Fréttablaðið - 16.04.2018, Blaðsíða 37

Fréttablaðið - 16.04.2018, Blaðsíða 37
Slakir United-menn færðu City enska titilinn Manchester City svaraði fyrir þrjú töp í röð með öruggum sigri á Tottenham á Wembley um helgina. Eftir tap Manchester United daginn eftir gegn West Brom varð ljóst að United gæti ekki náð City að stigum og fimmti meistaratitillinn var í höfn. City hefur fimm umferðir til að gera atlögu að marka- og stigameti deildarinnar. skemmtileg viðbót en þeim spænska tókst að landa enska meistaratitl- inum í fyrsta sinn. Guardiola var fenginn til City til að skapa sigurhefð og skapa lið sem gæti gert atlögu að Meistaradeild Evrópu. Hefur honum mistekist það í tvígang og eftir að hafa óvænt fallið úr leik í enska bikarnum fyrr í vetur er að litlu að keppa næstu vikurnar fyrir ensku meistarana. City á fimm leiki eftir og eru nokk- ur met í ensku úrvalsdeildinni innan seilingar. Þarf liðið að vinna þrjá leiki af fimm til að bæta stigamet deildar- innar í 38 leikja deild, met sem Chel- sea setti undir stjórn Jose Mourinho árið 2005. Chelsea á einnig metið yfir flest mörk á heilu tímabili þegar liðsmenn Chelsea skoruðu 103 mörk er þeir unnu enska meistaratitilinn 2010. Vantar Manchester City ellefu mörk í fimm leikjum til að bæta met Chelsea en nýkrýndu Englands-meistararnir eru búnir að skora að meðaltali tæp- lega þrjú mörk í leik. Þá getur Manchester City slegið aðeins ársgamalt met Chelsea sem fráfarandi enskir meistarar settu undir stjórn Antonio Conte í fyrra. Chelsea setti met er félagið vann 30 leiki en City hefur unnið 28 leiki þegar fimm umferðir eru eftir. Komnir til að vera Það skyldi engan undra að Man- chester City verði sterkara á næsta tímabili. Kjarni liðsins er á besta aldri og fær Guardiola eflaust nægan pening til að reyna að koma liðinu yfir þröskuldinn í Meistaradeild Evrópu. Gera atlögu að eina titl- inum sem Manchester City vantar í titlaskápinn. kristinnpall@frettabladid.is. Deildin er það sem skiptir mestu máli. Í Meistaradeildinni getur einn leikur breytt öllu en það er alltaf besta liðið sem vinnur deildina. Pep Guardiola Pep Guardiola er fyrsti spænski þjálfarinn sem verður enskur meistari. Hafa þjálfarar frá átta löndum stýrt liði til sigurs í ensku úrvalsdeildinni. Leroy Sane, Gabriel Jesus og Kyle Walker, sem fagna hér marki Jesus, unnu fyrsta meistaratitil sinn um helgina en ungur kjarni Manchester City er líklegur til alls næstu árin undir stjórn hins spænska Pep Guardiola. NORDICPHOTOS/GETTY #PL KAUPTU STAKAN LEIK: Mánudagur 16. apríl Stoke 18:50 West Ham Tottenham 18:35 Brighton Fimmtudagur 19. apríl #WHUSTK #BHATOT Chelsea 18:35Man. City #BURCHE Burnley 365.is 1817 Man. Utd 18:35 Bournemouth #BOUMUN Þriðjudagur 17. apríl Miðvikudagur 18. apríl Nýjast KR - Haukar 85-79 KR: Brynjar Þór Björnsson 17, Kendall Pollard 13, HelgI Már Magnússon 13, Björn Kristjánsson 10, Pavel Ermolinskij 9/12 frá- köst, Kristófer Acox 8, Darri Hilmarsson 7, Marcus Walker 6, Jón Arnór Stefánsson 2. Haukar: Paul Anthony Jones 22, Kári Jónsson 17, Breki Gylfason 11, Emil Barja 