Morgunblaðið - 08.09.2017, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 08.09.2017, Blaðsíða 27
Katrín lauk BA-prófi í mannfræði frá HÍ 2014 og var síðan blaðamaður á MAN Magasín: „Það var stór- skemmtilegt og góð reynsla. Sumarið eftir, í miðju meistaranámi, varð ég svo fréttamaður á RÚV. Það hafði verið (leynilegur) framtíðardraumur minn en ég komst að því að það er ekki mín rétta hilla í lífinu. Sumarið var samt stórskemmtilegt og reynsl- an ómetanleg.“ Katrín hefur nýlokið MA-prófi í pólitískri mannfræði og er þessa dag- ana að svipast um eftir skemmtilegu starfi. Árin 2015 og 2016 skipaði mennta- og menningarmálaráðherra Katrínu í leiklistarráð og úthlutunarnefnd lista- mannalauna. Hún hefur setið í stjórn Félags íslenskra listdansara og verið varatrúnaðarmaður Íslenska dans- flokksins. En hvað er það nú helst sem gefur lífinu lit hjá Katrínu? „Það er nú margt – sem betur fer. Ég er svo heppin að eiga frábæra fjöl- skyldu og fjöldann allan af ynd- islegum vinum. Samverustundir með þeim eru mér afskaplega dýrmætar. Ég nýt þess að fara út að borða með vinum og njóta þess að vera með góðu og skemmtilegu fólki. Ferðalög eru mér líka ástríða. Ég er dýravinur og kisinn minn, hann Nói, sem er 11 ára, er eiginlega eins og sonur minn. Ég er algjör rússíban- afíkill og veit hreinlega ekkert skemmtilegra.“ Fjölskylda Katrín er einhleyp, barnlaus og hamingjusöm. Hálfsystkini hennar, samfeðra, eru Ólafur Haukur Johnson, f. 23.8. 1983, framkvæmdastjóri Catapult í London en kona hans er Sigrún Jónsdóttir, innkaupa- og birgðastjóri hjá TK Maxx Englandi; Pétur Örn Johnson, f. 31.7. 1985, lögfræðingur hjá Rík- isskattstjóra í Reykjavík, búsettur þar, en kona hans er Heiða Dröfn Antonsdóttir, framkvæmdastjóri When in Iceland, og Arna Margrét Johnson, f. 1.5. 1988, flugfreyja hjá Icelandair, búsett í Reykjavík en maður hennar er Kristinn Gunn- arsson, viðskiptastjóri hjá Símanum. Foreldrar Katrínar eru Helga Möller, f. 3.10. 1950, rithöfundur, fyrrv. auglýsingastjóri og blaðamað- ur, og Ólafur Haukur Johnson, f. 20.12. 1951, fyrrv. skólastjóri Mennta- skólans Hraðbrautar Reykjavík. Maður Helgu er Benedikt Geirs- son, f. 1953, en kona Ólafs Hauks er Borghildur Pétursdóttir, f. 1954. Katrín Johnson Jóhanna Erlendsdóttir Johnsen myndlistark. í Vestmannaeyjum Guðni Hjörtur Johnsen kaupm. og útgerðarm. í Vestm. Ágústa S. Johnsen Möller húsfr. í Reykjavík Gunnar J. Möller hrl. og forstj. Sjúkrasamlags Reykjavíkur, í Rvík Helga Ingibjörg Möller rith., fyrrv. auglýsingastj. og blaðam. í Rvík Þóra Guðrún GuðjohnsenMöller húsfr. í Rvík Jakob Möller ráðherra og sendiherra, í Rvík Gunn- laugur Ó. Johnsen arkitekt Ólafur Haukur Johnson, við- skiptafr., MBA, frumkvöðull og framkv. stj. Catapult í London Gunnar Egilsson klarinettuleikari Pétur Hafstein fyrrv. hæstaréttardómari og sagnfræðingur Marta Thors húsfr. í Rvík Pétur J. Thorsteinsson sendiherra Borghildur P.Thorsteins- son húsfr. í Rvík. Katrín Ólafsdóttir kennari í Graz í Austurríki og í Rvík Thor Thors forstj. Ís- lenskra aðalverktaka Gunnlaugur ÞórBriem, rafmagns- og