Morgunblaðið - 08.09.2017, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 08.09.2017, Qupperneq 13
Í sigurvímu Lára (lengst til hægri) með Blossa og verðlaunaskjalið á sýningunni í Bretlandi, ásamt sýnandanum Jan Willem Akerboom og Melanie Raymond, sem hefur fóstrað Blossa á Englandi undanfarið ár. sé eðlileg. Hreyfing hundsins á gangi og á hlaupum þarf líka að vera eðlileg og falleg, sem nýtist honum í vinnu. Tegundin sem Blossi er af þarf að nýtast til að reka nautgripi og geta farið sextíu kílómetra á dag. Dóm- arinn sagði mér að margir hundar hefðu ekki réttu hreyfinguna, væru kannski of þungir í spori, en að hjá Blossa væri þetta algjörlega kórrétt, „hann líður um eins og hann hlaupi á vatni,“ sagði hann. Blossi er líka ein- staklega fríður, fallegur á litinn og höfuðlagið fullkomið. En hann er ekki nema tveggja ára og er enn að þroskast, svo hann á fullt inni.“ Kemst ekki í stóru keppn- irnar ef hann flyst til Íslands Lára segist hafa leitað að hundi af þessari tegund í fimm ár áður en hún fann Blossa. „Ég vildi kynbæta mína hunda sem ég hef verið að rækta af þessari tegund, Australian shepherd, og var því alsæl þegar ég loksins fann hann í Bandaríkjunum sem þriggja mán- aða hvolp hjá ræktendunum Tom og Jodi WanderWeele-Noble. Frank, vinur minn og hundaræktandi sem þar býr, þurfti að mæla með mér og svo fór ég til Tennessee til að sækja Blossa litla. Ég sýndi hann þar á hvolpasýningu og hann komst á vinn- ingspall. Síðan ákvað ég að skilja hann eftir úti, sem var erfitt, en ef ég færi með hann heim til Íslands kæm- ist hann ekki í stóru keppnirnar til útlanda, sem væri synd með svona efnilegan hund. Stacy vinkona mín í Bandaríkjunum tók að sér að geyma hann fyrir mig fram að sex mánaða aldri, en þá tók við honum atvinnu- sýnandi og hann varð amerískur meistari með honum aðeins tíu mán- aða gamall.“ Elskaður og dáður og með- höndlaður sem prins Lára segist hafa þurft að hugsa sig vel um eftir það hvort hún ætti að taka Blossa heim til Íslands eða leyfa honum að keppa meira á erlendri grund. „Melanie, vinkona mín og hundaræktandi í Bretlandi, bað um að fá hann og sýna hann, til að freista þess að ná meistaratitli þar. Ég lét það eftir henni, flaug til Bandaríkj- anna til að sækja hundinn en sýndi hann þar áður en ég fór úr landi og í þeirri keppni lenti hann í fjórða sæti. Síðan flaug ég með hann til Brussel á Evrópusýningu og þar var hann val- inn besti „junior“, rétt ársgamall. Ég var rosalega ánægð með þann árang- ur.“ Lára segir að Blossi hafi dvalið í Bretlandi í heilt ár hjá Melanie, þar sem allir fjölskyldumeðlimir elskuðu Blossa. „Hann var meðhöndlaður eins og hver annar prins á heimilinu, þau báru hann á höndum sér. Melanie grét þegar hann sigraði um helgina. Og nú hefur hún þurft að horfa á eft- ir honum til Hollands, því hann er farinn þangað til þjálfunar hjá besta vini hennar, Jan William, sem er hundaræktandi og sýnandi. Jan er óskaplega hrifinn af Blossa og ég ákvað að fresta því enn að taka hann heim,“ segir Lára og bætir við að Jan hafi verið sá sem sýndi hann til sig- urs um liðna helgi. „Jan hafði aldrei fyrr sýnt hund af þessari tegund, svo þetta er eins og hvort annað ævintýri fyrir hann. Hann er ákveðinn í að fara með Blossa á nokkrar sýningar í Evrópu og ég er auðvitað spennt að fylgjast með framhaldinu, hvernig Blossa mínum á eftir að ganga.“ Fagur Ræktunarnafn Blossa er heilllangt, AKC Ch GB Kraft- brewd’s Blossi at Heimsenda. Hér með Jan sýnanda sínum og T. Nagrecha dómara. Efnilegur Lára sýndi Blossa á hvolpasýningu þar sem hann fékk verðlaun. DAGLEGT LÍF 13 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2017 Boðið verður í bókmenntagöngu um söguslóðir Tímaþjófsins eftir Stein- unni Sigurðardóttur í dag, laugardag, kl. 15. Gangan hefst við Borgarbóka- safnið í Grófinni en lýkur í Þjóðleik- húsinu, þar sem söguhetjan Alda Ívarsen hefur aðsetur í uppfærslu Þjóðleikhússins á Tímaþjófinum. Una Þorleifsdóttir leikstjóri, Melkorka Tekla Ólafsdóttir, höfundur leikgerð- ar, og Nína Dögg Filippusdóttir, sem fer með hlutverk Öldu í sýningunni, taka á móti göngufólki með lestri og spjalli. Hin vel ættaða og sjálfs- örugga Alda Ívarsen, tungumála- kennari við MR, sem ætíð hefur boðið heiminum birginn, reynist varnarlaus þegar ástin grípur hana, óvænt og miskunnarlaust. Tímaþjófurinn er skáldsaga um leynilegt ástar- ævintýri, höfnun og missi, og sárs- aukafullu þráhyggju. Gengið verður um söguslóðir skáldsögunnar og áð í Hólavallakirkjugarði, við Dómkirkj- una og MR. Steinunn slæst í hópinn, les úr verkinu og spjallar. Gönguna leiðir starfsfólk Borgarbókasafns, all- ir velkomnir og enginn aðgangseyrir. Steinunn Sigurðardóttir slæst í hóp og les upp úr verki sínu Bókmenntaganga á söguslóðum Tímaþjófs og leikhúsheimsókn Ljósmynd/Steve Lorenz Þjóðleikhúsið Björn Hlynur og Nína Dögg í hlutverkum sínum í Tímaþjófinum. Fæst í apótekum | Celsus ehf. | www.celsus.is Sorbact - Græn sáralækning Klíniskar rannsóknir sýna bata á sveppasýkingu* hjá yfir 85% þátttakenda *candida albicans Fyrir tilstilli vatnsfælni bindast allir helstu sárasýklar og sveppir við umbúðirnar. Sýklarnir verða óvirkir og hætta að fjölga sér, án sýkla- eða sveppadrepandi efna. Virkar á VRE og MOSA sárasýkla. Skaðar ekki nýjar frumur. Ótakmörkuð notkun. Engar aukaverkanir. Ekkert ofnæmi. Sveppasýkingar - í húðfellingum - Einföld og áhrifarík, húðvæn meðferð Þægilegur grisjuborði, passar í nára, undir brjóst og magafellingar. Engin krem eða duft.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.