Morgunblaðið - 08.09.2017, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2017
Sogavegi við Réttarholtsveg
Opið kl. 9-18 virka daga | Sími 568 0990 | www.gardsapotek.is
Lágt lyfjaverð - góð þjónusta
Einkarekið apótek í 60 ár
stæðum til að sigla yfir til St. John.
Glæsilegasta snekkja sem hingað
hefur komið er án efa Octopus, í eigu
milljarðamæringsins Paul Allen,
annars stofnanda Microsoft.
Til samanburðar við Wabi Sabi er
Octopus 126 metra löng. Snekkjan
kom hingað síðast sumarið 2015.
Hún kom ekki að bryggju heldur lá
við akkeri úti af Sæbraut.
sisi@mbl.is
og Bretlandi í sumar. Nú er áhöfnin
að sigla henni yfir til St. John á Ný-
fundnalandi og svo áfram til Flórída.
Wabi Sabi kom til hafnar í Reykja-
vík 24. ágúst sl. til að taka olíu og
vistir. Að sögn Gísla sögðu eigend-
urnir við áhöfnina að hún skyldi
dvelja nokkra daga á Íslandi til að
skoða sig um. Í áhöfn snekkjunnar
eru 14 manns.
Nú bíður hún eftir hagstæðum að-
Ein glæsilegasta snekkja sem hefur
komið hingað til lands liggur nú við
Bótarbryggju í Gömlu höfninni í
Reykjavík. Bótarbryggja liggur úti
af Grandagarði, milli Slysavarnar-
hússins og húss Sjávarklasans.
Snekkjan heitir Wabi Sabi og er
tæplega 500 brúttótonn. Ekki er vit-
að hver er eigandi snekkjunnar en
þegar hún kom til Írlands í sumar
kom í fréttum þar að söngvarinn
Elton John hefði verið um borð og
hann væri eigandinn. Þær fréttir
voru ekki staðfestar.
Samkvæmt vefsíðu á netinu er
Wabi Sabi auglýst til sölu. Uppsett
verð er tæplega 26 milljón dollarar,
jafnvirði um 2,7 milljarða íslenskra
króna. Þar kemur fram að snekkjan
hafi verið byggð í Bandaríkjunum
árið 2011. Hún er 50 metrar að lengd
og mesti ganghraði er 24 hnútar.
Alls geta 18 farþegar dvalið um borð
í einu, auk áhafnar. Innréttingar eru
hinar glæsilegustu, af myndum að
dæma.
Fyrirtækið Atlantic Shipping hef-
ur verið umboðsaðili snekkjunnar
hér á landi. Að sögn Gísla Þrastar-
sonar hjá Atlantic Shipping hefur
snekkjan verið í Noregi, Danmörku
Morgunblaðið/Eggert
Í Reykjavíkurhöfn Wabi Sabi hefur legið við Bótarbryggju í Gömlu höfninni að undanförnu. Næst er það St. John.
Snekkja Eltons Johns
við Bótarbryggju?
Glæsisnekkja í Reykjavíkurhöfn Metin á 2,7 milljarða
Glæsileiki Það væsir ekki um farþegana um borð í Wabi Sabi af myndum að
dæma. Allar innréttingar í snekkjunni dýru eru greinilega fyrsta flokks.
Álag á starfsfólki í heilbrigðisþjón-
ustu – málþing um heilsu og for-
varnir var haldið á Hótel Natura í
gær að frumkvæði dr. Ólafs Þórs
Ævarssonar geðlæknis sem starfar
hjá fyrirtækinu Forvörnum ehf.
„Ástæðan fyrir því að við völdum
að sníða ráðstefnuna fyrir heil-
brigðisstarfsmenn að þessu sinni
var sú að við reynum að velja hópa
sem eru undir álagi, eðlis starfs
þeirra vegna. Heilbrigðisstarfs-
menn eru hópur sem er alltaf undir
miklu álagi. Aðrir hópar undir
álagi eru t.d. kennarar og lög-
reglumenn,“ segir Ólafur og vísar í
reynslu af störfum sínum.
Erlendir fyrirlesarar
Tveir sænskir sérfræðingar, þær
dr. Agneta Lindegård-Andersson
og Susanne Elbin, sálfræðingur frá
Institutet för stressmedicin í
Gautaborg, voru á meðal fyrirles-
ara.
„Við erum mjög ánægð með þátt-
tökuna í dag, en hérna eru mættir
yfirmenn frá heilsugæslunni,
mannauðsstjórar frá öldrunar- og
hjúkrunardeildum, hjúkrunardeild-
arstjórar og læknar úr heilbrigð-
iskerfinu. Við veitum alltaf hvatn-
ingarverðlaun og að þessu sinni
afhentum við Kristínu Jóhönnu
Þorbergsdóttur deildarstjóra, Þur-
íði Jónsdóttur aðstoðardeildar-
stjóra og Valgerði Sigurðardóttur,
yfirlækni líknardeildar Landspít-
alans í Kópavogi, viðurkenning-
arskjalið „Mannauður 2017“ en
þeim var jafnframt boðið frítt á
ráðstefnuna, segir Ólafur. Verð-
launin hlutu þær þar sem mann-
auðsstefnan þeirra er mannleg og
ódýr en áhrifamikil í senn.
