Morgunblaðið - 08.09.2017, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 08.09.2017, Qupperneq 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2017 VINNINGASKRÁ 19. útdráttur 7. september 2017 41 7567 19328 31493 39740 51301 64014 73471 76 7706 19576 31613 39865 51451 64217 73584 537 7878 20494 31770 40119 51544 64254 73729 915 7882 20740 31818 40564 51840 64456 73737 1338 8155 20782 31882 41600 52099 64465 73776 1342 8540 20819 31910 42230 52126 64540 74313 1445 9366 21288 32007 42386 52359 64858 74402 1714 9437 21516 32083 42798 52418 64973 74630 1821 10139 22603 32188 42978 52449 65248 74636 1999 10264 23168 32296 43164 53569 65706 74670 2086 10596 23233 32541 43621 53777 65839 74728 2480 10761 23936 32841 43681 54488 65855 74776 2842 11208 24186 32920 43811 54504 65984 74941 2883 11349 24426 32988 43884 54554 66139 75621 2914 11550 24720 33050 44327 54999 66390 75629 3081 11730 24770 33115 44397 55225 66806 76176 3141 11923 24928 33307 44406 55527 67221 76312 3214 12817 25087 33418 44600 55718 67458 76619 3322 12860 25119 34285 44740 55765 68091 76808 3635 12995 25174 34436 44937 55949 68093 77055 3665 13004 25699 34512 45051 56291 68258 77136 3797 13917 26354 34815 45561 56497 69170 77393 3943 13918 27321 34852 45888 56601 69405 77422 4449 13940 27714 35307 46102 57182 69895 77425 4470 14172 28332 35824 46837 57252 70732 78375 4665 14372 28385 36732 47005 57640 71151 78439 5020 14683 28832 37050 47425 57648 71318 78549 5121 14691 28927 37509 47515 57986 71549 78572 5228 15053 28976 37661 48972 58109 71619 78762 5396 16454 29527 37677 49420 58457 71657 79184 5580 16533 29710 37973 49826 58723 71757 79980 5680 16718 29913 38317 49887 59082 71850 5825 16806 31269 38385 49924 60830 72228 6000 17927 31316 38896 50109 61390 72261 6574 18159 31400 39113 50461 61935 72481 6785 18416 31405 39330 50650 62517 72684 6848 18999 31437 39712 50823 63540 73042 1861 9850 26929 32773 47810 54181 64702 74874 3194 11571 27008 34088 48275 54540 64929 75296 3395 12139 27608 37858 48762 55598 65996 76205 3687 13394 27977 38478 49853 56231 67331 76207 3828 15335 28679 40096 50111 57374 67591 77025 4480 20789 28959 40544 51138 60092 67993 77693 5088 21446 29133 40625 51963 60413 68397 78055 6193 22873 29298 40938 52799 60789 68863 78466 6377 23991 29307 43020 52986 61901 72408 78715 6460 24829 30532 43348 53029 62558 72581 6570 25417 31515 43622 53423 64111 73557 7275 25508 32013 46175 53821 64213 74489 9182 25588 32411 47377 53991 64375 74581 Næstu útdrættir fara fram 14., 21. & 28. september 2017 Heimasíða: www.das.is Vinningur Kr. 10.000 Kr. 20.000 (tvöfaldur) Vinningur Kr. 20.000 Kr. 40.000 (tvöfaldur) Vinningur Kr. 150.000 Kr. 300.000 (tvöfaldur) 42755 49671 67389 74983 Vinningur Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur) 1166 15899 28087 32153 45623 56240 5028 21198 29693 36216 47262 56663 8846 24421 29903 36407 49421 73078 11357 28045 31784 39876 53288 79448 Íbúðar v inningur Kr. 15.000.000 Kr. 30.000.000 (tvöfaldur) 2 9 3 7 3 8. september 2017 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 105.9 106.4 106.15 Sterlingspund 