Morgunblaðið - 08.09.2017, Qupperneq 29
DÆGRADVÖL 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2017
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú ert hæfileikaríkur nemandi í
mannlegu eðli, og það gefur þér brodd í öllu
sem þú tekur þér fyrir hendur. Komdu skjöl-
um í röð og reglu hvort sem um er að ræða
reikninga eða bréfaskriftir.
20. apríl - 20. maí
Naut Vertu á varðbergi gagnvart öllum til-
raunum til þess að draga úr áhrifum þínum.
Fólk leggur eyrun við þegar þú talar.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Það er ýmislegt á seyði í kring um
þig og skiptir ákaflega miklu máli, að þú getir
greint kjarnann frá hisminu. Lausnir á öðrum
vandamálum gætu þó skotið upp kollinum.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Hver er ríkur? Það er sá sem nýtur
þess sem hann á. Gerðu hvað þú getur til að
vekja athygli yfirmanna þinna á verkum þín-
um.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þótt þér finnist allt vera að fara úr
böndunum skaltu ekki örvænta því útlitið er
ekki eins slæmt og þér sýnist. Farðu þér
hægt því tíminn vinnur með þér og ryður öll-
um hindrunum úr vegi.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þig kann að langa að spreyta þig á
nýrri aðferð í samskiptum þínum við börn í
dag. Að vera nálægt einhverjum hjartfólgnum
spillir ekki fyrir í daglega amstrinu.
23. sept. - 22. okt.
Vog Samskipti þín við maka þinn og nána vini
eru eitthvað stirð í dag. Fólk er eitthvað svo
ófyrirsjáanlegt núna.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Lokaðu augunum og ímyndaðu
þér að þú sért þar sem þig langar til þess að
vera. Reyndu að gefa þeim sem skipta mestu
máli nauðsynlegan tíma og sýndu vænt-
umþykju.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Fólki finnst gaman að færa þér
gjafir – kannski af því að þú ert svo vinalegur.
Líttu á þær sem óhjákvæmilegar krossgötur.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Ekki hika við að taka frumkvæðið
hvað varðar vinnuna og samskipti við yf-
irmenn. Taktu stjórnina í þínar hendur í stað
þess að láta tilviljanirnar ráða ferðinni.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú geislar af krafti og ert tilbúinn
til að hefjast handa hvort sem er í starfi eða
einkalífi. En með smávegis fyrirhöfn er vel
hægt að lífga upp á dvínandi ást.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Það er hætt við að þú bregðist of
harkalega við hlutunum. Allt sem þú gerir
ánægjunnar vegna getur á undarlegan hátt
fært þér peninga.
Hugur og hjarta, bundið mál“ erljóðabók eftir Ólaf Runólfsson
frá Berustöðum í Holtum, sem út
kom vorið 2012. Tildrögin voru
þau, að Ólafur hafði veikst hast-
arlega um áramótin 1995-96 og
heimilislæknirinn sent hann rak-
leiðis upp á Borgarspítala. Hann
greindist með stíflaðar kransæðar
og auk þess var kominn örvefur í
hjartað. Í sjálfan hjartaskurðinn fór
hann hálfu ári síðar. Til þess að
stytta sér stundir á spítalanum fór
hann að setja saman vísur um það
sem fyrir augu bar. Það var kveikj-
an að ljóðabókinni.
Fyrsti kaflinn heitir „Á spítala“.
Hann er vel kveðinn, oft hnyttinn
og söguþráðurinn á köflum spenn-
andi. Vísurnar eru 154 svo að ég
get rétt gripið niður á stöku stað.
Pálmi var slappur við innritun, sá
tvöfalt en svo hresstist hann:
Enn ég reyni að æfa mig,
ekki er við það banginn.
Ef ég kemst á stiga-stig
stunda ég tröppuganginn.
Ólafur er kominn í nærfötin:
Vaxtarlagið virðist skrítið,
við þeim fötum segi stopp.
Hólk-vítt mitti, hálsmál lítið,
hentar ekki mínum kropp.
Að arka um ganga er mér tamt
oft á dag – og lengi.
Eftir tafir tókst það samt
að tröppuleyfi fengi.
Ólafur lýsir rannsóknunum, nál-
arstungum og myndatökum og við
tók tveggja daga bið:
Loks er tími til þess vannst
tókst það allt með snilli.
Endanlega eitthvað fannst
eyrnanna á milli.
