Morgunblaðið - 08.09.2017, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 08.09.2017, Qupperneq 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2017 Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Við erum í skýjunum, endahefur enginn hundur í eiguÍslendings áður unniðsvona stórt. Blossinn okk- ar sló í gegn úti í Bretlandi á mjög stórri sýningu í Birmingham um síð- ustu helgi. Hann landaði titlinum „Best in Show“, sem stendur fyrir besti hundur sýningarinnar. Þetta er risastór sigur því það tóku 8.600 hundar þátt í sýningunni,“ segir Lára Birgisdóttir, eigandi fyrr- nefnds Blossa, en hún og maður hennar Björn Ólafsson rækta Heimsendahunda. Lára segir að leið- in að sigurvegarasætinu yfir allt mótið sé löng, fyrst þurfi hundurinn að vinna ýmsa flokka. „Hvert og eitt hundakyn keppir fyrst í sínum hring, eftir flokkum og aldri, og Blossi vann í sínum flokki, hunda af Australian shepherd-kyni, en 66 hundar af því kyni voru skráð- ir. Hann sigraði líka í flokki fjár- hunda, flokki sem kallaður er Pastor- al Group, og þar sigraði hann fjörutíu aðra hunda. Eftir þessa grisjun stóðu eftir sex hundar, Terrier-hundur, fjár- hundur, vinnuhundur, smáhundur, veiðihundur og þefhundur, og Blossi stóð að lokum uppi sem sigurvegari þeirra. Hann er sannarlega orðinn kóngurinn eftir þessa fræknu sigur- för og hann er strax kominn á for- síður í hundablöðunum úti í Eng- landi.“ Útlit, bygging og hreyfing Þegar Lára er spurð að því í hverju sé keppt á þessum stóru sýn- ingum, segir hún það bæði snúa að byggingu hundsins og hreyfingu. „Það er ákveðinn staðall fyrir hvert og eitt hundakyn, hvernig það á að líta út, og það er til varðveislu, til dæmis svo Collie-hundur líti rétti- lega út eins og Collie-hundur á að líta út. Dómararnir læra þessa stand- arda og ræktendur koma með dýrin sín til dóms. Þá er farið yfir tennur, augu, hlutföll líkamans og fleira, það er gengið úr skugga um að byggingin Hann líður um eins og hann hlaupi á vatni Hún leitaði í fimm ár að hundi af tegundinni Australian shepherd, og fann loks þann sem hún vildi í hvolpi í Bandaríkjunum og gaf honum nafnið Blossi. Aðeins tveggja ára er Blossi orðinn amerískur og enskur meistari, hefur unnið nokkra „junior“-titla, og sæti í tegundahópum. Um síðustu helgi stóð hann uppi sem sigur- vegari af 8.600 hundum á stórri sýningu í Bretlandi, var valinn „best in show“. Krútt Lára með Blossa ungan, aðeins hvolpur en strax með fyrstu verðlaun. Nú er lag fyrir fjölskyldufólk að bregða sér á Kex hostel á sunnudag- inn n.k 10. september þar sem boðið er upp á heimilislega sunnudaga, en í þetta sinn verður þar Rokkhátíð æsk- unnar. Hátíðin sú er haldin í náinni samvinnu við sjálfboðaliðasamtökin Stelpur Rokka! líkt og í fyrra. Stelpur rokka! eru samtök sem starfa af femínískri hugsjón við að efla stelpur, konur, trans- og kynseg- in einstaklinga í gegnum tónlistar- sköpun. Kjarninn í starfinu eru rokk- sumarbúðirnar, þar sem þátttak- endur læra á hljóðfæri, spila saman í hljómsveit, kynnast farsælum tón- listarkonum, fræðast um ýmsar hlið- ar tónlistar og jafnréttisstarfs og koma fram á lokatónleikum fyrir framan fullan sal vina og fjölskyldu. Í tilkynningu kemur fram að dag- skrá Rokkhátíðar æskunnar á sunnu- dag verði samansett af lifandi tón- listaratriðum í bland við gagnvirka fræðslu og vinnusmiðjur þar sem krakkar fá m.a að fikta í hljóðfærum sem búin eru til úr ávöxtum. Dagskráin hefst klukkan 13 og stendur til kl. 15:30, tónleikapró- gramm verður í bókahorninu en smiðjur og kynningar í