Tíminn - 13.02.1983, Síða 10
ÍO
SUNNUDAGUR 13. FEBRÚAR 1983.
Fyrir tveimur öldum voru náttúruhamfarir nærri búnar að leggja fsland í eyði:
FLYTJA ÁTTI ALLA ÍSLEND-
INGA TIL JÓTLANDSHEIÐA
Hugmyndin var rædd í fullri alvöru veturinn 1784-1785
n Fyrir Iveimur öldum, þegar Móðu -
harðindi og óvenju mikið kuldaskeið
gerðu óskunda hér á landi með þeim
afleiðingum aö þúsundir íslendinga lét-
usl og kvikfénaöur stráféll, komu í fullri
alvöru til tals huginyndir um að flytja
stóran hóp, jafnvel alla, íslendinga úr
landi og til Jótlandsheiða. I’essar hug-
myndir voru ræddar og rannsakaðar af
embætlismönnum á íslandi og í Dan-
mörku og um þær skrifaðar álitsgcrðir,
jafnvel kannaður kostnaður sem slíkum
mannflutningum fylgdi. Niðurstaðan
vard sú að flutningar af þessu tagi væru
óhagkvæmir og óæskilegirog af þeimvarð
ekki. Það segir aftur á móti nokkra sögu
um ástandið á íslandi á þessum tíma að
slíkar hugmyndir skyldu vera ræddar af
alvöru af forystumönnum þjóðarinnar.
í nærri áratug, árin 1777-1786, ríkti
hér á landi samfellt harðindaskeið.
Hafís lagðist við strendur landsins og
mikill kuldi olli grasbresti scm aftur
bitnaði bæði á húsdýrum og mannfólki.
Móðuharðindin í kjölfar Skafárelda
juku á eymdina. Talið er á árunum
1783-1785 hafi 9238 fleiri menn dáið en
svaraði tölu fæddra. Veturinn 1783-
1784, þegar harðindin urðu einna mest,
féll rúmur helmingur alls nautpenings,
82% af sauðfé og 77% af hestum.
Það er ekki út i hött að bcra þessar
hörmungar á íslandi saman við hungurs-
neyðir og náttúruhamíarir í löndum
„þriðja heimsins" nú á dögum. íslensku
hamfarirnar eru jafnvel enn hroðalegri
cn þau tíðindi scm okjcur berast af og til
sunnan úr heimi. Þcgar fréttir bárust til
Danmerkur haustið 1783 um þá atburði
sem höfðu orðið á íslandi vöktu þær
þcgar mikla athygli. Efnt var til sam-
skota meðal almennings og stjórnvöld
sendu hingað til lands þá Levetzow
kammerherra og Magnús Stcphensen til
að kanna sem nánast/ástandið í landinu.
Hugmyndin kviknar
Við vitum ekki hvenær fyrst var hrcyft
hugmyndinni um að flytja hina hart-
lciknu íslendinga úr landi til að forða
þeim frá frekari hörmungum, og ekki
vitum við heldur hver eða hverjir
viðruðu hana fyrst.
Elsta varðveitta heintildin er bréf scm
Jón Sveinsson Sýslumaður í Suður-Múla-
sýslu skrifaði Rentukammcrinu í Kaup-
Kort
over de/L Egn. af
VestreSkiptefielv SrSSEl.
i fsla.ncL,
Jom. cn. nijc 1 ' " s4ar
7iar m/nmr.i.
oplagel,cJfrr cle iVíarc.t 178/1 paa
S'fedcrnr Jclu giordc
Dansk-e . nú7e
■ Uppdráttur Magnúsar Stephensen af upptökum Siðuelda og hraunflóðum þeim sem frá þeim runnu niður í byggðir í Vestur-Skaftafellssýslu.
27. mars
16dagar
12. apríl
4 vikur
10. maí
3 vikur
31. maí
2og3vikur
21. júní 12. júií 2. ágúst
2og3vikur 2og3vikur 2og3vikur
23. ágúst
2og3vikur
13. sept.
2og3vikur
5. okt.
3 vikur
URVAL
VIÐ AUSTURVÖLL SIMI 26900
umboðsmenn um allt land