tölvuverkfr.og hugbúnaðararkitekt hjáQlik Margrét Kristín Sigurðardóttir (Fabúla) söng- og leikkona Ólafur Ó. Johnsen forstj. O. Johnson & Kaaber Guðrún Thorsteinsson Egilson húsfr. í Rvík Ragnheiður Hafstein forsætisráðherrafrú Kristín Thors húsfr. í Edinborg og í Rvík Thor Vilhjálms- son rithöfundur Muggur myndlistarmaður Ólafur B. Thors fyrrv. framkv.stj. Sjóvár-Almennar Ólafur Thors forsætis- ráðherra Baldur Möller ráðuneytis- stj. og skák- meistari Markús Möller hag- fræðingur við Seðla- bankann Örnólfur Thors, bókmennta- fræðingur og forsetaritari Jakob Þ.Möller, fyrrv.mannréttindalögfr. hjá Sþ. í Genf og fyrrv. dómari við alþjóðlegan mannréttindadómstól í Bosníu og Hersegóvínu Katrín Briem Thorsteinsson húsfr. í Viðey Elísabet Ólafs- dóttir húsfr. í Rvík Thor Thors sendih. Íslands í Washington og hjá Sþ. Guðrún Pétursdóttir for- stöðum. við HÍ Eggert Briem rafveitustj. Ólafur F. Mixa fyrrv. yfirlæknir í Rvík Ólöf Pétursdóttir dómstjóri Þóra G. Möller húsfr. í Rvík Jóhanna G.Möller söngkona í Rvík Soffía Lára Hafstein Thors húsfr. í Rvík, dóttir Hannesar Hafstein skálds og ráðherra Haukur Thors framkv.stj. hjá Kveldúlfi, í Rvík, sonur Thors Jensen Margrét Þorbjörg Thors Johnson húsfr. í Rvík Örn Ólafsson Johnson forstj. Icelandair, í Rvík Helga Pétursdóttir Thorsteinsson Johnson húsfr. í Rvík Ólafur Þorláksson Johnson forstj. O. Johnson & Kaaber hf., í Rvík Úr frændgarði Katrínar Johnsen Ólafur Haukur Johnson fyrrv. skólastj. Menntaskólans Hraðbrautar í Rvík ÍSLENDINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2017 Halldór Ásgrímsson fæddist áVopnafirði 8.9. 1947. For-eldrar hans voru Ásgrímur Halldórsson, framkvæmdastjóri á Höfn í Hornafirði, og Guðrún Ing- ólfsdóttir húsfreyja. Eftirlifandi eiginkona Halldórs er Sigurjóna Sigurðardóttir læknarit- ara og eignuðust þau þrjár dætur, Helgu, Guðrúnu Lind og Írisi Huld. Halldór lauk prófi við Samvinnu- skólann 1965, varð löggiltur endur- skoðandi 1970 og sótti framhaldsnám í verslunarháskólana í Björgvin og Kaupmannahöfn 1971-73. Halldór var lektor við viðskipta- deild HÍ 1973-75, sat á Alþingi fyrir Framsóknarflokkinn 1974-78 og 1979-2006, var varaformaður flokks- ins 1980-94, formaður 1994-2006 og gegndi ráðherraembætti í 19 ár. Hann var sjávarútvegsráðherra 1983-91 og gegndi auk þess störfum samstarfsráðherra Norðurlanda og dóms- og kirkjumálaráðherra. Hann var utanríkisráðherra og samstarfs- ráðherra Norðurlandanna frá 1995, var utanríkisráðherra til 2004, en gegndi síðarnefnda embættinu til 1999. Hann var einnig landbúnaðar- og umhverfisráðherra vorið 1999 og fór með heilbrigðis- og trygginga- málaráðuneyti í forföllum í ársbyrjun 2001. Halldór var skipaður forsætisráð- herra haustið 2004 og gegndi því embætti fram á mitt sumar 2006 er hann ákvað að hætta í stjórnmálum. Halldór var um skeið formaður bankaráðs Seðlabanka Íslands og sat í fjölda nefnda á vegum Alþingis. Hann tók við stöðu framkvæmda- stjóra Norrænu ráðherranefndar- innar í ársbyrjun 2007 og gegndi því starfi fram í mars 2013. Halldór var farsæll flokksforingi og áhrifamikill stjórnmálamaður. Eitt af fyrstu verkum hans sem sjávarútvegsráðherra var að innleiða kvótakerfið 1984. Hann og Davíð Oddsson mynduðu ríkisstjórn sinna flokka 1995 og viðhéldu samfelldu stjórnarsamstarfi sinna flokka leng- ur en nokkrir aðrir flokksforingjar fyrr og síðar. Halldór lést 18.5. 