Morgunblaðið - 08.09.2017, Qupperneq 36
FÖSTUDAGUR 8. SEPTEMBER 251. DAGUR ÁRSINS 2017
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 581 KR. ÁSKRIFT 6.307 KR. HELGARÁSKRIFT 3.938 KR. PDF Á MBL.IS 5.594 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.594 KR.
1. Ráðlagt að stunda endaþarmsmök
2. Laugarvörður í öðrum heimi
3. Bílskúrshurðin sprakk af
4. Ekkert sjötta stig til
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Einleikurinn Fjallkonan eftir leik-
konuna Heru Fjord, sem var frum-
sýndur á einleikjahátíðinni Act Alone
10. ágúst sl., verður fluttur í Tjarn-
arbíói á sunnudaginn. Verkið fjallar
um ævi Kristínar Dahlstedt veit-
ingakonu sem fæddist árið 1876 í
Botni í Dýrafirði. Kristín fór 18 ára til
Danmerkur þar sem hún lærði um
matseld og veitingarekstur en kom
aftur til Íslands árið 1905 og rak eig-
in veitinga- og gistiheimili í Reykjavík
í hálfa öld, lengst af undir nafninu
Fjallkonan á Laugaveginum.
Hera Fjord flytur verkið auk þess
að skrifa það en hún er langalang-
ömmubarn Kristínar og hefur kynnt
sér sögu hennar vel en leikstjóri
verksins er Ragnheiður Harpa Leifs-
dóttir.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Flytur einleik um
langalangömmu sína
Kvikmyndin
Undir trénu eft-
ir leikstjórann
Hafstein Gunn-
ar Sigurðsson
var frumsýnd á
kvikmynda-
hátíðinni í Fen-
eyjum 31. ágúst
og hefur hún
hlotið jákvæð
viðbrögð gagn-
rýnenda, m.a. Hollywood Reporter
sem ber lof á leikara myndarinnar og
Screen International. Gagnrýnandi
Morgunblaðsins er einnig hrifinn en
gagnrýni hans má finna á bls. 33 í
blaðinu í dag.
Undir trénu vel tekið
af gagnrýnendum
Á laugardag Norðlæg eða breytileg átt 3-8 m/s og bjartviðri, en
skýjað og úrkomulítið norðan- og austanlands. Austan 8-13 m/s og
rigning sunnan til á landinu um kvöldið. Hiti 8 til 13 stig.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðan 8-13 m/s og rigning á austanverðu
landinu, en hægari vindur annars staðar og bjartviðri á Suður- og
Vesturlandi. Hiti 6 til 14 stig, hlýjast sunnanlands.
VEÐUR
Katrín Ómarsdóttir, sem
tryggði KR áframhaldandi
sæti í efstu deild kvenna í
knattspyrnu með tveimur
mörkum gegn Fylki í leik lið-
anna í fyrrakvöld, segir að
gríðarlegur munur sé á
deildinni síðan hún lék síð-
ast hér á landi fyrir níu
árum. „Ungu stelpurnar eru
orðnar svo tæknilega góðar
og það eru afar margar
hæfileikaríkar stelpur í öll-
um liðum.“ »4
Gríðarlegur mun-
ur á níu árum
Keflavík tryggði sér í gærkvöld sæti í
Pepsi-deild karla í knattspyrnu á
næsta ári með 3:0-sigri á Gróttu sem
þar með er fallin niður í 2. deild. Fylk-
ismenn unnu Þrótt R. 3:1 og eru þar
með svo gott sem öruggir um sæti í
Pepsi-deild, en sex stigum munar á
liðunum þegar sex stig eru í pott-
inum, auk þess sem markatala Fylkis
er 16 mörkum betri en Þróttar. »2
Keflavík og Fylkir aftur
í deild þeirra bestu
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
„Við lærðum margt af leik landsliðs-
ins og það mun sjást á spilamennsku
okkar í vetur hvort sá lærdómur hef-
ur skilað sér alla leið,“ segir Árni
Egilsson, einn liðsmanna körfubolta-
liðsins Molduxa á Sauðárkróki, en
hátt í 10 liðsmenn, ásamt mökum og
börnum, voru meðal fjölmargra
stuðningsmanna íslenska landsliðs-
ins á Eurobasket í Finnlandi. Árni
var nýlega kominn á Krókinn í gær,
eftir langt flug frá Finnlandi, þegar
Morgunblaðið náði tali af honum.
