Morgunblaðið - 08.09.2017, Side 1
F Ö S T U D A G U R 8. S E P T E M B E R 2 0 1 7
Stofnað 1913 211. tölublað 105. árgangur
RAKKINN BLOSSI
SÓPAR AÐ SÉR
VERÐLAUNUM
FJÖLBREYTT
EFNI UM BÖRN
OG UPPELDI
FER MEÐ
AÐALHLUTVERK
Í THE SQUARE
32 SÍÐNA SÉRBLAÐ LEIKARINN CLAES BANG 30ÁSTRALSKUR SMALI 12-13
lyfja.is
Góð heilsa
gulli betri
Heilsutjútt
6.–17. september
30%
AFSLÁT
TUR
Allt að
af heils
uvörum
Með sama áframhaldi verða ríf-
lega 400 tonn flutt inn af osti í ár,
eða meira magn en nokkru sinni. Á
fyrstu sjö mánuðum ársins var flutt
inn um 90% meira magn en í fyrra.
Erna Bjarnadóttir, aðstoðar-
framkvæmdastjóri Bændasamtaka
Íslands, segir aukningu í toll-
frjálsum kvótum á osti munu þrýsta
á verðlækkanir. Þau áhrif geti farið
að birtast þegar á næsta ári.
Ólafur Stephensen, fram-
kvæmdastjóri Félags atvinnurek-
enda, segir innkomu Costco á
markaðinn hafa ýtt undir innflutn-
ing á osti. Bent hafi verið á að
Costco kunni í einhverjum tilvikum
að selja vörur undir kostnaðar-
verði. baldura@mbl.is »14
Morgunblaðið/G. Rúnar
Samkeppni Framboð af innfluttum osti
hefur aukist mikið á síðustu árum.
Innflutningur á osti
nær tvöfalt meiri en
á sama tíma í fyrra
Stjórnarandstaðan telur að inn-
byrðis deilur á milli ríkisstjórnar-
flokkanna muni setja svip sinn á
störf Alþingis í vetur.
Þetta kemur fram í samtölum
Morgunblaðsins við Katrínu Jak-
obsdóttur, formann VG, og Loga
Má Einarsson, formann Samfylk-
ingarinnar, í dag.
Sigurður Ingi Jóhannsson, for-
maður Framsóknarflokksins, segir
að Framsóknarflokkurinn muni
„verða grimmilega á tánum“ þegar
byggðamál, atvinnumál, fiskeldi og
samgöngumál verði til umfjöllunar
á þinginu í vetur. »18
Búast við deilum á
stjórnarheimilinu
og tölvustýring á hita- og rakastigi,
kæligeymsla og frystigeymsla, en
safngripir þurfa mismunandi með-
höndlun eftir aldri og gerð. Nýja
húsnæðið markar ekki minni þátta-
skil í aðbúnaði og rekstri Þjóð-
minjasafnsins en sýningarhúsið við
Suðurgötu þegar það var opnað eft-
ir viðamiklar endurbætur haustið
2004. Í nýja húsinu er sérstakt rými
fyrir gripi og sýni sem fornleifa-
fræðingar afhenda safninu. Þá er í
húsinu fullkomið forvörsluverk-
stæði, aðstaða fyrir námsfólk og
fræðimenn og til fundahalda. »10
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
Þjóðminjasafnið er um þessar
mundir að taka í notkun rúmlega
4.300 fermetra húsnæði á Tjarnar-
völlum 11 í Hafnarfirði. Þar verður
varðveislu- og rannsóknasetur
safnsins til frambúðar. Í húsinu
verður allur þorri þeirra muna
safnsins sem ekki eru á sýningum
eða í samningsbundinni vörslu hjá
öðrum söfnum. Myndasafnið verður
þó áfram í Vesturvör í Kópavogi.
Fullkominn búnaður er á staðnum
Hátt til lofts og vítt til veggja
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Þjóðminjar Forverðirnir Sigríður Þorgeirsdóttir og Sandra Sif Einars-
dóttir í nýjum geymslum safnsins, en Freyja Hlíðkvist er á lyftaranum.
Nýtt varðveislu- og rannsóknasetur
Þjóðminjasafnsins tekið í notkun
Fellibylurinn Irma hefur valdið gríðarlegri eyði-
leggingu í eyríkjum á Karíbahafi. Þessi mynd er
tekin á eyjunni Saint Martin, þar sem um 95% húsa
eyðilögðust. Fellibylurinn stefnir á Flórídaskaga
Bandaríkjanna. Íbúum sums staðar næst strönd-
um þar var gert að yfirgefa heimili sín. »17
AFP
Irma skilur eftir sig slóð eyðileggingar
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Á þessu ári stefnir í að komur á
bráðamóttöku Heilbrigðisstofnunar
Suðurlands á Selfossi (HSU) verði
13.000 talsins, að sögn Herdísar
Gunnarsdóttur, forstjóra HSU. Árið
2014 voru komurnar 8.500.
Þessi mikla aukning skýrist eink-
um af fjölgun ferðamanna og þeirra
sem dvelja í sumarhúsabyggðum á
svæðinu. Fjárveitingar ríkisins duga
ekki lengur til reksturs bráðamót-
tökunnar og segir Herdís að um 105
milljónir vanti inn í reksturinn til að
hægt sé að gera mjög vel í þjónustu
við bráðveika og slasaða.
„Á daginn, kvöldin, næturnar og
um helgar höfum við eingöngu fjár-
magn til að manna með einum lækni
og einum hjúkrunarfræðingi,“ segir
Herdís, en bætt hefur verið í mönn-
un bráðamóttökunnar umfram fjár-
veitingar. Þrátt fyrir það er álagið á
starfsfólk enn mjög mikið.
„Ef við ráðum ekki við umfangið
þarf að vísa sjúklingum áfram á
Landspítala, með tilheyrandi kostn-
aði og álagi þar, sem við gætum ann-
ars mjög vel sinnt hér.“
Fjárveitingar duga ekki
Heimsóknum á bráðamóttöku á Selfossi hefur fjölgað um 34% á tveimur árum
Vöxturinn langt umfram önnur heilbrigðisumdæmi Áskoranir í rekstri HSU
HSU
» Að jafnaði koma 32 sjúkling-
ar á dag á bráðamóttöku HSU.
» Hafa fjármagn fyrir einungis
einn lækni og einn hjúkr-
unarfræðing.
MMikið álag á bráðamóttöku … »6