Loksins kom að undirbúningi fyr-
ir hjartaskurðinn, snyrting:
Eg vil ræða um þau mál
sem alveg leynt skal vera.
Ekkert skraut né ytra prjál
er nú leyft að bera.
Á lágum bekk ég liggja má.
Ljúf þar kona situr hjá.
Af mér rakar öll mín strá
allt frá höku að stórutá.
Næmar hendur, natin kona,
nettur fingur um mig strauk.
Endilega vil ég vona
að vaxi aftur það sem fauk.
Æð var tekin úr fætinum:
Fæti sundur fletta mátti,
finna æðar hér.
Varahluti væna átti,
vel nú kom það sér.
Fékk í hjartað fjórar æðar,
fljótt það mína heilsu bæti.
Skyldu það vera skálda-æðar
sem skornar voru úr hægra fæti?
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Hugur og hjarta hagyrðings
Í klípu
„EF ÞAÐ VERÐUR RAUTT HÖFUM VIÐ
EKKI EFNI Á ÞVÍ.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÉG VILDI ÓSKA ÞESS AÐ ÞÚ VÆRIR MEÐ
HATT ÞEGAR ÞÚ ERT ÞARNA INNI. ÉG ER
BÚIN AÐ LEITA AÐ ÞÉR ÚT UM ALLT.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að vita að þið gætuð
ekki lifað án hvort
annars.
ÉG ER AÐ ELDA
MATINN!
ARG! ÉG ER
AÐ BRENNA
MATINN!
ÉG ER AÐ
PANTA PÍTSU
ÞÚ ÆTTIR
AÐ ELDA
OFTAR
ÉG
LÍKA!
ÉG ER SÆRÐUR Á
TUNGUNNI!
ÞAÐ ER GOTT TIL AÐ
HREINSA SÁR!
HEY! ÞETTA ER
GOTT VISKÍ!
HEIMILISPRÓF
SVÍN
Víkverji lenti í ferðalögum á dög-unum. Við komuna í Leifsstöð
velti Víkverji því fyrir sér hvort þar
væri Íslandsmetið í álagningu nokk-
uð fallið. Kannski er húsaleigan
hærri en gengur og gerist. Í það
minnsta eru vörurnar þar furðu
dýrar. Víkverji hitti kunningja sinn
sem var með tvo unglingssyni sína
með sér. Þeir höfðu farið á staðinn
Joe and the Juice og kostaði það um
5 þúsund krónur fyrir unglingana
tvo. Þótti kunningjanum vel í lagt.
x x x
Fyrst Víkverji er byrjaður aðnöldra á annað borð þá fékk
hann hálsríg í flugvélunum eins og
gjarnan á síðustu árum. Víkverji
veltir því fyrir sér hvort þeir sem
framleiða og selja uppblásnu púð-
ana fyrir hálsinn séu stórir hlut-
hafar í flugfélögunum. Þess vegna
séu sætin svo óheppileg fyrir höf-
uðið. Á þetta við um nokkur flug-
félög. Víkverji er hér um bil viss um
að um nýlegt vandamál fyrir hann
sé að ræða. Áður hafi verið auðveld-
ara að halla höfði í vélunum.
x x x
Víkverji hélt til Finnlands eins ogsvo ótal margir Íslendingar
gerðu. Í höfuðborginni Helsinki
verður ekki annað sagt en að úrvalið
þegar kemur að samgöngum sé
talsvert. Fyrir utan lestarkerfið,
sem var nokkuð aðgengilegt er
einnig haldið úti sporvögnum. Yfir
þeim er alltaf vissa sjarmi í mið-
borgunum. En einnig sá Víkverji
rútur sem gætu hafa verið í hlut-
verki strætóa og nóg virtist vera af
leigubílum.
x x x
Stuðningsmenn íslensku landslið-anna í fótbolta og körfubolta
voru til fyrirmyndar í Finnlandi eft-
ir því sem Víkverji best veit. Þannig
er það oftast nær og vekur athygli
erlendis en ýmiss konar leiðindamál
geta fylgt stórum hópum stuðnings-
manna á íþróttaleikjum. Körfu-
boltaleikirnir fóru fram í glæsilegri
íshokkíhöll. Þar var ekki einungis
seldur bjór heldur einnig sterkt vín
á myndarlegum bar í höllinni.
vikverji@mbl.is
Víkverji
Drottinn er góður, miskunn hans var-
ir að eilífu og trúfesti hans frá kyni til
kyns
(Sálm. 100:5)