„Okkur langar að vera með fleiri
ráðstefnur í framtíðinni,“ segir
Ólafur og bætir við að málþingin
séu hluti af forvarnarstarfi og geð-
hjálp úti í samfélaginu.
ernayr@mbl.is
Fjalla um álag við
heilbrigðisstörf
Málþing um heilsu og forvarnir
Ljósmynd/Ragnheiður Arngrímsdóttir
Hópurinn Frá vinstri eru Ólafur Þ.
Ævarsson, Ragnheiður G. Guðna-
dóttir, Þuríður Jónsdóttir og
Kristín J. Þorbergsdóttir.
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Stigvaxandi álag hefur verið á Heil-
brigðisstofnun Suðurlands (HSU) síð-
ustu ár. Kemur það aðallega til vegna
aukins fjölda sjúklinga sem leita á
bráðamóttökuna á Selfossi, en komum
þangað fjölgaði um 34% frá 2014 til
2016. Á sama tíma hefur komum
ósjúkratryggðra einstaklinga, sem að
stórum hluta eru erlendir ferðamenn,
fjölgað um 42%.
Bráðamóttakan á Selfossi var opnuð
árið 2011 og er eina bráðamóttakan á
Suðurlandi, frá Austfjörðum til
Reykjavíkur. Fjárveitingar til stofnun-
arinnar eru reiknaðar út frá íbúafjölda
á svæðinu, en á Suðurlandi búa 27 þús-
und manns. Aukna aðsókn á bráða-
móttökuna má þó að mestu leyti rekja
til aukins fjölda ferðamanna og þeirra
sem dvelja í sumarhúsabyggðunum á
svæðinu. Um 20 þúsund manns dvelja
um lengri eða skemmri tíma í sum-
arhúsum í nágrenni Selfoss. Þá hefur
íbúum í eldri aldursflokkum fjölgað,
með tilheyrandi langvinnum veikind-
um.
Herdís Gunnarsdóttir, forstjóri
HSU, segir að starfsemi og þjónusta
bráðamóttökunnar hafi fest sig í sessi
síðastliðin sex ár og fólk á svæðinu
sæki því orðið þjónustu þangað fremur
en að aka til Reykjavíkur eins og áður
tíðkaðist. „Árið 2014 voru komur á
bráðamóttökuna á Selfossi um 8.500 en
fóru upp í 11.400 árið 2016. Á þessu ári
stefnir í að komufjöldi verði um
13.000,“ segir Herdís, en að jafnaði
koma 32 sjúklingar á sólarhring á
bráðamóttökuna en um 60 á mestu
álagstímunum.
Sjúklingar hverfa ekki
Vöxturinn á HSU er langt umfram
það sem gerist í öðrum heilbrigðisum-
dæmum, en á sama tíma og komum
þangað hefur fjölgað um 34% hefur
fjölgunin á Norðurlandi verið 7%.
Rekstrarfé á föstum fjárlögum dugar
ekki fyrir mönnunarþörfinni sem
fylgir viðlíka fjölgun. Nú er svo komið
að HSU er komið yfir þær fjárveit-
ingar sem það hefur.
„Á daginn, kvöldin, nóttinni og um
helgar höfum við eingöngu fjármagn
til að manna með einum lækni og ein-
um hjúkrunarfræðingi en nú dugar
það ekki lengur til. Um síðustu áramót
var bætt við mönnun á daginn og
kvöldin og enn var bætt við nú fyrir
sumarið. Þrátt fyrir það hefur verið
mikið álag á starfsfólki okkar . Nú er
svo komið að fjárveitingar duga ekki til
reksturs bráðamóttöku,“ segir Herdís
og bætir við að um 105 milljónir vanti
inn í reksturinn fyrir bráðamóttökuna
til að geta gert mjög vel í þjónustu við
bráðveika og slasaða. „Í heildarsam-
hengi alls kostnaðar í heilbrigðisþjón-
ustu þarf ekki mikið viðbótarfjármagn.
Við vísum engum sjúklingum frá en
það er ljóst að þessi erindi sjúklinga
hverfa ekki. Ef við ráðum ekki við um-
fangið þarf að vísa sjúklingum áfram á
Landspítala með tilheyrandi kostnaði
og álagi þar, sem við gætum annars
mjög vel sinnt hér.“
Herdís segir að fagfólk bíði eftir að
komast til starfa á HSU og því óttist
hún ekki mönnunarvanda ef til auka-
fjármagns komi.
Heilbrigðisráðherra hefur verið
gert viðvart um áskoranirnar í rekstri
HSU og segir Herdís málið komið í
farveg. „Ég bind vonir við að þetta
leysist hratt og vel. Hér var mikill
skuldabaggi og með samhentu átaki
okkar og stjórnvalda tókst að koma
stofnuninni aftur á flot og því væri
synd að lenda aftur í alvarlegum
rekstrarerfiðleikum.“
Mikið álag á bráðamóttöku HSU
Heimsóknum hefur fjölgað um 34% á tveimur árum Erlendum ferðamönnum sem sækja á bráða-
móttökuna á Selfossi hefur fjölgað um 42% Stofnunin komin fram úr fjárlögum vegna þessa
HSU
» Komum á bráðamóttökuna
á Selfossi hefur fjölgað um
34% á tveggja ára tímabili.
» Má rekja til fjölgunar ferða-
manna og fjölda sumar-
bústaðafólks á svæðinu.
» Rúmar 100 milljónir króna
vantar svo vel sé.
Selfoss Margir leita til Heilbrigð-
isstofnunar Suðurlands.