138.15 138.83 138.49 Kanadadalur 85.38 85.88 85.63 Dönsk króna 16.978 17.078 17.028 Norsk króna 13.592 13.672 13.632 Sænsk króna 13.296 13.374 13.335 Svissn. franki 110.92 111.54 111.23 Japanskt jen 0.9725 0.9781 0.9753 SDR 150.43 151.33 150.88 Evra 126.33 127.03 126.68 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 152.093 Hrávöruverð Gull 1340.45 ($/únsa) Ál 2069.0 ($/tonn) LME Hráolía 53.16 ($/fatið) Brent Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á BAKSVIÐ Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Hvatningarverðlaun jafnréttismála verða afhent í hátíðarsal Háskóla Ís- lands 26. september nk. og þessa dag- ana er óskað eftir tilnefningum. Markmið verðlaunanna er að vekja jákvæða athygli á fyrirtækjum sem stuðlað hafa að jafnrétti á markvissan hátt innan sinna fyrirtækja og jafn- framt að hvetja önnur fyrirtæki til að gera slíkt hið sama. Frestur til að senda inn tilnefningar er til 19. sept- ember. Bjarni Bjarnason, forstjóri Orku- veitu Reykjavíkur, hefur síðan hann tók við forstjórastarfinu árið 2011 lagt mikla áherslu á jafnréttismál, en Orkuveitan fékk Hvatningarverð- launin árið 2015. Hann segir í samtali við Morgunblaðið að á þeim tíma sem hann tók við hafi miklar áskoranir blasað við í rekstrinum, og hann hafi ákveðið að setja jafnréttismálin á dagskrá af festu strax í upphafi og byrja á því að ná jöfnu hlutfalli kynja í stjórnendateymi félagsins. Á þeim tíma voru konur 24% stjórnenda en í dag eru konur 51% stjórnenda. Bjarni segir að jafnrétti sé eins og önnur verkefni, þau þurfi að fremja, eins og hann orðar það, ekki sé nóg að aðhyll- ast jafnrétti. „Ég fullyrði að blandaðir vinnustaðir eru betri, skemmtilegri og betur reknir. Ákvarðanir eru ekki teknar fyrirfram og tilkynntar á fund- um heldur teknar við fundarborðið,“ segir Bjarni. Eigum kost á betra starfsfólki Rannveig Rist, forstjóri Rio Tinto Alcan, sem fékk verðlaunin árið 2014, segir aðspurð um gildi verðlaunanna, að þau séu skemmtileg hvatning fyrir félagið. „Þau eru mikilvæg til að vekja athygli og leggja áherslu á þennan grundvallarmálaflokk,“ segir Rann- veig í samtali við Morgunblaðið. Hún segir að enn sé margt óunnið á sviði jafnréttismála innan íslenskra fyrir- tækja, og framfarir hafi orðið hægar. „Það er vandasamt að ná þessu fram, jafnvel fyrir þá sem hafa áhuga og vilja til að standa sig vel í jafnrétt- ismálum.“ Rannveig segir að aukið jafnrétti innan Rio Tinto Alcan þýði að fyrir- tækið eigi kost á betra starfsfólki, og hægt sé að velja úr fjölbreyttari hópi umsækjanda sem allir eigi að hafa vissu fyrir því að kynbundinn launa- munur sé ekki til staðar. „Við náum breiðari umræðu meðal starfsmanna um ýmis mál og liðsheildin okkar verður öflugri,“ segir Rannveig að lokum Fögnum öllum sigrum Birna Einarsdóttir, bankastjóri Ís- landsbanka, sem fékk verðlaunin á síðasta ári, segir að verðlaun sem þessi hafi mikið gildi, og bankinn geri mikið úr þeim. „Mér finnst að við eig- um að fagna öllum sigrum eins og þessum. Það að vinna svona verðlaun er hvatning til að halda áfram á sömu braut,“ segir Birna í samtali við Morgunblaðið. Hún segir að gripið hafi verið til ýmissa aðgerða í bankanum til að styðja konur og jafnrétti. „Ég vil fjöl- breytni, karla og konur, yngri og eldri, góða blöndu. Það er mjög mik- ilvægt. Það er líka mikilvægt að ungir karlmenn sem koma til starfa hjá okkur líti ekki þannig á að þeir eigi ekki bjarta framtíð fyrir sér hér.