Fréttablaðið - 16.04.2018, Blaðsíða 16
Mosaboltana
má hengja upp á
alla vegu.
Þykkblöðungar eru
afar hentugir því
þeir þurfa ekki mikla
vökvun en það er vel
hægt að vera með burkna
í kokedamabolta og
hengja upp í röku
umhverfi, til dæmis inni á
baðherbergi, en svo þarf
líka að vökva vel, dýfa
boltanum í vatn og leyfa
honum að svolgra í sig í
hálftíma. Það er líka hægt
að nota kókostrefjar í
stað mosa ef fólk er ekki
duglegt að
vökva.
Erna Aðalsteins-
dóttir
Ragnheiður
Tryggvadóttir
heida@frettabladid.is
Kokedama er gömul, japönsk plöntugerðarlist og innanhússkraut. Aðferðin þróaðist
út frá bonsai sem er þó miklu tíma
frekari aðferð meðan hægt er að
gera nokkra kokedamabolta á einu
kvöldi,“ útskýrir Erna Aðalsteins
dóttir plöntufíkill, eins og hún
kallar sig, og formaður Sígræna
klúbbs Garðyrkjufélags Íslands.
Blóm og pottaplöntur hafa
notið mikilla vinsælda á íslenskum
heimilum um skeið og í Facebook
hópum eins og Stofublóm – inni
blóm – pottablóm, sem hefur yfir
12.500 fylgjendur, skiptist fólk á
ráðum og birtir myndir af blóm
unum sínum.
Erna segir kokedamaboltana
bjóða upp á fjölbreytta möguleika
á að prýða heimilið og með þeim
megi til dæmis búa til hengigarða
með mörgum, misstórum boltum
og jafnvel raða mörgum plöntum
í einn.
„Það er hægt að nota hvaða
plöntu sem er í boltana en sumar
henta kannski betur en aðrar. Það
fer eftir því hvar fólk ætlar sér að
hafa boltann og hversu duglegt það
er að muna eftir að vökva,“ segir
Erna. „Þykkblöðungar eru afar
hentugir því þeir þurfa ekki mikla
vökvun en það er vel hægt að vera
með burkna í kokedamabolta
og hengja upp í röku umhverfi,
til dæmis inni á baðherbergi, en
svo þarf líka að vökva vel, dýfa
boltanum í vatn og leyfa honum
að svolgra í sig í hálftíma. Það er
líka hægt að nota kókostrefjar í
stað mosa ef fólk er ekki duglegt að
vökva.“
Aðferðina segir Erna nokkuð
einfalda, um ræturnar er mótaður
bolti úr sérblönduðum jarðvegi,
utan um hann fer mosi eða kókos
trefjar og svo er vafið um boltann
með bandi. Boltana er svo hægt að
hengja upp á hvers konar máta.
„Eins er sniðugt að nota kerta
stjakana sem ekki eru notaðir
yfir sumarið undir boltana eða
sérstakar japanskar skálar, sem
ætlaðar eru undir mosabolta.
Boltarnir geta verið eins stórir og
hver vill og hægt að vera með fleiri
en eina plöntu í sama bolta. Svo
má nota litrík bönd til að vefja
þá með og hengja þá upp með
litríkum borðum. Kokedamabolta
er sérstaklega sniðugt að gera með
krökkum. Krakkarnir geta drullu
mallað og mótað utan um plönt
urnar og foreldrarnir hjálpað þeim
að vefja,“ segir Erna.
Á miðvikudaginn fer fram námskeið
í kokedamaboltagerð undir hand-
leiðslu Ernu, milli klukkan 18 og 21,
í sal í sal Garðyrkjufélags Íslands,
Síðumúla 1. Sjá nánar á Facebook-
hópnum Álfagarðar.
Hengigarðar
prýða heimilið
Hvaða tegund blóma sem er má nota í boltana. Þá þarf að vökva vel og til
dæmis láta þá liggja í vatni dálitla stund.
Hengigarðar njóta mikilla vinsælda og prýða heimilin.
FERMINGARGJAFIR
Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út
bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal
hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum.
Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst
gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi.
Tryggðu þér gott auglýsingapláss
í langmest lesna dagblaði landsins.
Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402
eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is
Fimmtudaginn 26. apríl gefur Fréttablaðið út sérblaðið
ÚTIVIST
Í þessu glæsilega blaði verða skemmtileg viðtöl við allskonar fólk
sem hefur smitast af útvistarbakteríunni.
Fjallgöngur, hlaup, hjólreiðar eða skokk um göngustíga borgarinnar.
Markmið blaðsins er grípa athygli allra þeirra sem stunda útivist af einhverju
marki. Því til viðbótar verður ýmis gagnle ur og hvetjandi fróðleikur fyrir þá sem
vilja fara af stað og stunda meiri útiveru og útvist.
Nán ri upplýsi ar um auglýsingar og kynningarumfjallanir veitir
Ólafur H. Hákonarson markaðsfulltrúi Fréttablaðsins.
Sími 512 5433 / olafurh@frettabladid.is
Japanskir mosa-
boltar eru vin-
sælir í hengigarða
og segir Erna
Aðalsteinsdóttir
lítið mál að búa
þá til. Hvers konar
plöntur megi
nota í boltana
og hengja upp á
skemmtilegan
máta. Erna heldur
námskeið í mosa-
boltagerð á mið-
vikudag.
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 6 . A P R Í L 2 0 1 8 M Á N U DAG U R
1
6
-0
4
-2
0
1
8
0
5
:2
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
7
6
-6
8
6
4
1
F
7
6
-6
7
2
8
1
F
7
6
-6
5
E
C
1
F
7
6
-6
4
B
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
8
s
_
1
5
_
4
_
2
0
1
8
C
M
Y
K