innri sal. Tón- leikadagskráin inniheldur hljómsveit- irnar Chicken Darkness, Jens og Smekkur úr rokkbúðum sumarsins hjá Stelpur Rokka!, Áttan mætir og hljómsveitin Gróa sem varð til í rokk- búðum Stelpur Rokka! og spilar m.a. á Iceland Airwaves í ár. Stelpur Rokka! verða með kynn- ingu á starfi sínu og munu m.a. kenna krökkum að gera sín eigin barmmerki og ýmislegt fleira. Raftónlistarkonan Kira Kira kennir trixin á bakvið raf- tónlist og allir fá að fikta. DJ Silja Glømmi verður með plötusnúða- smiðju og Skema kynnir tækniundur sem gefur krökkum kleift að búa til tónlist. Aðgangur á Rokkhátíð Æskunnar kostar ekkert og krakkar á öllum aldri eru velkomnir. Morgunblaðið/Ómar Stelpurokk Þessar stelpur í hljómveitinni Náhrútum rokkuðu árið 2013 að loknum rokksumarbúðum, þjálfunarbúðum fyrir stelpur á aldrinum 12 til 16 ára. Lifandi tónlist, vinnusmiðjur og fræðsla Líf og fjör verður fyrir krakka á Rokkhátíð æskunnar n.k sunnudag á Kex hosteli Áttan Ein þeirra hljómsveita sem ætl- ar að mæta á hátíðina er Áttan. Nú er lag að njóta góðrar stundar með krílunum, en fjölskyldustund Menningarhúsanna í Kópavogi verður haldin í Salnum í Kópavogi á morgun, laugardag, kl. 14. Þá verða á dagskrá þátttökutónleikar fyrir alla fjölskyld- una þar sem þekktar söngperlur verða fluttar af Vísnagulls-bandinu. Forsprakki þess er Helga Rut Guð- mundsdóttir. Tónleikarnir miða við börn á aldrinum 1-3 ára, í fylgd með foreldrum, ömmum og öfum, syst- kinum og öðrum fjölskyldu- meðlimum, en gestir taka þátt í leik og söng. Tónleikarnir eru ókeypis og allir hjartanlega velkomnir. Fyrir börn með foreldrum, ömmum, öfum og systkinum Börn og fullorðnir syngja saman Vísnagull Í fyrra var húsfyllir og mikið fjör á þátttökutónleikum í Salnum. Fyrir 10 mánuðum fékk égnýjan titil. Móðir. Ég erennþá að venjast hon-um. Þetta er eitthvað svo formlegt. Mamma er kannski betri titill. Sérstaklega þegar son- urinn er sjálfur farinn að segja mamma. Þá fór ég sko að gráta, og hef varla stoppað síðan. Ég er vafalaust ekki að segja neinum fréttir að lífið breytist allsvaka- lega þegar móðurtitillinn bætist við, en þannig er það bara. „Ertu ekki örugglega að njóta?“ er spurning sem ég hef ítrekað fengið síðustu mánuði og jú, það hef ég svo sannarlega gert. Ég hef notið þess að sofa í stuttum lotum, sjá brjóstin mín í al- gjörlega nýju ljósi (orðið mexí- kanahattur hefur fengið nýja merkingu á heim- ilinu, heldur betur) og fylgst með syninum læra að halda haus, brosa, sitja, skríða, borða og standa upp ásamt mörgu öðru. Þessum hraða þroska fylgir samt að nú er heimilið eins og stríðs- völlur með hinum ýmsu varnar- veggjum. Sonur- inn er farinn að lemja sjónvarpið eins og það sé hans versti óvinur og það er eins og hver matartími snúist um að sulla meira á sig en í matar- tímanum á undan. Ég neita því þó ekki að það er viss slökun að mæta í vinn- una, fá sér kaffibolla og drekka hann allan á með- an hann er heitur. Það er líka viss lúxus að borða hádegismat með full- orðnu fólki og spyrja það annarra spurninga en: „Hvað ertu stór?“ Mesti lúxusinn af öllu er þó án efa að fá að fara ein á kló- settið! Í átta tíma á dag, fimm daga vik- unnar, nýt ég þess nú að sturta niður og þurfa ekki að passa í leiðinni að litlar hendur stingist ofan í klósett- skálina. Er ekki lífið dásamlegt? »Það er líka viss lúxusað borða hádegismat með fullorðnu fólki og spyrja það annarra spurn- inga en: „Hvað ertu stór?“ Heimur Erlu Maríu Erla María Markúsdóttir erla@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.