“ Birna segir að mikilvægt sé að vinna gegn þeirri gömlu mýtu að kon- ur sæki ekki um störf og komi sér ekki á framfæri. „Við viljum tryggja að þær sýni áhuga. Ef það er ekki þannig þá þurfum við að styðja þær til að þær komist þangað og vekja áhuga.“ Hún segir að vilji sé allt sem þurfi þegar komi að breytingum í fyr- irtækjum. „Mörg fyrirtæki eru að gera góða hluti og viðhorfið er að breytast, en tölfræðin sýnir að enn eru æðstu stjórnendur að langstærst- um hluta karlmenn.“ Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfa- dóttir, ferðamála-, iðnaðar- og ný- sköpunarráðherra, segir að Hvatn- ingarverðlaunin veki athygli á þeim fyrirtækjum sem skara fram úr í jafn- réttismálum. „Þau leiða til umræðu á vinnustöðum og annars staðar sem hollt er að taka reglulega. Vinnustaðir með fjölbreyttari hóp starfsfólks eru almennt sterkari en þeir sem eru ein- hæfir. Það er því í mínum huga styrk- leikamerki að hljóta þessi verðlaun.“ Vandasamt að ná fram jafnrétti Hvatning Birna Einarsdóttir veitir Hvatningarverðlaununum viðtöku í fyrra. Skilyrði verðlauna » Stefna fyrirtækis í jafnrétt- ismálum hefur skýran tilgang og markmið » Jafnrétti hefur fest rætur og sýnt er fram á varanleika » Vakin er athygli á rekstr- arlegum ávinningi af jafnrétti » Jafnréttissýnin er hvetjandi fyrir önnur fyrirtæki » Sýnt er frumkvæði og ný- sköpun sem stuðlar að auknu jafnrétti kynjanna  Óska tilnefninga til Hvatningarverðlauna jafnréttismála Kaupsamningur Frjálsrar fjölmiðl- unar um kaup á nánast öllum eign- um Pressunnar og tengdum fé- lögum var ekki kynntur eigendum meirihluta í félaginu fyrr en eftir að hann var frágenginn, að þeirra sögn. Greint var frá kaupum Sig- urðar G. Guðjónssonar ásamt fjár- festum í ViðskiptaMogganum í gær. Kaupverðið mun hafa verið um 400 milljónir króna og rann beint til greiðslu ógreiddra opinberra gjalda í kjölfar gjaldþrotabeiðni Tollstjóra á hendur Pressunni, móðurfélagi DV, Vefpressunnar og fleiri fjöl- miðla. Dalurinn, félag í eigu Roberts Wessman, forstjóra Alvogen, og nokkurra samstarfsmanna hans, er eigandi að 68% hlut í Pressunni. Í tilkynningu sem forsvarmenn Dals- ins sendu frá sér í gær kemur fram að ekki sé ákveðið hvað verður um þann eignarhlut, en í ljósi fyrr- greindra viðskipta megi telja að hluturinn hafi lítið verðmæti þar sem eignir hafa verið seldar úr fé- laginu. Í yfirlýsingu Dalsins segir að ef marka megi yfirlýsingar kaupanda verði allar skuldir Pressunnar gerð- ar upp og þá sérstaklega skuldir við Tollstjóra og lífeyrisskuldbindingar starfsmanna. Forsvarsmenn Dals- ins fagni því ef það verði niðurstað- an. Hins vegar séu þeir jafnfor- vitnir og aðrir um það hverjir standi á bak við kaupin. Pressan seld án aðkomu eigenda Atvinna

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.