Fréttablaðið - 16.04.2018, Page 38

Fréttablaðið - 16.04.2018, Page 38
Elskulegur mágur minn og frændi okkar, Ívar Árnason frá Skógarseli í Reykjadal, síðast til heimilis á Skógarbrekku, Húsavík, lést fimmtudaginn 5. apríl. Útför hans fer fram frá Einarsstaðakirkju í Reykjadal þriðjudaginn 17. apríl kl. 14. Fyrir hönd aðstandenda, Árni Bjarnason Eyþór Árnason Elín Sigurlaug Árnadóttir Drífa Árnadóttir Anna Sólveig Árnadóttir Guðný Ragnarsdóttir 1887 Guðjón Samúelsson, arkitekt og húsameistari ríkisins frá 1920 til dauðadags, fæðist. 1915 Fyrsta skip Eimskipafélags Íslands, Gullfoss, kemur til hafnar í Reykjavík. 1917 Vladimír Lenín kemur til Petrógrad í Rússlandi eftir áralanga útlegð í Sviss. 1919 Mahatma Gandhi skipuleggur dag föstu til að mót- mæla fjöldamorðum Breta á indverskum mótmælendum. 1943 Albert Hofmann uppgötvar LSD fyrir slysni. 1946 Sýrland hlýtur sjálfstæði. 1945 AA-samtökin á Íslandi eru stofnuð. 1957 Árbær er friðaður af bæjarráði Reykjavíkur. 2007 Fjöldamorðin í Tækniháskól- anum í Virginíu í Bandaríkjunum. Seung-Hui Cho myrðir 32. 2012 Réttarhöld yfir fjöldamorð- ingjanum Anders Behring Breivik hefjast í Osló.  Merkisatburðir Þann 16. apríl fyrir 119 árum, eða árið 1899, strandaði spítalaskipið St. Paul við Meðalland í Vestur- Skaftafellssýslu. St. Paul þótti með eindæmum glæsilegt skip: þrímastra seglskip með litla hjálparvél. Þetta var þriðja vertíð St. Paul en frá því það kom hingað til lands frá Le Havre í Frakklandi hafði það hjálpað fjölmörgum frönskum sjómönnum í háska hér við land. Tuttugu manna áhöfn St. Paul lenti í miklum hremmingum um páskahelgina árið 1899 þegar skipið strandaði í óveðri, rétt handa við ósa Kúðafljóts. Ekkert manntjón varð en bændur og búalið í Meðallandi komu áhöfninni til bjargar. Skipið var hins vegar pikkfast í sandinum og saga þurfti stór gat á skrokk- inn til að bjarga verðmætum. Þar á meðal voru dýrmætir gripir úr skipskapellunni. Mörg skip hafa strandað í grennd við Meðalland og ekki hefur alltaf gengið jafn vel að bjarga sjó- farendum úr háska þar. Munir úr St. Paul voru seldir á upp- boði. Yfir 300 manns mættu til að taka þátt í uppboðinu og stóð það í tvo daga. Lágmarksboð í sjálft skipið var 800 krónur, en það fór á 150 krónur. Þ ETTA G E R Ð I ST 1 6 . A P R Í L 1 8 9 9 : St. Paul strandar við Meðalland Kveðja frá Tunglinu Á þessum degi fyrir 46 árum var Apollo 16 skotið á loft frá Kanaveralhöfða í Flórída og voru þrír geimfarar um borð. Appollo 16 lenti á Tunglinu fimm dögum síðar. Á mynd- inni sést John W. Young ásamt lendingarfarinu LM-11. 20 manna áhöfn St. Paul lenti í miklum hremmingum um páskahelgina árið 1899 þegar skipið strandaði í óveðri, rétt handa við ósa Kúðafljóts. Guðjón Samúelsson, arkitekt og húsameistari ríkisins, átti afmæli 16. apríl. Opnað var fyrir umsóknir til náms í Lýðháskól-anum á Flateyri í gær en kennsla hefst þar í haust. Kennt verður á tveimur námsbrautum, en hvor um sig tekur við að hámarki 20 nemendum. Annars vegar er um að ræða námsleið sem byggir á að nýta þær auðlindir sem til eru á svæðinu, í nátt- úrunni, menningunni og samfélaginu á Flateyri og í nærsveitum. Í náminu er lögð áhersla á færni, þekkingu og verk- efni sem miða að því að nemendur verði færari í að ferðast um náttúruna, njóta hennar og nýta sér auðlindir hennar á öruggan og umhverfisvænan máta. Hin námsleiðin byggir á sköpun, hug- myndavinnu og útfærslu í hvers kyns formum. Áhersla er lögð á að nemendur þroskist sem skapandi einstaklingar og að námi loknu hafi að þeir safnað sér færni, verkfærum og tækni til að takast á við krefjandi verkefni í framtíðinni. Helena Jónsdóttir er framkvæmda- stjóri Lýðháskólans á Flateyri. Hún segir viðtökurnar hafa verið frábærar. „Á Vestfjörðum hafa sveitarfélög, stofnanir, ráðherrar og samfélagið allt tekið höndum saman og stutt verkefnið með ráðum og dáð,“ segir Helena. „Svo er áhuginn sem verkefnið sjálft hefur hlotið með ólíkindum. Við sjáum það á Facebook-síðunni okkar að fólk er að deila þessu út um allt. Það er verið að ræða þetta í fermingarveislum og hvað- eina. Þetta er búið að vera í undirbúningi lengi, en í raun og veru fórum við af stað með þetta af alvöru í lok desember og byrjun janúar.“ Kennsla á Flateyri hefst 19. septem- ber og verða námskeiðin kennd í tveggja vikna lotum. Allir sem orðnir eru 18 ára við upphaf námsannar geta sótt um. Helena segir markmið skólans vera að bjóða upp á aðra nálgun í námi en þá hefðbundnu. Áherslan er ekki á próf, heldur að auðga reynslu ungs fólks svo það eigi auðveldara með að finna sína hillu í lífinu. „Fegurðin í lýðháskólanum er að sjálf- sögðu falin í víðum skírskotunum ólíkra námsgreina,“ segir Helena. „En það er líka mikil fegurð í því að fólk kemur þarna saman á stað sem er oftast nokkuð afskekktur. Flateyri er 160 manna sjávar- þorp. Það er ekki ball á hverju kvöldi þarna, og þú hleypur ekki út til að ná þér í caffè latte þegar þér hentar. Þarna neyðist fólk til að vera saman og eitthvað töfrandi á sér stað. Það er ekki síður lærdómur að læra að vera í kring- um fólk á ólíkum aldri, af ólíkum upp- runa og með ólík áhugasvið og auðvitað ólíka færni í mannlegum samskiptum.“ kjartanh@frettabladid.is Lýðháskólinn á Flateyri opnar dyr sínar í haust Í Lýðháskólanum á Flateyri verður sérstök áhersla lögð á að kynnast og læra á náttúru Vestfjarða. MYND/LÝÐHÁSKÓLINN Á FLATEYRI Kennsla hefst í Lýðháskól- anum á Flateyri í september. Markmiðið með skólanum er að hjálpa ungu fólki að finna sína hillu í lífinu með því bjóða upp á fjölbreytt nám með víða skírskotun. 1 6 . A P R Í L 2 0 1 8 M Á N U D A G U R14 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð TÍMAMÓT 1 6 -0 4 -2 0 1 8 0 5 :2 6 F B 0 4 8 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 F 7 6 -4 A C 4 1 F 7 6 -4 9 8 8 1 F 7 6 -4 8 4 C 1 F 7 6 -4 7 1 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 4 8 s _ 1 5 _ 4 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.