Morgunblaðið - 08.09.2017, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 08.09.2017, Blaðsíða 30
30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2017 VIÐTAL Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Mér fannst einstaklega gaman að vinna við gerð myndarinnar og fagna því hverju tæki- færi sem ég fæ til að ræða hana við áhorf- endur,“ segir danski leikarinn Claes Bang um The Square í leikstjórn Svíans Rubens Östl- und sem frumsýnd var í Bíó Paradís um liðna helgi. Af því tilefni kom Bang í örstutta heim- sókn til Íslands og sat fyrir svörum að sýningu lokinni. The Square var frumsýnd á kvikmyndahá- tíðinni í Cannes í maí, þar sem hún hreppti Gullpálmann, og sýnd á kvikmyndahátíðinni í Toronto í gær. Í framhaldinu verður hún sýnd á San Sebastián-kvikmyndahátíðinni á Spáni, í Ungverjalandi, Póllandi, Úkraínu, Noregi, Bandaríkjunum, Belgíu, Frakklandi, Argent- ínu, Danmörku, Bretlandi og víðar. „Þegar ég ræddi við framleiðandann um daginn sagði hann búið að selja sýningarrétt- inn til allra landa heims nema Mongólíu,“ segir Bang, sem verður á ferð og flugi næstu mánuði til að kynna myndina. „Þessi mynd er flottasti útstillingargluggi sem ég hef lent í og besta nafnspjald sem ég gæti hafa fengið upp í hend- urnar. Ég reyni því eðlilega að nýta mér þenn- an sýnileika sem best ég get og vona að það skili mér fleiri spennandi hlutverkum,“ segir Bang, sem þegar hefur tekið þátt í fjölda leik- prufa. „Það er enn ekkert fast í hendi en ég geri mér góðar vonir. Mér berst að jafnaði eitt handrit á dag sem ég er beðinn um að skoða.“ Áttu þér einhver draumahlutverk? „Nei. Ég gæti reyndar mjög vel hugsað mér að leika Macbeth eftir Shakespeare, enda text- inn stórkostlegur og hlutverkið spennandi. Ég hef ekki leikið marga vonda karla, svona skuggalegar og siðblindar týpur. Ég gæti hugsað mér fleiri slík hlutverk, því þau eru svo safarík fyrir leikara. Mig dreymir reyndar fremur um að vinna með ákveðnu fólki en um tiltekin hlutverk. Toppurinn væri að vinna með David Lynch því hann hefur skapað nokkrar af bestu myndum kvikmyndasögunnar. Ég gæti líka hugsað mér að vinna með Michael Han- eke, enda frábær leikstjóri.“ Oft að niðurlotum kominn En aftur að The Square. Þurftir þú að hugsa þig tvisvar um þegar þér bauðst hlutverk sýn- ingarstjórans Christians í myndinni? „Nei, engan veginn. Ruben tók sér mjög langan tíma í að velja rétta leikarann í aðal- hlutverkið og prófaði ýmsa þekkta leikara. Ég var búinn að setja mig mjög vel inn í hlutverkið og myndina þegar hann loksins sagði mér að ég hefði orðið fyrir valinu. Þá var ég orðinn svo spenntur fyrir verkefninu að ég hefði tekið að mér að gera það launalaust ef þess hefði þurft. Það má líkja þessu hlutverki við að keyra Rolls Royce leikbransans. Þarna gafst mér tækifæri til að vinna mikið og af fullum ákafa.“ Talandi um mikla vinnu þá er Östlund fræg- ur fyrir langar og margar tökur. Hvernig reynsla var það? „Myndin var tekin á 75 dögum og ég mætti í 73 tökudaga. Ruben vinnur allt öðruvísi en aðr- ir leikstjórar sem ég hef unnið með. Hann er aðeins upptekin af hverri og einni senu hverju sinni. Hann vinnur aldrei með fortíð persóna eða framtíð. Við ræddum því aldrei um per- sónu Christians, bakgrunn hans eða tilfinn- ingar. Það er eins og Ruben reyni markvisst að þreyta leikara sína með þessum löngu tökum til þess að þeir hætti að leika eða ofhugsa hlut- ina og fari þess í stað að lifa atburðina. Ég var oft á tíðum alveg að niðurlotum kominn þegar Ruben var loks ánægður með árangurinn.“ Hvers konar karakter er Christian? „Hann hefur háleit markmið, sem birtist í vali hans á þeim listaverkum sem sýnd eru í safninu þar sem hann er sýningarstjóri. Á sama tíma gerir hann hluti í prívatlífi sínu sem eru í hrópandi mótsögn við þá hugmyndafræði sem hann gefur sig út fyrir að fylgja. Hann er ekki vond manneskja – þvert á móti, því hann vill öllum vel. Hann hagar sér hins vegar eins og kjáni og tekur vondar ákvarðanir sem gera honum býsna erfitt fyrir.