Molduxar, ásamt fjölskyldum,
voru vel á þriðja tuginn í Finnlandi,
auk fjölmargra annarra áhuga-
manna um körfubolta úr Skagafirði.
Hópurinn sá alla leiki íslenska liðs-
ins, líka þann síðasta gegn Finnum.
Molduxar áttu ekki í vandræðum
með að greina leik landsliðsins og
hvernig leikmenn og þjálfarar ættu
að leggja leikina upp. „Það voru
margir spekingar á pöllunum sem
leiðbeindu þeim sem minna vit hafa
á körfubolta,“ segir Árni en þó
að Ísland hafi tapað öllum
leikjunum á mótinu þótti
ferðin hafa heppnast vel.
„Það var mikil stemning í ís-
lenska hópnum. Markmiðið
var að fara út til að hafa gam-
an af þessu og hvetja okkar
menn áfram,“ bætir Árni við.
Molduxar hafa verið starf-
andi frá árinu 1981 og margar kemp-
ur leikið með liðinu sem áður gerðu
garðinn frægan með Tindastóli eða
öðrum körfuboltaliðum. Hafa þeir
m.a. tekið þátt í bikarkeppni KKÍ,
leikið í utandeildum og farið í
keppnisferðir til útlanda. „Við
stundum mjög öflugt unglingastarf
svo klúbburinn deyi ekki út,“ segir
Árni en Molduxar standa fyrir
tveimur körfuboltamótum á ári á
Sauðárkróki; um áramótin fyrir
„bumbuboltalið“ heimamanna og að
vori þar sem 15-20 lið af öllu landinu
mæta, 30 ára leikmenn og eldri.
Molduxar æfa körfubolta allt árið
um kring en meira yfir veturinn, allt
að þrisvar sinnum í viku. Liðsmenn
eru að jafnaði 15-17 talsins. Næsta
æfing er strax á morgun, laugardag.
„Þeir sem sátu heima hafa skorað á
okkur Finnlandsfara að mæta, til að
sjá hvort við höfum lært eitthvað.“
„Lærðum margt af landsliðinu“
Körfuboltaliðið Molduxar á Sauð-
árkróki fjölmennti til Finnlands
Ljósmynd/Páll Friðriksson
Molduxar Stór hluti hópsins úr Skagafirði á pöllunum í fyrrakvöld, í leiknum gegn Finnum. Árni Egilsson er með bláa hattinn í annarri röð neðan frá.
Molduxar mættu ekki á Euro-
basket í Berlín árið 2015 og
hörmuðu það í sérstakri ályktun
allsherjarþings. Var ákveðið að
fjölmenna á næsta mót, sem
varð raunin í Finnlandi í ár. Tóku
Molduxar á sig ábyrgð á
gengi Íslands í Berlín og
ákváðu að ráðstafa öllum
hagnaði félagsins árið
2014 til KKÍ, tæpum 30
þúsund krónum, til að
styðja frekar við A-
landslið karla.
Hétu KKÍ
stuðningi
MOLDUXAR
Íslandsmót kvenna í handknattleik
hefst á sunnudaginn þegar Fjölnir
fær ÍBV í heimsókn. Morgunblaðið fer
í dag ítarlega yfir keppnina í Olísdeild
kvenna þar sem mestar líkur virðast
á því að Fram og Stjarnan heyi einvígi
um Íslandsmeistaratitilinn eins og í
fyrra. »2-3
Verða Fram og Stjarnan
í sérflokki í vetur?