Morgunblaðið - 08.09.2017, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 08.09.2017, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2017 ina, tugi þúsunda muna frá 150 ára tímabili, aukist og jafnvel komi í ljós gripir sem ekki var vitað um og hafa ýmist ekki verið skráðir eða ekki skráðir á fullnægjandi hátt. Þá skap- ast ný þekking um ástand muna og varðveislukröfur við tilfærslurnar. Áfram í Vesturvör Gripir í vörslu Þjóðminjasafnsins eru nú um 120 þúsund talsins af marg- víslegu tagi, jarðfundnir munir, list- gripir úr kirkjum s.s altaristöflur, lík- neski, altarisbúnaður, höklar. Þar er búnaður daglegs lífs, heimilisáhöld, rúmábreiður, margs konar fatnaður, húsbúnaður og húsgögn. Einnig út- skornir gripir, rúmfjalir, kistlar, drykkjarhorn og silfurgripir. Þar eru einnig skrifleg gögn um þjóðhætti sem safnað hefur verið skipulega í meira en hálfa öld. Fyrir um hálfum öðrum áratug eignaðist Þjóðminjasafnið stórt geymsluhús við Vesturvör í Kópavogi þar sem megnið af safngripunum hef- ur verið. Myndasafn Þjóðminjasafns- ins verður þar áfram til húsa, en stöð- ugt fjölgar þeim myndasöfnum sem þar eru varðveitt. Þá mun húsasafnið geyma þar timbur, ýmsa gripi og við- haldsvörur. Aftur á móti lætur safnið frá sér geymslurými sem það hafði á Seltjarnarnesi og við Dugguvog í Reykjavík. Ýmsir safngripir sem áður voru í geymslum Þjóðminjasafnsins, m.a. fornbílar og tækniminjar, hafa verið fengnir söfnum utan Reykjavíkur til varðveislu og sýningar, og er slík dreifing talin beggja hagur. En stöð- ugt streyma að aðrir gripir til varð- veislu. Fyrirferðarmestir eru þeir sem koma upp úr jörðinni við forn- leifauppgreftri, enda er lagaskylda að skila safninu öllu sem fornleifarann- sóknir leiða í ljós. Þetta eru fjöl- breyttir hlutir, mannabein og dýra, jurtaleifar og jarðvegssýni, og mann- gerðir gripir af margvíslegu tagi. Í sérstöku geymslurými fyrir jarð- fundna muni á Tjarnarvöllum verða tugir þúsunda slíkra gripa og sýna og fæst af því mun nokkru sinni rata á sýningar, en eru mikilvæg gögn við vísindarannsóknir og til þekking- arsköpunar. Á Tjarnarvöllum mun enn fremur öll sýningagerð Þjóð- minjasafnsins fara fram; í rúmgóðum sal þar verða sýningarhugmyndir mótaðar og gengið frá sýningar- hlutum sem síðan verða fluttir full- búnir á sýningarstaði, hvort sem er í Þjóðminjasafnshúsinu við Suðurgötu eða annars staðar. Almenningur getur kynnt sér safn- gripi Þjóðminjasafnsins, jafnt þá sem eru á sýningum og í geymslum, á net- inu. Vefurinn sarpur.is geymir upp- lýsingar, texta og ljósmyndir um safn- kostinn þar og í öðrum menningar- sögulegum söfnum. Þáttaskil í varðveislu þjóðminja  Nýtt varðveislu- og rannsóknasetur Þjóðminjasafnsins  Búnaður líkist helst hátæknisjúkrahúsi Þjóðminjar Rúmt er um safngripi í hinu nýja geymslurými Þjóðminjasafnsins, en rýmið er nýtt til hins ýtrasta. Stundum þarf lyftara ef skoða á einstaka gripi. Tilhögunin á að tryggja varðveislu gripanna til langrar framtíðar. Stjórnendur Lilja Árnadóttir, sviðsstjóri munasviðs (t.v.), stýrir varðveislu- málum á Tjarnarvöllum í nánu samráði við Margréti þjóðminjavörð. Munir Dyraumgjörðin gamla úr Al- þingishúsinu er meðal safngripa. Forvarsla Fullkomið forvörsluverkstæði verður á staðnum. Þar geta sjálfstæðir forverðir einnig unnið. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Fornleifar Sérstakt rými er fyrir jarðfundna forngripi, sem fjölgað hefur gífurlega á undanförnum árum. SVIÐSLJÓS Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is „Ég segi stundum í gamni að þetta sé hátæknisjúkrahús fyrir þjóðminj- ar,“ segir Margrét Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður um nýtt varðveislu- og rannsóknarsetur Þjóðminjasafns Íslands í rúmgóðri byggingu, tæpir 4.300 fermetrar að stærð, á þremur hæðum á Tjarnarvöllum í Hafnarfirði. Óhætt mun að segja að þetta húsnæði marki ekki minni þáttaskil í aðbúnaði og starfi safnsins en sýningarhúsið við Suðurgötu þegar það var opnað eftir viðamiklar endurbætur haustið 2004. Samlíkingin við hátæknisjúkrahús blasir við þegar gengið er um húsið í fylgd Margrétar og Lilju Árnadóttur, sviðsstjóra munasviðs; hér er háþróað- ur tæknibúnaður sem gætir þess að safngripir njóti þeirra varðveisluskil- yrða sem „heilsa“ þeirra, þ.e. ástand og aldur, krefst. Það getur verið mjög mismunandi hve viðkvæmir einstakir safngripir eru fyrir hita og raka; sums staðar þarf frystirými, annars staðar kæligeymslu, en alls staðar þarf að gæta þess að loftið sem leikur um grip- ina henti. Þá eru hér ýmis efni og rann- sóknartæki sem við þekkjum af sjúkrahúsum, m.a. röntgenmyndavél, sérbúnir skápar fyrir sýni, margs kon- ar tæki önnur og síðan skjalageymslur. Framtíðarhús Í nýja húsinu á Tjarnarvöllum starfa nú um 10 starfsmenn, en þeim á eftir að fjölga og síðan verða hér að stað- aldri sjálfstætt starfandi fræðimenn og forverðir, háskólanemendur og aðrir þeir sem hentar nálægð við safngrip- ina við rannsóknir, útgáfu og sýninga- gerð. Margrét segir að mörg ár séu síðan Þjóðminjasafnið fór að leggja áherslu á framtíðarhús fyrir safngripina. Skrið- ur komst á málið í tengslum við 150 ára afmæli safnsins og forsætisráðuneytið greiddi mjög götu þess meðan það hafði með safnið að gera. Að loknu út- boði þar sem mjög stífar kröfur voru gerðar um allan búnað og öryggi var í janúar í fyrra undirritaður samningur um langtímaleigu hússins við fast- eignafélagið Regin. Endurbætur á húsnæðinu hafa staðið yfir síðan og jafnframt flutningar sem kalla á um- fangsmikið og flókið skipulag. Þessa dagana eru iðnaðarmenn að leggja síð- ustu hönd á rými fyrir textíla, en það verður á jarðhæð hússins. Arkitekta- stofan ArkÞing sá um alla hönnun inn- andyra í samráði við starfsfólk Þjóð- minjasafnsins og Framkvæmdasýslu ríkisins. Lilja Árnadóttur segir að þótt flutn- ingarnir haldi starfsfólki uppteknu lengi hafi umrótið líka gildi að því leyti að yfirsýn starfsfólksins yfir safneign- Skútuvogi 6 - Sími 568 6755 plankaparket Verðdæmi: 190 mm Eik Rustik burstuð mattlökkuð 6.990.- m2

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.