Víkurfréttir - 18.04.2018, Qupperneq 22
22 ÍÞRÓTTIR Á SUÐURNESJUM miðvikudagur 18. apríl 2018 // 16. tbl. // 39. árg.
Aðalfundur NES 2018 verður haldinn fimmtudaginn 3. maí
í Íþróttaakademíunni við Krossmóa kl. 18.00.
Tillögur að lagabreytingum verða lagðar fram á aðalfundi,
þær eru að finna á fésbókarsíðu félagsins: Íþróttafélagið Nes.
Vakin er athygli á að það vantar fólk í stjórn Nes sem er grundvöllur
fyrir rekstri Nes, svo sérstaklega er auglýst eftir áhugasömu fólki svo
íþróttaiðkun fatlaðra á svæðinu geti verið til fyrirmyndar.
Allir velkomnir.
Stjórn Nes
AÐALFUNDUR
Vilt þú gerast persónulegur
talsmaður fatlaðs einstaklings?
Námskeið fyrir áhugasama verður haldið
í Reykjavík laugardaginn 28. apríl
Einstaklingur, sem vegna fötlunar á erfitt með að gæta hagsmuna sinna,
á rétt á að velja persónulegan talsmann sér til aðstoðar.
Um ólaunað starf er að ræða, en tilfallandi kostnaður er greiddur.
Meðal skilyrða sem þarf að uppfylla til þess að gerast persónulegur talsmaður
er að sækja fræðslu um innihald og áherslur í starfinu.
Námskeið fyrir persónulega talsmenn verður haldið í Veislumiðstöðinni,
Borgartúni 6 Reykjavík, laugardaginn 28. apríl og stendur frá kl. 9 til 16.
Þeir sem hyggjast sækja námskeiðið hafi samband við Elínborgu Þrastardóttur
í síma 858 1798, eða með því að senda póst á netfangið elinborg@rett.vel.is
fyrir 24. apríl.
Réttindavakt velferðarráðuneytisins
Harlem Globetrotters
koma til Reykjanesbæjar
Hið heimsfræga sýningar- og körfuboltalið Harlem Globetrotters er
væntanlegt til Íslands í maí og mun liðið vera með tvær sýningar, eina í
Laugardalshöll Reykjavík og eina í TM Höllinni í Reykjanesbæ en þetta er
í sjötta sinn sem liðið setur upp sýningu hér á Íslandi.
Harlem Globetrotters er elsta fjöl-
skyldusýning i heimi. Fyrsta liðið var
myndað árið 1926 og upp frá því hefur
hópurinn ferðast til 122 landa og
komið fram á yfir 25.000 sýningum.
Núverandi sýning einkennist af sam-
keppni liðsins við annað sýningarlið,
hina svonefndu Washington Gene-
rals. Liðsmenn Harlem Globetrotters
munu sýna snilli sína með ótrúlegum
uppákomum þar sem gleðin verður
fyrst og fremst við völd.
Sýningar liðsins hafa verið vinsælar
hér á landi og oftar en ekki hafa
færri komist að en vilja. Miðasala
fer fram á tix.is.
ÁGÚST KRISTINN OG EYÞÓR TÓKU ÞÁTT
Í STERKUM TAEKWONDO-MÓTUM
Ágúst Kristinn Eðvarðsson og Eyþór Jónsson iðkendur frá Taekwondo-
deild Keflavíkur tóku þátt í stórmótum í Túnis sem fram fóru þann 6.–12.
apríl sl. Ágúst Kristinn keppti á úrtökumóti fyrir Ólympíuleika æskunnar,
ásamt því að taka þátt í heimsmeistarmóti unglinga og Eyþór keppti einn-
ig á því móti.
Úrtökumót fyrir Ólympíuleika
æskunnar er fyrir íþróttamenn sem
eru sextán og sautján ára á þessu
ári og fara leikarnir fram á fjögurra
ára fresti, líkt og Ólympíuleikarnir.
Á heimsmeistaramóti unglinga eru
keppendur 15–17 ára og er þetta
með stærstu mótum í Taekwondo í
heiminum og alls keppa 950 lands-
liðskeppendur frá 120 löndum þar.
Ágúst Kristinn keppti í -48 kg flokki
en þar tóku 42 keppendur þátt. Ágúst
sigraði fyrsta andstæðing sinn frá
Argentínu örugglega 27-8. Næsti bar-
dagi Ágústs var við sterkan keppanda
frá Suður-Kóreu og sá bardagi endaði
með tapi 30-13, Ágúst endaði í þret-
tánda sæti sem dugði ekki til þátt-
töku í Ólympíumótinu en tíu efstu í
hverjum flokki komast inn á leikana.