8, Finnur Atli Magnússon 8, Kristján Leifur Sverrisson 6, Hjálmar Stefánsson 5 , Haukur Óskarsson 2. KR vinnur einvígið 3-1 og leikur til úrslita gegn Tindastól. Domino’s-deild karla, undanúrslit Afturelding - FH 23-27 Afturelding: Mikk Pinnonen 8, Birkir Benediktsson 4, Gestur Ólafur Ingvarsson 3, Böðvar Páll Ásgeirsson 3, Ernir Hrafn Arnarsson 3, Gunnar Kristinn Þórsson 1, Kristinn Hrannar Bjarkason 1. FH: Ásbjörn Friðriksson 11, Arnar Freyr Ársælsson 5, Óðinn Þór Ríkharðsson 4, Einar Rafn Eiðsson 3, Gísli Þorgeir Kristjánsson 2, Jón Bjarni Ólafsson 2. FH vinnur einvígið 2-0 og fer í undanúrslitin.. ÍR - ÍBV 26-30 ÍR: Bergvin Þór Gíslason 9, Kristján Orri Jóhannsson 6, Orri Freyr Þorkelsson 4, Þrándur Gíslason 2, Björgvin Hólmgeirsson 2, Elías Bóasson 1, Davíð Georgsson 1, Aron Örn Ægisson 1. ÍBV: Kári Kristján Kristjánsson 10, Agnar Smári Jónsson 5, Grétar Þór Eyþórsson 3, Theodór Sigurbjörnsson 3, Dagur Arnarsson 3, Sigurbergur Sveinsson 2, Aron R. Eðvarðs- son 1, Elliði Snær Viðarsson 1, Andri Heimir Friðriksson 1, Róbert Aron Hostert 1. ÍBV vinnur einvígið 2-0 og fer í undanúrslitin.. Selfoss - Stjarnan 33-25 Selfoss: Teitur Örn Einarsson 8, Árni Steinn Steinþórsson 7, Hergeir Grímsson 5, Elvar Örn Jónsson 4, Atli Ævar Ingólfsson 3, Einar Sverrisson 2, Richard Sæþór Sigurðsson 2. Stjarnan: Egill Magnússon 6, Leó Snær Pétursson 6, Ari Magnús Þorgeirsson 5, Garðar Benedikt Sigurjónsson 4, Aron Dagur Pálsson 2, Sverrir Eyjólfsson 1. Staðan í einvígi liðanna er 1-0 fyrir Selfoss. Valur - Haukar 20-22 Valur: Magnús Óli Magnússon 6, Anton Rúnarsson 4, Sveinn Aron Sveinsson 3, Ýmir Örn Gíslason 2, Vignir Stefánsson 2, Snorri Steinn Guðjónsson 1, Ólafur Ægir Ólafsson 1, Sigurður Ingiberg Ólafsson 1. Haukar: Hákon Daði Styrmisson 8, Atli Már Báruson 4, Árni Þór Sigtryggsson 3, Heimir Óli Heimisson 2, Tjörvi Þorgeirsson 1, Adam Baumruk 1, Daníel Þór Ingason 1, Halldór Ingi Jónsson 1, Björgvin Páll Gústavsson 1. Staðan í einvígi liðanna er 1-0 fyrir Hauka. Olís-deild karla, 8-liða úrslit Valur - Haukar 26-19 Valur: Kristín Guðmundsdóttir 7, Diana Sat- kauskaite 4, Ólöf Kristín Þorsteinsdóttir 4, Ragnheiður Edda Þórðardóttir 4, Ásdís Þóra Ágústsdóttir 2, Díana Dögg Magnúsdóttir 1, Morgan Marie Þorkelsdóttir 1, Anna Úrsúla Guðmundsdóttir 1, Auður Ester Gestsdóttir 1, Vigdís Birna Þorsteinsdóttir 1. Haukar: Guðrún Erla Bjarnadóttir 6, Maria Pereira 6, Þórhildur Braga Þórðardóttir 3, Erla Eiríksdóttir 2, Rakel Sigurðardóttir 1, Birta Lind Jóhannsdóttir 1. Valur vinnur einvígið 3-2 og leikur til úrslita gegn Fram.. Olís-deild kvenna, undanúrslit Grótta - HK 24-25 Staðan í einvígi liðanna er 1-0 fyrir HK. Olís-deild kvenna, umspil S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 13M Á N U D A G U R 1 6 . A P R Í L 2 0 1 8 1 6 -0 4 -2 0 1 8 0 5 :2 6 F B 0 4 8 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F 7 6 -4 5 D 4 1 F 7 6 -4 4 9 8 1 F 7 6 -4 3 5 C 1 F 7 6 -4 2 2 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 4 8 s _ 1 5 _ 4 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.