2015. Merkir Íslendingar Halldór Ásgrímsson 90 ára Magnús Ágústsson 85 ára Ragnar Tryggvason 80 ára Auður Sesselja Þorkelsdóttir Guðmundur G. Magnússon Jóhanna J. Thors Einarsdóttir Jörgen Már Berndsen 75 ára Birna Friðgeirsdóttir Jón Ingvarsson Kristín Gissurardóttir 70 ára Bára Guðnadóttir Birgir Guðnason Friðgeir Friðgeirsson Guðný A. Guðmundsdóttir Kristjana Heiður Gunnarsdóttir 60 ára Arnaldur Austdal Rögnvaldsson Bjarni Grétarsson Guðmundur Ómar Þráinsson Hafdís Júlía Hannesdóttir Helen Sjöfn Færseth Hjálmdís Hafsteinsdóttir Kristbjörg Fjóla Kjartansdóttir Miroslaw Polinski 50 ára Anna María Skúladóttir Herborg Árnadóttir Johansen Hilmar Stefánsson Jóhanna María Eyjólfsdóttir Jónheiður Lína Steindórsdóttir Marian Kolaciak Sawat Thipbuphra Sigríður Helga Sigfúsdóttir Sigríður Jóhannsdóttir Sigurður Kjartansson Steinunn Tómasdóttir Sveinn Brandsson Sverrir Sveinn Sigurðarson Þorvaldur Snorrason Þórarinn Kristjánsson 40 ára Árni Geir Ómarsson Birta Ósk Svansdóttir Björn Brynjar Jónsson Daði Birgisson Femy Fernandez Trinidad Finnur Bjarni Kristjánsson Hildur Kristín Sveinsdóttir Ingigerður Einarsdóttir Ísak Kristjánsson Katrín Ágústa Johnson Ragnar Svavarsson Valur Fannar Gíslason 30 ára Aldís Heiða Magnúsdóttir Anna Bryndís Gunnlaugsdóttir Anne-Charlotte S. Andrieux Auður Tinna Hlynsdóttir Ásgeir Atlason Baldur Þór Emilsson Chuthamat Phusakhon Eiríkur Fannar Jónsson Eyjólfur Páll Víðisson Finnur Torfi Gíslason Guðrún Magnea Guðnadóttir Helena Björk Arnardóttir Karen Ösp Einarsdóttir Marta Rún Þórðardóttir Pálmi Guðlaugsson Stella Hallsdóttir Þórður Rafn Gissurarson Til hamingju með daginn 30 ára Þórður ólst upp í Reykjavík, býr þar, lauk prófum í viðskiptum frá St. Andrews University í Norður-Karólínu, er at- vinnukylfingur og varð Ís- landsmeistari í höggleik árið 2015. Maki: Tinna Birgisdóttir, f. 1986, ritari við LSH. Foreldrar: Gissur Rafn Jóhannsson, f. 1948, og Gyða Þórðardóttir, f. 1947. Þau eru búsett í Reykjavík. Þórður Rafn Gissurarson 30 ára Stella býr í Reykjavík og er að ljúka ML-prófi í lögfræði frá HR. Maki: Guðjón Örn Helga- son, f. 1984, mannauðs- ráðgjafi hjá Reykjavík- urborg. Sonur: Sigurlogi Karl Guðjónsson, f. 2016. Foreldrar: Hallur Birg- isson, f. 1957, rafmagns- tæknifr. í Mosfellsbæ, og Kristín Dóra Karlsdóttir, f. 1957, bókari. Stella Hallsdóttir 30 ára Auður ólst upp í Reykjavík og Vestmann- eyjum, býr á Selfossi, stundar nám í þroska- þjálfafræði og er stuðn- ingsfulltrúi hjá Setrinu. Maki: Ágúst Logason, f. 1984, sjómaður. Dætur: Kolbrún Sunna, f. 2011, og Þóra Mist, f. 2014. Foreldrar: Kristbjörg Jónsdóttir, f. 1967, og Hlynur Angantýsson, f. 1967. Auður Tinna Hlynsdóttir Mikið úrval - Traust og fagleg þjónusta

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.