Tveimur dögum eftir úrtökumótið
á Ólympíuleikana tók Ágúst þátt í
heimsmeistaramótinu en fyrsti mót-
herji hans þar var frá Mongolíu og var
bardaginn jafn frá byrjun og kepp-
endur skiptust á að ná forystunni.
Ágúst tapaði þeim bardaga gegn
áköfum andstæðingi 20-29.
Eyþór keppti í -68 kg flokki og var
fyrsti andstæðingur hans frá Ind-
landi en Eyþór vann þann bardaga
örugglega 35-15. Næst mætti hann
keppanda frá Papúa Nýju Gíneu og
tapaði Eyþór þeim bardaga naumlega
17-14 eftir góða baráttu.
„Allir keppendur koma heim reynsl-
unni ríkari og geta enn betur undir-
búið sig fyrir komandi keppnir,“ segir
Helgi Rafn Guðmundsson, þjálfari
þeirra.
LIÐ ÍSLANDS:
Eyþór Jónsson - 68
Leo Speight -73
Ágúst Kristinn Eðvarðsson -48
Chago Rodriguez Segur - þjálfari
Helgi Rafn Guðmundsson - þjálfari
Sveinn Speight - foreldri og ljós-
myndari
Myndir: Sveinn Speight
Ægir Már og Daníel
Íslandsmeistarar í júdó
Ægir Már Baldvinsson og Daníel
Árnason frá júdódeild UMFN urðu
Íslandsmeistarar í júdó á Íslands-
meistaramóti yngri í júdó sem fram
fór sl. helgi.
Ægir keppti í -66 kg flokki 18-20 ára og
keppti hann sjö viðureignir á mótinu,
en hann vann allar sínar viðureignir.
Daníel Dagur gerði slíkt hið sama og
vann allar sínar viðureignir í -55 kg
flokki 15-17 ára. Daníel keppti einnig
í aldurs- og þyngdarflokk upp fyrir
sig -55kg 18-20 ára og varð annar í
þeim flokki eftir spennandi úrslita-
viðureign, Daníel keppti samtals tíu
viðureignir á mótinu.
Sveit Njarðvíkur 15–17ára, var skipuð
þeim Daníel Degi Árnasyni, Gunnari
Erni Guðmundssyni, Borgari Unn-
birni Ólafssyni, Ingólfi Rögnvalds-
syni og Gabríel Orra Karlssyni, varð
í þriðja sæti í liðakeppninni.
Gunnar Örn handleggsbrotnaði í
fyrstu viðureign og var á brattan
að sækja eftir það fyrir lið Njarð-
víkinga. Aldrei í sögu júdódeildar-
innar hafa svo mörg lið tekið þátt í
sveitakeppninni og var þetta var einn
besti árangur UMFN í sveitakeppni
frá stofnun deildarinnar.
Frá vinstri Daníel, Ingólfur, Gabríel,
Borgar, Gunnar vantar á myndina.
Frábær árangur
á júdómóti
Íslandsmót yngri iðkenda í júdó fór
fram þann þann 14. apríl sl. Júdó-
deildir Grindavíkur og Þrótti Vogum
sendu iðkendur til keppni og stóðu
þeir sig með stakri prýði en nokkrir
iðkendur komust á pall þar sem þeir
nældu sér í gull, silfur eða brons.
„Ég er gríðarlega stoltur af hópnum
mínum og ég hef fylst með þessum
krökkum vaxa úr grasi en ég hef
þjálfað þau í sex ár og sumir iðkendur
hafa verið hjá mér öll sex árin“, segir
þjálfari hópsins, Arnar Már Jónsson.
Verðlaunahafar mótsins:
UMFG:
Dr. U13 -55 kg:
2. sæti: Snorri Helgason
3. sæti: Arnar Öfjörð
Dr. U13 -66 kg:
1. sæti: Björn Guðmundsson
Dr. U13 -46 kg:
7. sæti Kent Mazowiecki
Dr. U15 -46 kg:
1. sæti Hjörtur Klemensson
St. U18 -70 kg:
4. sæti Olivia Mazowecka
Dr. U18 -50 kg:
2. sæti: Adam Latowski
4. sæti: Róbert Latowski
Dr. U21 -90kg:
2. sæti Aron Arnarsson
UMFÞ:
U13 -46 kg:
sæti: Patrekur Unnarsson
5. sæti: Samúel Pétursson
Dr. U13 -66
3. sæti: Jökull Harðarson