Morgunblaðið - 08.09.2017, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2017
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Vilja ekki annan eins vetur og í fyrra
Mikil mannekla á leikskólum Reykjavíkurborgar 108 stöðugildi vantaði í byrjun september
Leikskólastjórar vilja stytta þann tíma sem opið er, fækka vinnustundum starfsfólksins og minnka álag
Arnar Þór Ingólfsson
athi@mbl.is
Leikskólastjórar á leikskólum
Reykjavíkurborgar sendu í fyrradag
bréf til formanns skóla- og frístunda-
ráðs þar sem þeir leggja fram til-
lögur um hvernig megi bregðast við
þeirri manneklu sem er á leikskólum
borgarinnar.
Guðrún Jóna Thorarensen, leik-
skólastjóri á leikskólanum Sólborg,
segir í samtali við Morgunblaðið að
ekki sé hægt að fara í gegnum vet-
urinn með sama hætti og þann síð-
asta, en síðasta vetur vantaði að jafn-
aði í 50 stöðugildi á leikskólum
borgarinnar. Það segir Guðrún að
hafi þýtt gríðarlegt álag á starfs-
menn leikskólanna og að ítrekað hafi
þurft að senda börn heim á miðjum
degi vegna manneklu.
Hún segir að í ágúst hafi einungis
24 einstaklingar ráðið sig til starfa á
leikskólum borgarinnar, sem þýði að
enn séu 108 stöðugildi ómönnuð. Það
gefi ekki tilefni til bjartsýni. „Við vit-
um að það er erfiðara að ráða í sept-
ember heldur en í ágúst.“
Fjórþættar tillögur
Leikskólastjórar leggja til að sá
tími sem opið er verði styttur, leik-
skólar verði opnir frá 7.45-16.30 í
stað 7.30-17.00. Nokkur fjöldi leik-
skóla borgarinnar hefur þegar tekið
þennan tíma upp. „Þetta auðveldar
okkur að manna vaktirnar. Það hefur
gengið mjög brösuglega að fá fólk á
fimm-vaktirnar,“ segir Guðrún.
Þá vilja leikskólastjórar einnig
stytta vinnutíma starfsfólks niður í
35 stundir, án þess þó að laun lækki,
börnum á deildum verði fækkað án
þess að dregið verði úr starfsmanna-
haldi og að fjármagn verði tryggt til
þess að bæta laun starfsmanna.
Þessar þrjár tillögur miða að því að
gera starfið meira aðlaðandi og
minnka álagið á starfsmenn.
Leita að lausnum
Skúli Helgason, borgarfulltrúi
Samfylkingar og formaður skóla- og
frístundaráðs, segir borgaryfirvöld
ekki ánægð með að skerða þurfi
þjónustuna með styttri tíma sem opið
er, en að hann hafi þó skilning á því.
„Það er auðvitað skárra en að þurfa
að senda börn alfarið heim,“ segir
Skúli. Hann segir að bréf leikskóla-
stjóra og önnur tengd mál verði tekin
fyrir á fundi í dag. „Við leitum allra
leiða til að leysa vandann,“ segir
Skúli.
Marta Guðjónsdóttir, borgar-
fulltrúi Sjálfstæðisflokks, segir ekki
ganga til lengdar að velta álaginu yf-
ir á það starfsfólk sem sé til staðar.
Þá þurfi að skoða hvort langvar-
andi viðhaldsleysi skólanna sé rót
þess að mannekla sé hlutfallslega
meiri í Reykjavík en nágrannasveit-
arfélögunum. „Við erum að tala um
að það þurfi að gera starfsstaðina
betri og eftirsóknarverðari.“
Morgunblaðið/Ómar
Börn Leikskólarnir eru verulega
undirmannaðir fyrir veturinn.
Karlmaður á fimmtugsaldri var
fluttur í fangageymslur lögreglunn-
ar á höfuðborgarsvæðinu eftir að
eldur kom upp í bílskúr í Skipholti í
Reykjavík. Samkvæmt upplýsingum
frá lögreglu var maðurinn í mjög
annarlegu ástandi, en ekki fengust í
gærkvöldi upplýsingar um hvort
hann hefði haft fasta búsetu í skúrn-
um sem var innréttaður sem íbúð.
Tilkynnt var um eldinn laust eftir
klukkan 10 í gærmorgun og var þá
óttast að sprenging hefði orðið í
skúrnum. Af þeim sökum var
slökkvilið með mikinn viðbúnað og
voru nokkrir dælu- og sjúkrabílar
sendir á vettvang auk lögreglu. Síðar
kom í ljós að engin sprenging hefði
orðið í skúrnum þótt eldur hafi verið
þar talsverður.
Maðurinn sem var handtekinn var
fluttur til skoðunar á sjúkrahús það-
an sem hann var svo sendur í fanga-
geymslur lögreglu. Hann er ekki tal-
inn alvarlega slasaður eftir brunann.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
fer nú með rannsókn málsins.
vilhjalmur@mbl.is
Handtekinn eftir bruna
Eldur kom upp í bílskúr í Skipholti í Reykjavík
Morgunblaðið/Eggert
Bruni Lögregla og slökkvilið voru með talsverðan viðbúnað á staðnum.
Jarðskjálftamæl-
ar Íslenskra
orkurannsókna á
Norðurlandi
greindu 6 stiga
skjálfta um
klukkan 03.40 að-
faranótt sunnu-
dags og átti hann
uppruna sinn í
Norður-Kóreu,
en það er í sam-
ræmi við fréttir af kjarnorkutilraun
stjórnvalda í Pjongjang.
Pálmi Erlendsson, jarðfræðingur
hjá stofnuninni, segir að allir jarð-
skjálftar sem eru um og yfir fimm
stig séu mælanlegir á skjálftamæl-
um um allan heim.
„Jarðskjálftabylgjur skiptast í tvo
flokka. Annars vegar rúmbylgjur,
þ.e. P-bylgjur og S-bylgjur, og hins
vegar yfirborðsbylgjur, sem halda
sig að mestu á yfirborðinu og eru af-
leiðing hinna fyrrnefndu. Mælar
okkar á Norðurlandi greindu fyrst
P-bylgjur frá sprengingunni, en þær
ferðast meðal annars í gegnum
möttulinn,“ segir Pálmi.
Það tekur bylgjur frá sprenging-
unni um það bil 10 mínútur að
ferðast alla leið til Íslands og segir
Pálmi mælingar stofnunarinnar í
samræmi við það. vilhjalmur@mbl.is
Tilraunin
mældist
hér á landi
Pálmi
Erlendsson
Fannst fyrir norðan
Þorsteinn Víglundsson, félags- og jafnréttismálaráðherra, heimsótti í gær
Hlaðgerðarkot en þar hefur verið ráðist í nauðsynlegar endurbætur og ný-
byggingu. Samhjálp keypti Hlaðgerðarkot árið 1974 af Mæðrastyrksnefnd
Reykjavíkur og hefur rekið þar meðferðarheimili allar götur síðan fyrir
áfengis- og vímuefnaneytendur.
Markmið Samhjálpar er að veita bjargir til þeirra einstaklinga sem hall-
oka hafa farið í lífinu, vegna sjúkdóma, fátæktar eða annarra samfélags-
legra vandamála. Nýbygging og endurbætur á gömlu húsnæði eru því kær-
komnar en landssöfnun fór fram í lok árs 2015 til að mæta kostnaði við
framkvæmdirnar. vilhjalmur@mbl.is
Ráðherra skoðar nýbyggingu Samhjálpar
Morgunblaðið/Eggert