a n ka r
settu mig sem langlíkleg-
astan til að vera marka-
hæstur fyrirfram og það
skapaði smá pressu.“
Andra finnst jákvætt
að leika undir þessari
pressu.
„Ég lærði það í
fyrra að nýta mér
þessa pressu til góðs, reyna að nota
hana til að komast lengra. Að mínu
mati er betra að hafa pressu á sér til
að kalla fram það besta í manni.“
Líður vel í Svíþjóð
Andri samdi við eitt af stærstu
liðum Svíþjóðar en Helsingsborg er
í Superettan-deildinni, næstefstu
deildinni í Svíþjóð.
Hann finnur fyrir miklum metn-
aði hjá félaginu til að koma því aftur
í fremstu röð og kann vel við lífið í
Svíþjóð.
„Það tók mig ekki nema nokkrar
mínútur að sjá hversu stór klúbbur
þetta var þegar ég skoðaði aðstæð-
urnar í haust. Metnaðurinn er mikill
hjá félaginu og það er búið að sækja
leikmenn sem hafa gert það gott
í efstu deild. Gæðin á æfingunum
eru mikil og það tók mig 2-3 vikur
að venjast hraðanum. Eftir það hef
ég náð að komast betur í takt
við hraðann á æfingunum
og náð að bæta mig heilan
helling síðan ég kom hing-
að út til Svíþjóðar.“
Yrði draumur að fara
á HM
Andri Rúnar lék
fyrstu landsleiki
sína gegn Indó-
nesíu í janúar og
skoraði í þeim
eitt mark.
Hann dreymir
um að komast á HM
eins og alla aðra knatt-
spyrnuleikmenn frá Íslandi.
Hann segist þó ekki hugsa
út í það dagsdaglega.
„ Þ a ð e r n átt ú r u l e g a
draumur allra að vera hluti
af þessum hóp en ég reyni
að hugsa ekki mikið út í
hvort ég verði í hópnum.
Ég stjórna ekki valinu, ég
get bara stýrt því hvernig
ég spila og hvort ég verði
tilbúinn ef ég verð valinn.“
Andri kveðst að sjálfsögðu
tilbúinn ef kallið kemur.
„Ég verð tilbúinn ef kallið
kemur en þetta er ekki
mitt að ákveða. Lands-
liðsþjálfararnir velja
sterkasta hópinn hverju
sinni og þeir taka
ákvörðunina.“
kristinnpall@365.is
Er ennþá að koma sjálfum mér á óvart
Andri Rúnar Bjarnason byrjar tímabilið með Helsingborg af krafti en hann skoraði þrennu um helgina. Hefur hann skorað fimm mörk
og lagt upp önnur tvö í fyrstu fimm leikjum tímabilsins. Honum fannst það mikill léttir að ná að brjóta ísinn snemma en sænskir veð-
bankar töldu hann líklegan til að taka gullskóinn. Andra dreymir um sæti í HM-hópnum en segir að það sé ekki undir honum komið.
Andri Rúnar í
leik með Grinda-
vík síðasta
sumar.
1 6 . A P R Í L 2 0 1 8 M Á N U D A G U R10 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT
1
6
-0
4
-2
0
1
8
0
5
:2
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
7
6
-5
9
9
4
1
F
7
6
-5
8
5
8
1
F
7
6
-5
7
1
C
1
F
7
6
-5
5
E
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
8
s
_
1
5
_
4
_
2
0
1
8
C
M
Y
K