“ Hvaða senu fannst þér erfiðast að leika? „Það er senan þar sem Christian situr fyrir svörum á blaðamannafundi og þarf að svara fyrir mistök í starfi. Um 80 blaðamenn spyrja hann spjörum úr,“ segir Bang og rifjar upp að tökurnar hafi tekið tvo daga. „Okkur Ruben lenti illa saman og mig langaði hreinlega til að berja hann. Hann vildi nefnilega að Christian ætti erfitt með að svara spurningunum og liði þess vegna mjög illa í aðstæðunum. Mér fannst spurningarnar hins vegar allt of auðveldar og fannst ótrúverðugt að Christian gæti ekki auð- veldlega svarað þeim. Á endanum virkaði sen- an mjög vel, sem helgast sennilega af því að mér tókst að beina minni persónulegu gremju og reiði inn í aðstæðurnar.“ Rífast um notaðan smokk En hvaða sena var skemmtilegust? „Tvímælalaust kynlífssenan með Elisabeth Moss sem endar á því að við förum að rífast um notaðan smokk. Það reyndist mjög erfitt að ná senunni réttri, sem helgast af því að aðstæð- urnar eru hreinlega svo fjarstæðukenndar að það var erfitt að fara ekki bara að hlæja,“ segir Bang, sem ber Moss afar vel söguna. „Hún kom inn í verkefnið þegar tíu tökudag- ar voru eftir. Á þeim tíma vorum við öll orðin býsna þreytt en þá kom hún eins og ferskur andblær með gleði sína og orku.“ Gagnrýnendur sem skrifað hafa um mynd- ina lýsa henni sem blöndu af satíru og hefndar- mynd. Hún er meinfyndin en fær um leið hæg- lega hárin til að rísa enda aðstæður persóna oft á tíðum býsna vandræðalegar. „Þessi upptalning lýsir myndinni býsna vel. Ruben reynir ekki bara að skemmta áhorf- endum heldur draga upp mynd af erfiðum vandamálum þar sem ekki er til nein góð lausn, aðeins tvær vondar. The Square er háðsádeila bæði á listheiminn og lífshætti Vesturlanda- búa, ekki síst Norðurlandabúa. Við búum við allsnægtir og teljum okkur með háum sköttum geta tryggt að enginn falli gegnum öryggisnet velferðarkerfisins. Á sama tíma bíður stór hópur flóttafólks við landa- mærin sem við veljum að hunsa. Það er ekkert skrýtið við það að horfa í hina áttina, því það væri óyfirstíganlegt verkefni að eiga að axla og leysa öll vandamál heimsins. Ég held að mynd- in dragi upp raunsanna mynd af ástandi heimsins nú um stundir án þess að vera mór- ölsk eða fordæmandi,“ segir Bang og tekur fram að slík nálgun leiði vonandi til þess að áhorfendur íhugi myndina að áhorfi loknu. Sem fyrr segir stoppaði Bang stutt á Íslandi að þessu sinni því hann er upptekinn við æfing- ar á leikritinu The City eftir breska leikskáldið Martin Crimp í leikstjórn Peters Dupont Weiss sem frumsýnt verður hjá Odense Teater 28. september. „Ég kýs að vinna jöfnum hönd- um á leiksviðinu og hvíta tjaldinu. Mér er sama hvort verkefni er stórt eða lítið, aðalatriðið er að það sé spennandi. Ég hafnaði því ýmsu til að geta tekið þátt í verki Crimp vegna þess að mér fannst þetta áhugavert hlutverk og spenn- andi uppfærsla.“ Morgunblaðið/Eggert Gull „Þessi mynd er flottasti útstillingargluggi sem ég hef lent í og besta nafnspjald sem ég gæti hafa fengið,“ segir Claes Bang um The Square sem vann Gullpálmann í Cannes í vor. Langar að leika fleiri vonda karla  Claes Bang segir The Square vera háðsádeilu bæði á listheiminn og lífshætti Vesturlandabúa  Hann segir Ruben Östlund markvisst þreyta leikara sína svo þeir neyðist til að lifa í augnablikinu Ruben Östlund hefur feng-ist við kvikmyndagerðum nokkurt skeið og meðhverri mynd verður sí- fellt ljósara að hann hefur allt til brunns að bera til að teljast kvik- myndahöfundur eða „auteur- leikstjóri“. Nú hefur hann þar að auki hlotið stærstu viðurkenningu kvikmyndaheimsins, Gullpálmann, fyrir nýjustu mynd sína The Square. Myndir hans