Tíminn - 13.02.1983, Page 24

Tíminn - 13.02.1983, Page 24
SUNNUDAGUR 13. FEBRÚAR 1983. Helgar-Tíminn heimsækir útvarpsmennina Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur og Einar Örn Stefánsson: „VERKEFNIF A AÐ GLIMA VIÐ AF HUG” „Ég held því statt og stöðugt fram að ég sé Vestmannaeyingur", segir Einar, „ég fæddist í Vestmannaeyjum og bjó þar fyrsta hálfa mánuð ævi minar. Ég er sonur Grétu Runólfsdóttur, Jóhanns- sonar bátasmiðs í Eyjuin, en móðir mín er nú starfsmaður Þjóðhagsstofnunar. Föðurættin kemur frá Húsavík, faðir minn var Stefán Guðjohnsen lögfræð- ingur, en hann lést árið 1969. Ég dvaldi oft í Vestmannaeyjum á sumrin hjá afa og ömmu, fluttist svo þangað 15 ára gamall, tók landspróf þar en fór síðan í Menntaskólann að Laugarvatni. Það er hins vegar merkilegt, að þótt ég sé hálfur Húsvíkingur hef ég aldrei komið til Húsavíkur, en hef í hyggju að fara þangað hálfum mánuöi áður en ég dey!“ - Þú hefur þá ekki ferðasUnikið um landið? ( „Nei, furðulega lítið, ég hef aldrei komist norður, nema einu sinni til Akureyrar. Það var um hávetur, í nemendaskiptum, sem tíðkuðust milli menntaskólanna. Sú ferð lagðist þó ekki betur ímig en svo, að heimkominn iagði ég til að nemendaskiptin yrðu lögð niður. Það var og gert, enda vorum við svo róttæk á Laugarvatni, en ekkert nema borgaralegir hjassar eins og Davíð Oddssonogfleiriíhinummenntaskólun- ■ Þau keyptu íbúðina tilbúna undir trcverk - Einar gerði hana íbúðarhæfa og passaði bömin á meðan Asta vann að þættinum „Út og suður“. ■ Um þessa helgi er Helgar- Tíminn í heimsókn hjá hjónun- um Ástu Ragnheiði Jóhannes- dóttur útvarpsmanni og fram- bjóðanda fyrir Framsóknar- flokkinn í Reykjavík í næstu alþingiskosningum, og Einari Erni Stefánssyni fréttamanni hjá útvarpinu. Þau búa í Breiðholt- inu ásamt börnum sjnum, Rögnu Björt níu ára og Ingva Snæ sex ára, eins og fjölmargt annað ungt barnafólk. ■ Ég kem upp í Flúðascl tíl Ástu Ragnheiðar og Einars Arnar um hádeg- isbil. Ástaerað gefa dóttursinni, Rögnu Björt, og vinkonu hennar að borða. Ég sest inn í eldhús til þeirra og fæ langþráðan kaffibolla, þann fyrsta þann daginn. Við hefjum „óformlegar um- ræður", tölum m.a. um það hvað við erum alltaf áhyggjufullar þegar dætur okkar eru „að passa", vegna þess hve það er ábyrgðarmikið starf að gæta barna. Samter umönnun barna stór- kostlega vanmetið starf. Skrýtið! Svo kemur Einar Örn og sonurinn, Ingvi Snær, skömmu síðar og við tökum upp léttara hjal. um, svo okkur þótti lítill akkur í þeim samskiptum. Ég vona nú samt að nemendaskiptin hafi verið tékin upp aftur, þetta er ágætis tækifæri til að komast til Akureyrar, sérstaklega ef menn komast ekki þangað aftur". Er hér var komið sögu var barið að dyrum og inn steig Ijósmyndari Helgar- Tímans, blautur og hrjáður eftir átökin við ófærðina í Breiðholtinu. Ásta bauðst til að draga af honum sokkaplöggin að gömlum íslenskum sið... „Ég hef eiginlega aldrei beðið þess bætur að hafa verið á Laugarvatni," heldur Einar áfram og Ásta bætir við: „Ég held að fólk hafi mjög gott af því að fara á svona heimavistarskóla, maður lærir að hugsa um sjálfan sig. Það kemur fram í því að hann tckur fullan þátt í heimilisstörfunum, sem ég efast um að hann mundi gera ef hann hefði verið heima hjá mömmu sinni öll mennta- skólaárin." Gaf út bekkjarblað með Tomma í Tomma-hamborgurum „Já, maður lærði að hugsa um sjálfan sig“, segir Einar, „en varð hálf sveita- legur í staðinn. Laugarvatn er einungis skólastaður og því að vissu leyti úr tengslum við samfélagið, því að þarna fer ekkert fram annað en skólastarí. Maður varð voðalega einangraður þarna og það myndaðist í rauninni séstakur þjóðflokkur, maður hitti ekki annað fólk en skólafólk og Iifði því dálítið í eigin heimi. En á hinn bóginn er það kostur að við lærðum að hugsa um okkur sjálf, þrífa og allt sem því tilheyrir og svo unnu ltka flestir fyrir sér í öllum fríum og kostuðu þannig skólann sjálfir." - Hvernig var félagslífið? „Það var býsna mikið félagslíf þarna, enda var ekki komið sjónvarp, það var fellt á hverju ári að fá sjónvarp. Ég var þarna árin 1965-70 en það kom sjónvarp skömmu síðar og mér skilst að þá hafi dofnað yfir félagslífinu. Það var kannski partur af róttækni okkar eða sveita- mennsku að vilja ekki sjá sjónvarp.“ „Ég hef alltaf haldið því fram að róttækni sé ákveðin tegund af íhalds- semi“, segir Ásta og hlær, en Einari þykir þessi athugasemd ekkert ofsalega fyndin og heldur áfram. „’68-bylgjan byrjaði fyrr í nýrri skól- unum eins og ML og MH en í gömlu skólunum og hún varð líka miklu minni í MA og MR. Það var mikil pólitísk umræða á Laugarvatni og sósíalistafélög stofnuð en helst voru menn bara anarkistar á þessum tíma." - Varst þú kannski anarkisti? „Ég vil nú ekki viðurkenna það, en þegar fólk er að móta skoðanir sínar sveiflast það oft öfganna á milli. - Varstu eitthvað farinn að fást við blaðamennsku á þcssum árum? „Ég byrjaði á því að gefa út Heimilis- fréttir í frumbernsku, stefndi sem sagt alltaf að því að verða blaðamaður. Síðan gaf ég fyrst út skólablað þegar ég var 11 ára ásamt Tómasi í Tomma-hamborgur- um. Þetta var bekkjarblað og Tommi hafði aðgang að sprittfjölritara sem bauð upp á möguleika á fjórum mismun- andi litum, þannig að við gátum haft forsíðuna í fjórum litum og þótti heldur glæsilegt. Tommi var framkvæmdastjóri þessa blaðs og ég ritstjóri og það má segja að þetta hafi verið upphafið að framkvæmdaferli Tomma og blaða- mannsferli mínum! Blaðamennskan er einhver baktería sem maður fær og ekki er auðvelt að losna við, en reyndar var ég líka alltaf að teikna og munaði minnstu að ég færi í auglýsingateiknun eða arkitektúr. Það varð þó ekkert úr því vegna þess að mér

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.