hafa mjög auð- þekkjanlegan frásagnarstíl, þær eru dramamyndir með kómískum undir- tóni og kafa jafnan í hið óþægilega í einstaklingnum og í samfélaginu sem heild. Hann notar jafnan stíl- hreinar leikmyndir, skandinavísk innanhúshönnun er áberandi og persónur klæðast smekklegum klæðnaði upp á norræna vísu. Allt er svolítið eins og klippt út úr Bo bedre. Þessi fagurfræði skilar sér einkar vel til áhorfenda, þar sem Östlund er framúrskarandi fær í innrömmun. Hann notast mikið við kyrra ramma og sparar klippingar þannig að manni líður líkt og maður sé inni í rýminu með persónunum. Allt hjálpar þetta til við að magna upp spennuna og vandræðaleikann sem gjarnan einkennir aðstæður í myndunum. The Square fjallar, líkt og myndin Turist sem Östlund sendi frá sér 2014, um mann sem reynir að við- halda yfirborðkenndri ímynd gagn- vart samstarfsfólki, fjölskyldu og vinum á meðan smátt og smátt er flett ofan af því hversu undarleg og tilviljunarkennd sú ímynd er. Christian, túlkaður með glæsibrag af Claes Bang, er sýningarstjóri hjá stóru nútímalistasafni í Svíþjóð. Í stórskemmtilegu upphafsatriði er hann rændur síma sínum og veski. Við fylgjum Christian eftir þar sem hann gerir tilraun til að endur- heimta eigur sínar á meðan hann stendur í ströngu við að kynna nýj- ustu sýningu safnsins. Sýningin ber nafnið „The Square“ og er verk sem deilir á skeytingarleysi nútíma Vesturlandabúa gagnvart þeim sem minna mega sín. Við kynningar- herferðina nýtur safnið aðstoðar kornungra og kolvitlausra markaðs- fræðinga og endar herferðin, sem og tilraun Christians til að góma þjófinn, vægast sagt með ósköpum. Það er þó undirtextinn sem skipt- ir hvað mestu máli í myndinni, fremur en atburðarásin sjálf. Mynd- in er hlaðin lymskulegum og hnyttn- um atriðum sem öll miða að því að afhjúpa á einn eða annan hátt hve fáránlegt samfélag manna er í raun og veru. Ég leyfi mér að segja að Östlund sé snillingur, í fullum skiln- ingi þess orðs, í slíkri afhjúpum og gæddur ótrúlegri næmni við að koma auga á spaugileg augnablik sem jafnframt innihalda heilmiklar tilvistarlegar vangaveltur. Að því sögðu er ekki laust við að myndin sé ofhlaðin slíkum upplýs- ingum. Það er líkt og hér eigi að deila á allt sem bjátar á í heiminum í einu. Myndin byrjar sem ádeila á broddborgaralegt samfélag listunn- enda á Norðurlöndum en ekki er látið þar við sitja heldur reynt að af- greiða fátækt og stéttskiptingu, flóttamannavandann, muninn (eða skort þar á) á milli listar og neyslu- vöru, dýrslegt eðli mannskepnunnar og loks pólitíska rétthugsun og fjöl- miðlafár á tímum internetsins. Þetta er síður en svo illa gert, oftast er þetta gert með afar snjöllum hætti en þetta er bara svo mikið! Svo mik- ið að ég renni grun í að höfundur myndarinnar hafi ofmetnast, færst of mikið í fang. Í Turist var þessi undirtexti sem einkennir myndir Östlunds t.d. afmarkaðri og betur afgreiddur. Sú mynd var raunar slíkt afbragð að erfitt er að ætlast til að leikstjórinn toppi sig aftur í næstu mynd. Því verður þó ekki neitað að The Square er gríðarlega hressandi og fyndin mynd, auk þess sem einstök fagurfræði Östlunds lætur engan ósnortinn. Myndin fléttar skarpri þjóðfélagsgagnrýni inn í kolklikkaða söguframvindu og ég skemmti mér mjög vel, þótt stundum hafi mér fundist þetta fullmikið af því góða. „Litlir kassar – allir eins“ Snillingur „Ég leyfi mér að segja að Östlund sé snillingur, í fullum skilningi þess orðs,“ segir í rýni. Elisabeth Moss og Claes Bang í hlutverkum sínum. Bíó Paradís The Square bbbbn Leikstjórn og handrit: Ruben Östlund. Kvikmyndataka: Fredrik Wenzel. Klipp- ing: Jacob Secher Schulsinger. Aðal- hlutverk: Claes Bang, Elisabeth Moss, Terry Notary, Christopher Læssø. 142 mín. Svíþjóð, 2017. BRYNJA HJÁLMSDÓTTIR KVIKMYNDIR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.